17.01.1945
Efri deild: 104. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1479 í B-deild Alþingistíðinda. (4103)

24. mál, atvinna við siglingar

Atvmrh. (Áki Jakobsson):

Ég skal taka fram, að ég ætla ekki að keppa við hv. þm. Barð. um, hvor okkar tali síðast, því að ég hef heyrt sagt, að engin leið sé til annars en að hann tali síðastur í hverju máli. Hann segir, að ég fari með miklar fjarstæður. Það er nú ekki nýtt, að hann haldi slíku fram, því að hann þykist einn sitja uppi með allan vísdóminn í hverju einasta máli.

Hv. þm. segir, að það sé höfuðnauðsyn að samþ. ekki svona undanþágu, en bendir á, að það sé í höndum atvmrh. að setja þau menntunarskilyrði, sem setja eigi. En er þá ekki betra að ganga hreint til verks og slá því föstu, þegar aukin hafa verið menntunarskilyrðin, að þeir menn skuli fá undanþágu, sem starfað hafa mjög lengi í þessari grein og ætla að starfa þar áfram? Þetta eru tiltölulega fáir menn, en þeir hafa mjög langa reynslu, hafa verið skipstjórar áratugum saman og eru vafalaust ekki verr að sér í sinni grein en margir, sem eitthvað hafa meira lært.

Það getur enn fremur staðið svo á, að ríkisstj. sé beinlínis knúin til að veita mönnum slíka undanþágu, þó að engin heimild sé til þess í l. Þegar skip eru hlaðin ísfiski og verða að sigla tafarlaust og engin leið er að fá réttindamenn, þá er óforsvaranlegt, að ríkisstj. hangi svo í formsatriðum, að hún neiti mönnum, sem allir treysta, um að sigla með fiskinn og láti aflann eyðileggjast í skipinu. Þess vegna er misskilningur að vera að gera ákvæðin svona ströng, vegna þess að í framkvæmdinni verður ekki hægt að fylgja þeim eftir. Það er ekki hægt að valda þessum mönnum — kannske milljónatapi, af því að stj. vilji hengja sig í einhver orð, sem hafi verið sett í l. Þess vegna er bezt að forðast svona „situation“, taka sanngjarnlega á þessu máli, veita eðlilegar undanþágur, leyfa þessum fiskimönnum að halda þeim rétti; sem þeim hefur verið veittur, en taka hann ekki af þeim, þó að við séum nú farnir að fiska á stærri skipum en áður hefur verið gert.

Það er rétt, að ég hef ekki snúið mér formlega til n. Mér fannst þetta svo sjálfsagt mál, vegna þess að það hefur verið svo venjulegt áður, að undanþágur hafi verið veittar, þegar auknar hafa verið kröfurnar. Ég sneri mér þess vegna til hv. 4. landsk. og bað hann fyrir skilaboð til n. Ég veit ekki, hvernig hann hefur skilað þeim, og finnst það ekki skipta máli. Aðalatriðið er, að þetta er sanngjörn og eðlileg lausn á þessu atriði. Hitt er ekki æskilegt, að Alþ. geri sig sekt um.