28.09.1944
Neðri deild: 57. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1550 í B-deild Alþingistíðinda. (4199)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. — Síðasti ræðumaður, hv. þm. Siglf., sagði, að innkaupareikningar innflytjenda væru allir falsaðir. Hv. þm. veit, að það er ekki hægt að sækja hann til saka um það, sem hann segir úr ræðustóli Alþingis, en það er lítilmannlegt að bera heila stétt ósönnum ásökunum í skjóli friðhelgi þingsalanna.
Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls í sambandi við þetta frv. En vegna þess, að enginn af hv. ræðumönnum flokkanna hefur gert sérstaklega að umtalsefni fjárhagshlið málsins, vil ég gjarnan drepa lítillega á það efni.
Búnaðarþing hefur f.h. bænda stigið hyggilegt og drengilegt spor með tilboði sínu um að falla frá þeirri nýju hækkun á verði landbúnaðarafurða, sem í gildi átti að ganga 15. sept. Er það fyrsta skrefið, sem stigið hefur verið til að stöðva vöxt verðbólgunnar sem raunhæfum ráðstöfunum. Enn þá hefur ekki sézt, að aðrar stéttir hafi fundið hvöt hjá sér til að fylgja þessu fordæmi, sem er þó hin eina og rétta leið út úr ógöngunum. En það eru því miður líkur til, að þetta skref eitt fyrir sig sé of skammt. En þótt reynt verði að nota þessa framboðnu aðstoð bænda til að stöðva verðbólguna um stund, er að mínu áliti vafasamt að unnt sé að uppfylla fjárhagslega þau skilyrði, sem sett eru fyrir aðstoðinni.
Ef menn athuga, hvernig hægt er að stöðva verðbólguna, komast menn að raun um, að aðeins ein skynsamleg leið er fær, en hún er, að framleiðendur og launþegar og aðrir taki á sig þá lækkun á verðlagi, sem nauðsynleg , er aðeins til að stöðva verðbólguna, þó að ekki sé talað um að færa hana til baka, með þeirri aðstoð, sem ríkissjóði er mögulegt að veita. Þetta er sú leið, sem ríkisstj. hefur bent á í sínum dýrtíðarfrv., en litlar undirtektir fengið hjá flokkunum. En með því frv., sem hér liggur fyrir, er því verið að bera fram hluta af þeim till., sem stj. hefur lagt fram í þessum málum.
Um það hefur nokkuð verið deilt, hvort bændur hefðu lagalegan rétt til að krefjast þess, að ríkissjóður tryggði þeim verð, sem ákveðið er með landbúnaðarvísitölunni. Hv. þm. Str. hefur nú kveðið upp úr með það í grein í Tímanum í fyrradag og sagt, að ríkið taki ekki ábyrgð á, að bændur fái þetta verð. En þótt ríkinu sé ekki með l. skylt að verðbæta útflutt kjöt, má segja, að mikil sanngirni mæli með, að það sé gert, sé þess kostur. En fjárhag ríkissjóðs eru að sjálfsögðu takmörk sett í þessu efni, og vegna þjóðarheildarinnar verður að gæta þess vel, að ríkinu sé ekki reistur hurðarás um öxl í þessu efni frekar en öðrum. En tekjur ríkissjóðs næsta ár munu varla gera betur en að standa undir rekstrarútgjöldum og nauðsynlegum framkvæmdum og ekki útlit fyrir, að neitt verði afgangs til að verðbæta afurðir, hvort sem er til sölu innan lands eða til útflutnings. Ef slíkar greiðslur eiga að halda áfram næsta ár, verður ekki hjá því komizt að afla nýrra tekna í því skyni með einhverjum hætti. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir, hversu mikil útgjöld frv. það, sem hér liggur fyrir, muni færa með sér yfir á ríkissjóð, og hvernig unnt er að inna þau af hendi.
Meðalslátrun undanfarandi 10 ára mun vera um 5500 tonn. Ekki er varlegt að gera ráð fyrir meiri kjötneyzlu í landinu en 4000 tonnum. Þyrfti þá að flytja út 1500 tonn. Samkvæmt áliti sex manna nefndarinnar 1943 er gert ráð fyrir, að bændur fái kr. 6,82 fyrir hvert kg. Kjötverðlagsnefnd telur nú, að kostnaður á hvert kjötkg sé kr. 2,04, sem þarf að bætast við verðið til bænda. Er þá verðið í heildsölu um kr. 8,86 kg. Við það bætist svo smásöluálagning 13%. Ef unnt á að vera að selja kjötið á kr. 6,50 í smásölu eins og nú er gert, verður ríkissjóður að greiða kr. 3,10 með hverju kg, sem selt er innan lands.
Fyrir 4000 tonn er framlagið .... kr. 12,400 þús.
Fyrir útflutningskjöt fékkst í fyrra
kr. 5,40 fyrir kg. Ef talið er, að
það verð fáist aftur í ár, eru uppbætur
á 1500 tonn útflutt kr.
3,46 pr. kg .................... – 5,190 –
—Samtals kr. 17,590 þús.
Ef minna fæst fyrir útflutninginn, hækkar þessi tala enn.
Ef gert er ráð fyrir, að þessi áætlun standist, þá þarf eins og áður er sagt til verðuppbótar á kjöti frá 15. sept. 1944 til sama tíma 1945, í 12 mánuði ..................... kr. 17,590 þús. og á sama tíma fyrir mjólk .... — 3,960
Samtals kr. 21,550 þús.
Ríkisstjórnin hefur gert ráð fyrir því í sambandi við frv. sitt um dýrtíðarráðstafanir að geta haldið áfram verðbótum til áramóta á sölu kjöts og mjólkur innan lands, eins og þær voru fyrir 15. sept., en það var talið, að væri að meðaltali um ein milljón króna á mánuði, en getur vel orðið meira. Að vísu er þar reiknað með einnar krónu lægri kostnaði á hvert kg kjöts en kjötverðlagsnefnd telur nú, að greiða beri. Sá kostnaður mundi hækka framlagið um 11/2 millj. kr. til áramóta, og skal það því tekið með. Ríkisstjórnin mundi því hafa reiknað með, að greiða þyrfti samtals með kjöti til áramóta um .........kr. 5,000 þús. og með mjólk ..............— 1,200 eða samtals um kr. 6,200 þús.
Þetta hefur ríkisstjórnin gert sér von um að geta greitt af tekjum þessa árs, en fyrir því er þó alls engin trygging.
Ef talið er nú, að ríkissjóður hafi þetta fé handbært fyrir áramótin, þá er sýnilegt, að til þess að standast þær greiðslur til 15. sept. 1945, sem ríkissjóði er ætlað að inna af hendi samkvæmt frumvarpinu, vantar 15 milljónir kr. Ég tel ekki nokkra von til, að hægt sé að taka þessa fjárhæð inn í fjárlög næsta árs, nema nýjum tekjum sé jafnframt bætt inn. Væri þá varla um annað að ræða en nýja skatta og þá helzt hækkun á tekjuskatti. Til þess að ná nefndri fjárhæð, tölulega séð, þyrfti að hækka tekju- og eignarskattinn um 60%. Hvort það væri gerlegt, er vafamál. Það mundi vera skattur á tekjur, er næmi frá 3% upp í 30%.
Væntanlega tekst flokkunum með góðum vilja að leysa þann vanda, sem hér hefur verið bent á, án þess að stofna fjárhag og afkomu ríkisins í hættu.
Að endingu get ég ekki varizt að vekja athygli á því, að sú leið, sem flokkarnir með frv. þessu hafa valið til að halda verðbólgunni í skefjum, er nákvæmlega sú sama, sem flokkarnir í nærri tvö ár hafa verið sammála um að fordæma, meðan ríkisstjórnin fór þessa leið, þá leið að halda verðbólgunni að nokkru leyti í skefjum með framlögum úr ríkissjóði. Sá er munurinn, að fjárframlög þau, sem hér er gert ráð fyrir, eru miklu hærri en ríkisstjórnin hefur greitt til þessa.