19.01.1944
Sameinað þing: 7. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í D-deild Alþingistíðinda. (4055)

2. mál, niðurfelling dansk-íslenzka sambandslagasamningsins frá 1918

Ólafur Thors:

Í þeim fáu orðum, sem ég mælti, eftir að hv. 4. þm. Reykv. flutti ræðu sína, gat ég þess, að ég mundi lítið ræða lögfræðilega hlið málsins. Til þess eru mér hæfari menn í þeim flokki, sem ég tilheyri, og öðrum flokkum. Þetta hefur verið gert mjög ýtarlega bæði hér í Sþ. og Nd. í sambandi við umr. um stjskr., og vísa ég sérstaklega til ræðu hv. 6. þm. Reykv. hér í þ.

Það eru því aðeins örfá atriði, sem mér þykir ástæða til að víkja að að þessu sinni og þá að gefnu tilefni frá hv. 4. þm. Reykv.

Ég hafði látið í ljós undrun mína yfir því, að hann skyldi ekki sjá þá agnúa, sem hann nú þykist sjá, á þessu máli, er hann 7. apríl 1943 undirritaði með öðrum meðlimum stjskrn. þá till., sem hér er til umr. Þessi hv. þm. sagði nú, að hann teldi sig ekki þurfa að gefa á þessu neinar skýringar, því að það hefði hann gert við umr. um stjskr. í Nd.

Ég var í Nd. við þær umr. Ég hlustaði með gaumgæfni á ræðu hv. 4. þm. Reykv. Ég fann þar enga minnstu skýringu á því undarlega stjórnmálafyrirbrigði, sem hér hefur orðið.

Ég held, að hæstv. forseti hafi vikið að því, að þessar skýringar hafi ekki fallið í Nd. eða þá., að þær hafi verið þess eðlis, að þm. hafi ekki skilið þær. Ég mundi því enn kalla á þær, ef ég ekki væri orðinn sannfærður um, að þær eru ekki til, a. m. k. ekki í því formi, sem við getum skilið.

Hv. þm. endurtók hvað eftir annað þau orð, að eftir að tvö stórveldi hefðu aðvarað okkur um að stíga ekki lokasporið, fyrr en sambandslagasamningurinn væri útrunninn, þá ættum við að framfylgja því bókstaflega. Hann margendurtók þetta máli sínu til stuðnings og framdráttar.

Ég veit ekki, hvernig hægt er að orða það skýrar, að hér sé um dulbúnar hótanir að ræða, eins og þessu máli er fram fylgt. En annars held ég að hv. þm. þurfi ekki að vera svona kvíðinn. Frá þessum aðilum er úr þessu ekki andstöðu að vænta. Eins og ég áður gat um, tókst mér, haustið 1942, að fá skýra yfirlýsingu annars þeirra um, að l. sé fullnægt með þeirri aðferð, sem nú er viðhöfð.

Hv. þm. skaut því til mín, hvort einn merkasti stjórnmálamaður Dana, Stauning forsrh., sem nú er látinn, hefði reynt að hafa áhrif á mig í sjálfstæðismálinu. Ég vil ekki láta undir höfuð leggjast að lýsa því yfir, að ég man ekki eftir, að Stauning forsrh. hafi gert allra minnstu tilraun, beint eða óbeint, að ræða málið við mig. Ég hygg einnig, að hann hafi vitað svo vel um sögu málsins, að það mundi tilgangslaust að tala um það við mig, sem árið 1937 hafði gefið skýlausar yfirlýsingar um, að Ísland mundi nota fyrsta tækifæri til að segja upp samningnum og ætlaði engan að gera í staðinn og enn fremur, að Íslendingar ætluðu sér að taka þá þegar í sínar hendur öll yfirráð allra sinna mála. Þetta efast ég ekkert um, að hann hafi vitað.

En hvort sem svo er eða ekki, þá tel ég rétt að gefa þá yfirlýsingu, sem ég hef nú gefið.

Ég talaði um sambandsl. við annan merkan og heimskunnan stjórnmálamann Dana, Christmas Möller kom hingað vorið 1939 til þess m. a. að heilsa upp á mig. Ég hafði aldrei talað við hann áður. Hann talaði við mig um sambandsl. Spurði hann mig m. a., hvernig uppsagnarákvæðin væru. Ég skýrði honum frá því, og til samanburðar á afstöðu hans og þeirra Íslendinga, sem nú telja sig tala fyrir göfugmennsku í garð Dana, skal ég skýra frá því, sem hann lét um mælt, — og um sannleika þess getur hann borið, því að hann er, sem kunnugt er, á lífi: „Hvað sem líður þessu ákvæði um að 75 af hundraði eigi að sækja kjörstaði og 75 af hundraði af þeim að segja já, þá dettur engum Dana í hug, að því þurfi að fullnægja. Ef einfaldur meiri hluti ber fram þá ósk, ber að sjálfsögðu að fara eftir henni.“ Þetta voru ummæli hans. Mér þykir sanngjarnt að geta þess, að þessi stjórnmálaskörungur er einstakur um víðsýni og réttsýni, en ég hygg, að beztu menn Dana hugsi í þessum efnum líkt og hann.

Ég vil einnig í þessu sambandi, til þess að fyrirbyggja misskilning, geta þess, að í Sjálfstfl. var ekki gerð minnsta tilraun til að knýja menn til samkomulags um þetta mál. Menn hafa verið á einu máli, og flokkurinn stendur óskiptur bak við það og hefur gert um langan tíma.

Hv. 3. landsk., sem í sinni rökföstu ræðu studdi málið, gerði eitt atriði í minni ræðu að umtalsefni. Hann sagði, að ég hefði haft um það fullyrðingar, að það væri engin hætta á ferðum, ef við héldum stefnu eins og nú væri stýrt. Hann sagðist vona, að þetta væri ekki úr lausu lofti gripið, en óttast þó, að svo gæti verið.

Ég held, að hv. þm. þurfi engan kvíðboga að bera fyrir þessu. Sú eina hætta, er nú vofir yfir okkur, stafar frá okkur sjálfum. Óeining og stöðugar fullyrðingar um, að réttur okkar sé hæpinn, er til hins verra. En það eitt gæti þó leitt til voða, ef þessar tungur næðu eyra þjóðarinnar og fengju talið kjark úr henni. Það má aldrei ske. Það skal aldrei ske.

Ég hef svo mikla trú á dómgreind þjóðar minnar, að ef hún gæti heyrt þessar umr. og ætti að ganga til atkv. með eða móti sambandsslitum nú, þá mundi hún hiklaust segja já. Ég er sannfærður um, að ef við gætum lagt þau gögn á borðið fyrir þjóðina, sem lögð hafa verið hér fram, þá mundi vart finnast sá Íslendingur, sem mundi fylgja þeim sorglega málstað, sem hv. 4. þm. Reykv. hefur tekið að sér að standa fyrir. Það er ekkert, sem getur gefið þeim von um fylgi, annað en það, að þjóðin fái ekki að heyra rétt rök með og móti. En hún skal fá að heyra þau. Ég er sannfærður um, að ef við nú stofnum lýðveldi okkar, verður engin rödd utan að, sem treystir sér til að standa í gegn því. Við höfum meðmæli eins stærsta og voldugasta ríkis heims. Hver mun mótmæla þeim rétti Íslendinga, sem Bandaríkin hafa viðurkennt? Enginn. Ég er sannfærður um það. En ég er líka sannfærður um, að ef við látum undir höfuð leggjast að nota tækifærið, þá þarf ekki nema andblæ til að blása burtu sjálfstæði þeirrar þjóðar, sem ekki þekkti sinn vitjunartíma. Ég er jafnöruggur, ef beint er stefnt og hiklaust, og ég er kvíðinn um framtíðina, ef við vanrækjum skyldu okkar nú.

Við þessar umr. hefur tvennt sannazt. Í fyrsta lagi réttur okkar Íslendinga til þess að stíga það spor, sem gert er ráð fyrir í því frv., sem nú liggur fyrir Alþ. Í öðru lagi hefur það einnig komið í ljós, að málsvörn flóttamanna er vonlaus.

Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að ræða hv. 4. þm. Reykv. hefði verið svo, að hann vildi taka undir það, að hún hefði verið flutt af áhuga, og hann vildi tjá sig ánægðan með allt annað en efni hennar, og ég skal viðurkenna, eins og ég hef tekið fram í aths., að ég heyrði þennan hv þm. tala með meiri eldmóði en ég á að venjast. En einmitt þessi varnagli hans og annarra í málsvörninni er ekki fyrir hendi. Mér er óskiljanlegt, hvað hér hefur komið fyrir. Ég hef aldrei, hvorki í pólitískum ferli mínum né í eftirgrennslan minni eftir því, sem skeð hefur bæði hér og annars staðar, séð nokkur dæmi þess, að nokkur flokkur hafi gengið jafnt í berhögg við viðurkennda velferð eigin þjóðar sinnar og heilbrigða skynsemi og nokkur hluti Alþfl. hefur gert.