20.02.1945
Efri deild: 132. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1508 í B-deild Alþingistíðinda. (4165)

287. mál, húsnæði í þarfir ríkisins

Jónas Jónsson:

Mér finnst hv. 2. þm. Árn. hefði heldur átt sem stuðningsmaður ríkisstj. að bera fram velviljaða dagskrá og vísa málinu frá en að bera fram þessa brtt. En það munu samt áreiðanlega líða áratugir frá því, að sú till. væri samþ., og þangað til landlæknir og heilbrigðisyfirvöldin í landinu væru ánægð með það, sem búið væri að byggja í þeim efnum. Annars er það óþarfi fyrir 2. þm. Árn. að vera óánægður í þessu efni. Alþ. og ríkisstjórn eru ákaflega örlát með greiðslur til þessara, mála, sem betur fer. T.d. var samþ. um daginn, að yfir 4 sjúklingum skyldi vera yfirlæknir, sem ætti að fá sömu laun og yfirlæknirinn á Vífilsstöðum, sem hefur um 200 sjúklinga. En reyndar er það mjög vafasamt, að það geti staðizt málfræðilega að hafa yfirlækni, þar sem enginn undirlæknir er. En ég hygg menn verði að viðurkenna, að það er ekkert lítið, sem nú er verið að gera í þessum málum. Það er verið að undirbúa stóra viðbótarbyggingu við Landsspítalann og búið að byggja við Vífilsstaðahælið. Ríkisstjórnin er að undirbúa viðbótarbyggingu við Klepp og stóran spítala á Akureyri og spítala við Lagarfljótsbrú, sem er afar nauðsynlegur fyrir héraðið. Það má telja það ofrausn að bæta því við, sem brtt. gerir ráð fyrir.

Hv. 1. þm. Reykv. var að tala um það, hvort byggja ætti bráðabirgðabyggingu við Arnarhvol og rífa hana svo eftir tiltölulega stuttan tíma. Hv. þm. lagði sem vonlegt var ekki trúnað á þetta. Þetta hefur bara heyrzt. Nú er það líklegt, að ríkisstjórnin geti byggt á lóð við Lindargötu dálítið stærra hús heldur en Arnarhvoll er. Með þeim ríkisrekstri, sem nú er, mun ekki veita af því. En þetta er mál ríkisstjórnarinnar. Mér finnst ósennilegt, að fjmrh. hefði borið þetta mál fram í þinglokin. ef ekki er sár nauðsyn fyrir hendi í þeim efnum. En af því að hann hefur tekið upp í frv. heimild úr till., sem ég bar fram hér um húsnæði fyrir Hæstarétt, þá ætla ég að fara um það nokkrum orðum.

Reykjavíkurbær á ekkert ráðhús eða skrifstofubyggingu. Reykjavíkurbær hefur í undirbúningi ráðhúsbyggingu eins og ríkið stjórnarráðshússbyggingu. Ýmsar ástæður liggja til þess, að ekki hefur orðið úr þessum framkvæmdum enn. En nú er á stað komin alvarleg hreyfing að byggja skrifstofubyggingu hliðstæða Arnarhvoli, byggingu, sem bærinn getur notað fyrir starfsfólk sitt, þar til ráðhúsið kæmist upp, sem á að vera fullkomnari og meiri bygging heldur en venjuleg skrifstofubygging. Ríkið hefur verið að undirbúa byggingu stjórnarráðshúss, kannske byggingu yfir Hæstarétt og e.t.v. yfir Alþ. Þetta er í undirbúningi bæði hjá ríki og bæ. En af framkvæmdum getur ekki orðið, fyrr en búið er að ákveða skipulag miðbæjarins. Þótt ríkið hafi nóga peninga til þess að byggja sérstaka dómhöll, þá getur það ekki byggt hana á lóðinni við Lækjargötu, fyrr en samkomulag hefur náðst um það milli bæjarins og Skipulagsnefndar ríkisins. Á meðan er ekki hægt að byggja á þessum lóðum, og þar að auki þarf til þess margra ára undirbúning, sem ekki er hægt að ljúka nú á þennan hátt. Þess vegna er það á sama hátt, að Reykjavíkurbær frestar ráðhúsbyggingu sinni og gerir jafnvel ráð fyrir að byggja venjulega skrifstofubyggingu, þangað til ráðhúsi yrði komið upp. Þannig er auðséð, að hæstv. ríkisstj. ályktar eins og þegar Arnarhvoll var byggður, því að ríkið þarf að hafa sæmileg húsakynni fyrir skrifstofur sínar, ef þess er nokkur kostur. Í því skyni var Arnarhvoll byggður, og á sömu forsendum leggur hæstv. ríkisstj. til, að þetta hús sé stækkað.

Ég kem þá að því atriði, sem talsvert hefur orðið tíðrætt um, sem sé það, að Hæstiréttur getur ekki lengur haft aðsetur í þeirri kytru, sem hann hefur búið við fram að þessu, og vil ég leyfa mér að fara um það nokkrum orðum. — Það hefur komið ýtarlega fram í þessum afmælishugleiðingum Hæstaréttar og ekki sízt í ræðu forsetans við það tækifæri, að þegar Hæstiréttur var stofnaður, var það í hugum manna hliðstætt stofnun Alþ., — einn af þrem þáttum í sjálfstæði landsins. Eftir sáttmálann frá 1918 var mikill hugur í mönnum, og þeir vildu koma upp Hæstarétti. Fengu þeir honum aðsetur í hegningarhúsinu, en ætluðust til, að það yrði aðeins til bráðabirgða, — aðeins í tvö til þrjú ár, þangað til byggt yrði yfir hann. En svo hefur aldrei verið byggt. — Það var fallega sagt, er forseti sagði nú á 25 ára afmæli Hæstaréttar: „Það var mikil náð fyrir okkur, að Danir skyldu byggja hér tvö hús fyrir okkur. Í öðru er landsstjórnin og hinu Hæstiréttur, en það vill svo til, að landsstjórnin býr ein í sínu húsi; — en við í tvíbýli,“ bætti forseti við á dálítið skemmtilegan hátt. Hæstiréttur býr þarna í tvíbýli við fanga landsins, þótt það geti verið beztu menn. (BBen: Eru það beztu menn?) Ekki að öllu leyti, en þeir geta verið það, þótt þeim hafi orðið á eitthvert brot við 1., en þetta tvíbýli er þannig, að það er alveg óhugsandi, þótt hv. 2. þm. Árn. sé á annarri skoðun, en hann mundi ekki tala eins og hann gerði, ef hann væri kunnugri málavöxtum, því að þetta tvíbýli við fanga landsins hefur verið þannig, að inngangur hefur verið sameiginlegur og er enn. — Við vitum, að það liðu ekki nema örfá ár eftir 1874, þangað til Alþ. tók ákvörðun um að reisa þessa stóru höll, sem við erum nú í. Af hverju gerðu þm. þetta þá? Þar var heilbrigður metnaður þjóðarinnar að verki, er vildi, að Alþ. væri sýnilegt tákn um stórhug hennar. Og það, að ég hef borið fram þessa till., er margir aðrir hafa borið fram bæði í ræðu og riti, um að Hæstiréttur flytji úr hegningarhúsinu í byggingu, sem honum væri samboðin, er ekki svipaður stórhugur eins og kom fram hjá þm. 1874, heldur aðeins hversdagslegt úrræði til þess að reyna að láta fara sæmilega um þessa virðulegu stofnun. En ég býst við því, að ef úr því verður, að Hæstiréttur fari í þessa skrifstofubyggingu, þá verði það nægilegt húsnæði, en ekki eins veglegt og Alþ. hefur, því að Hæstiréttur ætti að hafa á sér hátíðarsvip, og það er það, sem hæstaréttardómendur ætlast til, að verði um síðir. — Ég býst varla við því, að hv. 2. þm. Árn. viti um það bréf, sem dómendur Hæstaréttar sendu fjhn. út af þeirri till., sem hér hefur komið fram, um það, að réttinum verði séð fyrir húsnæði í skrifstofubyggingunni við Lindargötu. Í því segja þeir, að þeir telji rétt og sjálfsagt, að ríkið byggi mjög myndarlegt hús yfir Hæstarétt, sem yrði sennilega bæði fyrir Hæstarétt, miðrétt og undirrétt, en ef þetta yrði ekki hægt, óska þeir eftir að fá aðstöðu til þess að fá aðsetur í þessari skrifstofubyggingu við Lindargötu, en því aðeins, að þeir verði hafðir með í ráðum. hvernig því yrði fyrir komið. En síðan láta þeir í ljós, að þeir séu á móti öllum umbótum á hegningarhúsinu í sambandi við sig, og hygg ég, að það sé þannig lagað, að hæstaréttardómendum finnist svo niðurlægjandi það, sem þeir hafa átt við að búa. Hygg ég, að þeir hafi bannað allar smábreytingar á hegningarhúsinu, og hef ég heyrt, að þeim hafi verið boðið, að eitthvað yrði flutt úr húsinu, til þess að rýma fyrir þeim, — ekki fanga, heldur einhverja aðra grein, en þeir hafi neitað því. Hygg ég, að þeir ætli sér að vera þarna, þangað til föðurlandið geti látið þeim í té húsnæði með viðunandi starfsskilyrðum, og af því að hv. 2. þm. Árn. kom, að mér fannst, að tilefnislausu inn á heilbrigðismálin, þá vil ég segja honum það, að mér finnst fullkomin ástæða til að ætla, að það sé stórt heilbrigðismál að flytja hæstaréttardómendur og málflutningsmenn úr þessu húsi, sem þeir starfa nú í, og vona ég, að hv. 2. þm. Árn. snúist með þessu frv. út frá sinum heilsufræðislegu hugsunum.