19.01.1945
Efri deild: 106. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (4116)
24. mál, atvinna við siglingar
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Það er rétt, að ég lýsti ekki afstöðu minni til varatili. á þskj. 904. en ég get þá sagt það, að mér finnst það ekkert óeðlilegt, þó að gert verði um leið að skyldu að leita umsagnar þeirra aðila, sem þar er talað um, áður en þau réttindi, sem þarna er um að ræða. væru veitt. Í raun og veru væri kannske réttara, að það ætti að leita umsagnar skólastjóra Stýrimannaskólans, sem hefur það sérstaklega með höndum að búa menn undir skipstjórastarfið. Það væri í samræmi við ákvæði 2. gr. frv., að leita skyldi áður umsagnar skipaskoðunarstjóra um þessi mál. En hins vegar vil ég benda á, að eins og niðurlag till. er, þá er þar um miklu meira að ræða en að aðeins eigi að leita umsagnar þessara aðila. Með niðurlagi till. er valdið beinlínis tekið úr höndum ráðh., ef hún verður þannig samþ., og úrskurðarvaldið þannig fengið í hendur þessum aðilum. En ég álít það ekki rétt. Ég mun því bera hér fram brtt. um, að orðin „enda séu þessir aðilar sammála“ o.s.frv. falli brott. og ef í tillögunni væri aðeins það, að ráðh. skyldi leita umsagnar þessara aðila, áður en réttindi eru veitt, þá álít ég ekki óeðlilegt, þó að því væri bætt inn í l. Ég leyfi mér að flytja skrifl. brtt. við varatill. á þskj. 904 um að fella þessi orð niður. sem ég minntist á, og þá verður till. þannig: „Áður en réttindi eru veitt, skal leita umsagnar skipaskoðunarstjóra og Farmanna-og fiskimannaráðs Íslands.“