17.01.1945
Efri deild: 104. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1474 í B-deild Alþingistíðinda. (4097)

24. mál, atvinna við siglingar

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. — Ég vil aðeins benda á, hvaða braut er gengið hér inn á, ef samþ. verða brtt. á þskj. 784 og 863.

Það er ekki einu sinni gert ráð fyrir því, að ráðh. skuli hafa takmarkað vald, til að veita undanþágu til þess að fara með þessi skip, ef þannig stendur á, að ekki reynist unnt að fá menn, heldur er honum veitt eins mikið vald og Alþ. sjálfu til að ákveða um rétt manna til að gera þetta verk. Hér er þó mikill eðlismunur. Og ef um nauðsyn er að ræða, ætti að takmarka þetta við það, að ráðh. hafi heimild til að veita undanþágu í hvert skipti, svo að unnt væri að bjarga forminu frá eyðileggingu, ef ekki reynist hægt að fá aðra menn. En hér er ekki um það að ræða, heldur á ráðh. að hafa hér viðtækari rétt, sem mjög er auðvelt að misbeita. Það gæti svei mér verið þægilegt vopn, t.d. rétt fyrir kosningar, ef viðkomandi ráðh. hefði vald til að veita mönnum rétt til þess að fara með fiskiskip án þess að fara í nokkurn skóla. Gegnir furðu, að þeir menn, sem undanfarin ár hafa hrópað um öryggi á sjónum, skuli nú koma og heimta, að kippt sé undan þessu öryggi fótum. Skýtur þar nokkuð skökku við það að halda uppi öryggi á sjónum, því að þótt einhver formaður hafi verið á báti. sem er 16–20 tonn, nær vitanlega engri átt. að hann hafi þá þekkingu, sem þarf til að flytja fisk milli landa. Vil ég því mæla með, að till. verði samþ. eins og hún kom frá sjútvn.