15.11.1944
Neðri deild: 74. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

183. mál, nýbyggingarráð

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. — Ég vil skjalfesta þetta, sem hv. 2. þm. S.-M. sagði, að Framsfl. var reiðubúinn til að taka þátt í ríkisstjórn, enda þótt hann hefði ekki neina trú á, að stefnuskrá stjórnarinnar væri framkvæmanleg. Það er verra hlutskipti heldur en að vera of bjartsýnn. — Það getur verið, að við séum of bjartsýnir. Ég er reiðubúinn til að taka því, sem að höndum ber. Það þarf þá engum að koma að óvörum, þótt menn hafi kannske reynzt of bjartsýnir. En við höfum sagt: Þessa tilraun verður að gera. Og svo tökum við því, sem kemur, þegar þar að kemur.