01.02.1945
Neðri deild: 119. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (4137)
24. mál, atvinna við siglingar
Sigurjón Á. Ólafsson:
Herra forseti. — Þó að frsm. okkar fjórmenninganna hafi gert nokkra grein til þess að andmæla því, sem fram hefur komið gegn till. okkar, þykir mér rétt að segja nokkur orð til viðbótar því, sem ég sagði áður.
Hæstv. atvmrh. var sá maður, sem aðallega kom hér til andmæla, og kom mér það nokkuð á óvart. Er það sennilega af því, að ég hef ekki fylgzt með gangi málsins, þegar umr. hafa farið fram um það. En frá öllum hliðum séð hafði ég sízt búizt við því, að hann, sem hefur valdið og ábyrgðina í sínum höndum, gengi fyrst og fremst, fram fyrir skjöldu um það að rífa niður það öryggi, sem felst í því, að menn, sem stjórna stórum skipum, hafi þekkingu og reynslu til að bera.
Sumu af því, sem hann sagði, hefur verið svarað af hv. 7. þm. Reykv. Ég vil taka það fram, að ég heyrði ekki allt, sem hann sagði, því að hann talaði lágt. Hann var með þá kenningu, að það væri ósanngjarnt gagnvart gömlum mönnum að heimta þá á skólabekkinn. Þetta er ekki meira en það, sem hefur átt sér stað áður. Ég minnist þess, að menn, sem áttu von á því að fá stærri skip, eftir að þeir voru komnir á fullorðins aldur, hafa setzt á skólabekkinn, og raunin varð sú, að þeim gekk prýðilega. Þeir menn, sem hafa gert þetta, hafa ekki talið það eftir sér, vegna þeirrar réttindaaukningar, sem þeir hlutu við það. Það er upplýst hér af hv. 7. þm. Reykv., að það hafi ekki verið svo harðar kröfur í fræðsluefni, að líkur væru til þess, að þessir menn mundu falla við slík próf, enda sé þess að gæta, að með menn, sem lengi hafa haft á hendi skipstjórn, væri það eins og að læra upp kverið sitt, sem þeir hefðu ekki lesið, síðan þeir voru börn, en væri gott að lesa það yfir til þess að kunna það betur. Þessi kenning, að ekki eigi að setja þungar kvaðir á þessa menn, hefur ekki við rök að styðjast, og verður því frá mínum bæjardyrum séð algerlega að afskrifa hana. Því hefur verið svarað, að það væri verið að reka þessa menn úr sjómannastéttinni og frá sjósókn. Ég verð að segja það, að þessu er skotið fram sem vígorði. Það gefur auga leið, að menn, sem hafa réttindi á 75 rúml. bát og eiga bát, geta alltaf ráðið yfir honum áfram. En þeir geta, ef þeir vilja afla sér viðbótarfræðslu, fengið stærra skip.
Nú er það svo, að 75 rúmlesta skipin okkar eru skip, sem stunda alla veiði. Ef til vill eru þau stærstu of stór til þess að stunda þorskveiðar með lóð. Ég get tekið undir með hv. 7. þm. Reykv. um það, að meðal sjómanna eru mjög skiptar skoðanir um það, hvort þau skip eru of stór til lóðaveiða. Hins vegar hefur verið gerð tilraun með þessi skip til botnvörpuveiða, en ekki hefur enn fengizt full reynsla um það. En þessi skip eru ágæt síldveiðiskip, ef þau eru vel útbúin.
Til viðbótar því, sem ég sagði áður um skip, sem eru stærri en 75 rúmlestir, væri t.d. möguleiki að nota þau til veiða við Grænland, til að flytja fisk og ef til vill til selveiða, ef Íslendingar tækju að stunda selveiðar norður í Íshafi. Ef slíkt er tekið upp, er fullkomin ástæða til þess, að þeir menn, er það gera, hafi fullkomna þekkingu, ef vel á að fara. Þetta allt liggur fram undan sem hugsanlegur möguleiki, og ef þessum mönnum væru veitt þessi réttindi, gæti það hjá sumum lánazt, en sumum ekki, því að menn, sem undanþáguna fá, eru misjafnir eins og aðrir. Þegar talað er um, að menn, sem eiga að fá undanþáguna, hafi stýrt skipum frá 15–75 smálesta, þá er þar margs að gæta. T.d. á nú maður, sem stýrt hefur bát, sem er innan við 20 smálestir, að fá réttindi til að stýra skipi, sem er 120 smálestir. Ég hygg, að hver einasti maður sjái, að það er nokkuð ólíkt að stunda veiði á 120 smálesta skipi eða 20 smálesta bát, sem aðeins er gerður út frá heimahöfn. Nú á að veita þessum mönnum nákvæmlega sömu undanþáguréttindi, ekki aðeins mönnum, sem hafa stýrt 75 smálesta skipum, heldur einnig þeim mönnum. sem hafa aðeins stýrt 15 smálesta bát. Það er í þessu, sem ég tel öryggisleysi, vegna þess að undanþágan fer ekki alltaf eftir fyllstu verðleikum. Það er margt, sem getur komið þar til greina, eins og reynslan hefur sýnt.
Hæstv. ráðh. var að tala um formenn, sem hafa verið aflasælir á síldveiðum. Það er rétt, að sumir menn, þótt þeir hafi ekki há próf, eru góðir síldveiðimenn. Svo eru stundum ráðnir veiðiformenn, sem stýra ferðinni. En sem veiðiformenn eru oft valdir menn, sem hafa ekki skipstjórnarréttindi, en hafa reynzt lagnir við að veiða síldina. Þetta sannar það, að skipstjórnarréttindi og aflasæld fara ekki alltaf saman.
Hæstv. ráðh. sagði, að fáir mundu sækja um þessa undanþágu á næstu fimm árum. Hann getur bókstaflega ekkert um þetta sagt. En maður þekkir þó, að oft er það, að menn taka auðveldasta kostinn, sem fyrir hendi er, og það er auðvelt að losna við að fara á námsskeiðin og fá undanþáguna. Og það er líklegast, að flestir fari þá leið, að biðja um undanþágu, til að losna við að fara á námsskeiðin. Hæstv. ráðh. vildi meina, að þeir örðugleikar væru fyrir hendi, að menn gætu ekki sótt þessi námsskeið vegna húsnæðisvandræða. En ég þekki þess mörg dæmi, að mönnum hefur verið neitaður aðgangur að skólum, vegna þess að skólarnir hafa verið of litlir. Um þá menn, sem hér um ræðir, ætti slíkt ekki að þurfa að koma til greina. Það mun reynslan sýna, að það eru ekki þessir menn, sem þurfa að óttast húsnæðisvandræði. Þeir þekkja alltaf menn, sem mundu veita þeim húsaskjól, og nú er svo til ætlazt, að hinn nýi sjómannaskóli geti tekið við mönnum utan af landsbyggðinni í sín eigin húsakynni, hafi heimavist.
Þá kom hæstv. ráðh. með rök, sem ég tel rétt að ræða nánar en hv. 7. þm. Reykv. gerði. Þau voru, að allir minnaprófsmenn væru á því, að þessa undanþágu ætti að veita. Þetta er vægast sagt ekki sannleikur. Hv. þm. hafa fengið bréf frá þrem mönnum, undirritað með nafni félagsins Þróttar, sem er félag skipstjóra og stýrimanna. Nú er það svo, að þetta félag er innan heildarsambands Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. Það var fullt samkomulag milli þeirra manna, sem höfðu réttindi fyrir 75 smálesta skip og þaðan af meira, að ganga svo frá breyt. á l. í aðaldráttum eins og hér liggur fyrir. Minnaprófsmenn voru þeirrar skoðunar, að hér væri um sáttamiðlun að ræða, sem þeir gætu vel við unað. Nú vill svo til, að þáverandi formaður þessa félags skrifaði þm. svo og svo margt, sem hann hafði um það að segja, að veitt yrði undanþága upp í 150 smálestir. Nú vill svo til, að þessi maður var ekki endurkosinn formaður, og það traust, sem hann hafði, er algerlega horfið. Núverandi formaður og stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, hafa lýst yfir því, að þeir séu andvígir því, að þessi till. verði lögfest. Svo að ég hygg, að það sé ekki á rökum reist hjá hæstv. ráðh., að þessir menn hafi í raun og veru þá skoðun um þetta efni. Hins vegar er mér tjáð, að mikil hreyfing sé uppi um það, eins og hv. 7. þm. Reykv. drap á, að fá þessi námsskeið, sem frv. gerir ráð fyrir.
Ég vil varpa einni spurningu til hæstv. ráðh. Hann segir, að ríkisstj. standi að þessum undanþágum. Ég vil spyrja hann að því, hvort það sé öll ríkisstj. eða nokkur hluti hennar. Ég vil fá að vita, hvað mikill hluti hennar stendur að þessari undanþágu. Enn fremur gengur sú saga hér í bænum, að manni, sem hefur réttindi upp til 75 smálesta, hafi verið veitt réttindi til þess að hafa stærra skip. Ef til vill getur þessi hæstv. ráðh. upplýst, hvaða ráðh. það hefur verið, sem hefur veitt þessi réttindi? Ég er enginn lögspekingur, en ég vil taka það fram, að ef þessi undanþága hefur verið veitt, hefur hún verið veitt gegn andmælum formanns Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og skólastjóra Stýrimannaskólans. Og ég lít svo á, að enginn ráðh. hafi leyfi til að ganga lengra en gildandi l. ákveða, nema brýna nauðsyn beri til og alþjóðarheill sé í veði. Nú er því ekki til að dreifa. Það eru nógu margir menn til til þess að stjórna skipum, sem eru yfir 75 smálestir.
Þá kem ég að undanþágunni. Hæstv. ráðh. sagði, að allar ríkisstj. hafi veitt undanþágur. Það er rétt, að allar ríkisstj. hafa veitt einhverjar undanþágur. en ekki um skipstjóraréttindi nema í örfáum tilfellum og þá með meðmælum frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og stéttarfélögum úti um land og ef enginn annar maður hefur verið fáanlegur til þess að taka við skipstjórninni. Það er kunnugt, að allar ríkisstj. hafa orðið að veita undanþágur til vélgæzlu að meira og minna leyti og þá með meðmælum frá viðkomandi stéttarfélögum.
Ég vildi segja þetta um undanþáguna út af fyrir sig, og mín skoðun er sú, að ástæðulaust sé að veita undanþágu frá gildandi l. um skipstjórn, því að við höfum svo mikið af efnilegum og þrautreyndum mönnum, sem eru tilbúnir að taka við skipstjórn, ef tækifæri býðst. Skipastóllinn er of lítill, en við eigum nóga menn til þess að taka við skipstjórn. þegar skipastóllinn vex, reynda og hæfa menn, sem hafa alian hug á að ná sér í skip til skipstjórnar, en hefur ekki enn boðizt tækifæri. Það sýnir bezt talan, sem Stýrimannaskólinn útskrifar árlega, hvað mikil viðkoman er, þrátt fyrir áföll, sem verða, er menn drukkna og hverfa frá á annan hátt.
Ég vil bæta því við, að innan sjómannastéttarinnar hef ég alltaf gengið fram fyrir skjöldu um það að heimta reynslu í starfinu. Það er ekki að mínu skapi að draga úr reynslunni og starfshæfninni. En það þarf að fara saman: reynsla, starfshæfni og teknisk þekking. Og hverjum einasta formanni er nauðsynlegt að kynna sér þessa breyttu tíma. Allt, sem miðar að því gagnstæða, er afturför. Ég vænti þess, að ekki eingöngu hv. þm., heldur einnig hæstv. ríkisstj. skilji, að það eru breyttir tímar í atvinnulífi voru. sem útheimta meiri þekkingu, meiri hæfileika og meiri reynslu. og úr því má ekki draga.