28.09.1944
Neðri deild: 57. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1556 í B-deild Alþingistíðinda. (4201)

148. mál, dýrtíðarráðstafanir

Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti. — í ræðum nokkurra hv. þm., og þá sérstaklega þeirra hv. 2. þm. Rang. (IngJ) og hv. þm. Siglf. (ÁkJ), var nokkuð minnzt á möguleika til myndunar nýrrar stjórnar. Er því rétt að minnast nokkuð á það atriði.

Í sambandi við tilraunir Alþ. til lausnar dýrtíðarmálanna og þá einnig þann þátt, er hér liggur sérstaklega fyrir til umr., hefur mikið verið rætt og ritað um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Sú stjórn, er fyrir tæpum tveimur árum var skipuð af ríkisstjóra án þess að eiga stuðning þingsins, hefur sagt af sér og gegnir nú störfum, þar til ný stjórn er mynduð. Alþfl. var því mjög andvígur, að farið væri inn á þær brautir um skipun ríkisstjórnar, er gert var í desember 1942. Hann taldi sjálfsagt, að þeir flokkar, sem skyldastar hafa skoðanir, reyndu að mynda ríkisstjórn. En það tókst ekki. Þá var bæði reynt að mynda stjórn allra flokka í sameiningu og einnig vinstri stjórn, þ.e. stjórn Alþfl., Framsfl. og Sósfl. Þessir þrír fl. höfðu allir gefið út dægurmálastefnuskrá, þar sem gætti mjög líkra sjónarmiða í mörgum atriðum. En það varð ljóst, að kommúnistar óskuðu þá ekki eftir að ganga í vinstri stjórn, og e.t.v. sízt með Alþfl. og Framsfl. Það varð því ekki úr neinni myndun ríkisstjórnar, er hefði stuðning meiri hl. þings. Má vafalaust með nokkrum rökum leggja Alþ. það til lasts, að því hefur ekki tekizt að mynda meiri hl. stjórn. En það skyldu þá kjósendur hafa í huga, að þeir hafa skipað Alþ. að flokkum til á þann veg, sem nú er, en það hefur aftur leitt til ástands þess, er ríkir.

Alþfl. hefur frá upphafi miðað afstöðu sína til ríkisstjórnar einungis eftir málefnum. Hann veitti hlutleysi stjórn Framsfl. á árunum 1927–1931, til framkvæmda á ákveðnum umbótamálum. Hann tók þátt í stjórn með Framsfl. árin 1934–38, og var sú stjórn byggð á ýtarlegum og ákveðnum málefnagrundvelli. Hann tók einnig þátt í samstjórn þriggja flokka 1939–42, einnig á grundvelli ákveðinna og mikilsverðra málefna, er áður var um samið. Hann hefur einnig í öll skiptin orðið að hverfa frá stjórnarsamstarfi vegna skýrs og ákveðins málefnaágreinings. — Umræður um stjórnarmyndun hafa af Alþfl. hálfu einungis snúizt um málefni, er skapað gætu raunhæfan grundvöll fyrir stjórnarsamstarfi. Og Alþfl. getur ekki tekið þátt í stjórn með öðru móti en því, að samið sé um málefni, þar sem úrlausn þeirra sé svo nálæg sjónarmiðum flokksins, að hann teldi, að búast mætti við raunhæfum aðgerðum, en ekki kyrrstöðu og óheilindum. En sá grundvöllur með samstarfi meiri hl. þings hefur ekki fundizt enn, hvað sem síðar kann að verða.

Það mál, sem hér liggur fyrir til umræðu, er aðeins einn þáttur bráðabirgðalausnar á dýrtíðarmálunum. Alþfl. tekur afstöðu til þess máls án tillits til þess, er kann ofan á að verða um stjórnarmyndun. Hann er ekki sammála Sameiningarflokki alþýðu, sósíalistaflokknum um það að vera með frv. þessu, ef hann fái að fara í stjórn, en annars á móti því, — en þessi skoðun kom fram í aðalmálgagni þess flokks, Þjóðviljanum, í gær, þar sem eftirfarandi klausa er skráð í ritstjórnargrein:

„Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Sósfl. er andvígur útflutningsuppbótum, og hann telur, að niðurgreiðslan á landbúnaðarafurðum á innlendum markaði leysi engan vanda. En þrátt fyrir þetta mun flokkurinn fallast á þessar aðferðir, ef það er nauðsynlegt til þess að komið verði á stjórn ... Hvað Sósfl. snertir er þetta atriði því útrætt, og spursmálið um verðlag landbúnaðarafurða þarf ekki að hindra samvinnu flokkanna um ríkisstjórn.“

Nú hafa menn heyrt ræðu hv. þm. Siglf. (ÁkJ), þar sem hann gat um það frá sínu sjónarmiði séð, hversu geigvænleg villa hefði verið gerð á búnaðarþingi og til hagsbóta aðallega fyrir framleiðendur á kindakjöti, en gegn þeim bændum, sem aðallega stunda mjólkurframleiðslu. Og hann komst að þeirri niðurstöðu, að þetta samkomulag búnaðarþings væri öllum til óþurftar.

Þessi sami hv. þm. var að tala um tvískinnung hjá öðrum flokkum. En ég veit ekki, hvað á að kalla þetta, að telja þessar aðgerðir búnaðarþings stórhættulegar og stórvítaverðar þjóðhagslega séð, en vera reiðubúinn að vera með þeim, ef sami flokkur kemst í stjórn. Mér virðist, að um þetta megi segja það sama og gamall stjórnmálaþulur á Austurlandi sagði eitt sinn — að vísu í öðru sambandi: „Þetta er gymnastikk, sem hlýtur að mistakast.“

Þótt meiri hl. Alþ. afgreiði það mál, er hér liggur fyrir, e.t.v. með óánægju margra, er þó frá sjónarmiði Alþfl. séð ekki ráðið fram úr mörgum vandaanálum, er úrlausnar krefjast á næstu tímum, og þá m.a. afgreiðslu fjárl. og öflun tekna til nauðsynlegra framkvæmda. Hljóta þá þeir, er vildu standa saman að ríkisstjórn, að komast að samkomulagi um þau málefni.

Alþfl. gerir sér það vel ljóst, að í nánustu framtíð eru mikilsverð tímamót í stjórnmálum, bæði hér á landi og í álfunni yfirleitt. Þegar ófriðnum lýkur, taka við nýir tímar. Íslendingar hafa sloppið við mestu ógnir ófriðarins, þó að ekki verði því gleymt, að hin hrausta sjómannastétt hefur goldið tilfinnanlegt afhroð af völdum stríðsins. En hér hefur safnazt í landinu mikill auður, meiri en nokkru sinni fyrr. Afkoma meginhluta verkamanna og sjómanna hefur verið góð hin síðustu ár. Sama og ekki síður er hægt að segja um bændastéttina. Og margir atvinnurekendur í stórútgerð, verzlun og öðrum atvinnugreinum hafa safnað stórfé. En atvinnutæki landsmanna eru of fá, úr sér gengin og ekki í samræmi við hina stórauknu tækni og framfarir í vélamenningu síðustu tíma. En þetta skapar ríka þörf nýskipunar. Og verulegur hluti auðmagns er til í landinu til uppbyggingar. Hinni réttlátu kröfu hins vinnandi lýðs um að hindra með öllu atvinnuleysi verður og þarf að fullnægja. En til þess þarf að taka upp skipulagsbundnar framkvæmdir og framleiðslu eftir áætlun (planökonomi). Tvær heimsstyrjaldir á síðustu áratugum hafa leitt það í ljós, að hægt er að útrýma atvinnuleysinu, ef framleiðslu- og dreifingarhættir eru skipulagðir af skynsemi. En það verður ekki gert til hlítar nema með opinberri íhlutan. En framleiðsluna verður að skipuleggja þannig, að hún samræmist þörfum þjóðarinnar og sé miðuð við markaðsskilyrði. En til þess, að það geti orðið, þarf án efa að koma upp nýtízku framleiðslutækjum, ekki hvað sízt með nýjum skipum til fiskveiða, aukningu og nýskipun á verksmiðjum í fiskiðnaði, bættum og auknum skipasmíðastöðvum og vélaverksmiðjum. Og hvað landbúnaðinn snertir er þörf mjög aukinnar tækni, nýrra véla og áburðarverksmiðju. En þetta er ekki hægt að framkvæma til fullnustu án íhlutunar og aðgerða ríkisvaldsins. En í þessu skipulagi getur hið frjálsa framtak notið sin innan vissra takmarka háð eftirliti, með það fyrir augum, að hagur einstaklinganna verði að víkja fyrir heill fjöldans. Og allt þetta eru engir draumórar eða skýjaborgir. En til alls þessa þarf lýðræðisleg og sterk samtök vinnustéttanna í landinu. Það þarf samstarf bænda og verkamanna, mótað af félagshyggju og skilningi. Til þess dugar engin stjórn sundurleitra afla, þar sem togað er í skæklana á alla vegu og allt endar með kyrrstöðu. Það þarf þvert á móti stjórn lýðræðissinnaðra, framsækinna manna, er skilja hinn nýja tíma og miða störf sín við þjóðfélagslega heill án þröngra stundarfríðinda einstakra gróðamanna og sérhagsmuna. Verklýðshreyfingin á grundvelli lýðræðis og félagslegra umbóta hlýtur að verða sterkur og nauðsynlegur þáttur í þessu mikilsverða starfi framtíðarinnar.

Alþfl. vill fyrir sitt leyti eiga þátt í lausn þessara mikilsverðu verkefna. Hann er reiðubúinn til samstarfs við þau önnur lýðræðisöfl þjóðfélagsins, er hafa skilning, skoðun og heilindi til slíkra skipulagsbundinna framkvæmda, þar sem þjóðarbúið sé rekið með skynsemi, festu og réttlæti.