28.09.1944
Neðri deild: 57. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (4202)

148. mál, dýrtíðarráðstafanir

Sveinbjörn Högnason:

Herra forseti. — Baráttan við dýrtíðina hér á landi er orðin jafnlöng og styrjöld sú, sem nú stendur og aðrar. þjóðir heyja umhverfis okkur gegn frelsisráni, kúgun og tortímingu. Sífelldar sigurfregnir hafa verið að berast undanfarið, sem boðað hafa hinum undirokuðu, að lausnarstundin sé komin eða sé í nánd.

En af baráttu okkar við ægilegasta skemmdarafl styrjaldaráranna hér á landi, dýrtíðina og verðbólguna, sem stríðið hefur í för með sér, hafa fáar sigurfregnir borizt til þessa. Eigum vér þar þó að mestu við sjálfa oss að eiga. Dýrtíðin hefur tútnað út ár frá ári, þrátt fyrir milljónir, sem henni hafa verið fórnaðar, þrátt fyrir stór orð og sterkar ályktanir, þrátt fyrir alla samninga, blíðmælgi og kjass.

Sumir hafa jafnvel litið til hennar hýru auga, að hún flytti fríðindi og fleiri og fleiri krónur með sér, og aðrir hafa mælt henni bót, þegar verst gegndi, til að geta komið fram annarlegum áformum um völd eða aðstöðu, líkt og Sæmundur á selnum forðum, og er varla tími til að rekja þá raunasögu hér að þessu sinni. þó að full ástæða væri til þess. En það gefst sjálfsagt tækifæri til að gera það síðar.

Nú mun þó vera svo komið, að öllum hugsandi mönnum er farið að skiljast. að lengra verður ekki áfram haldið, ef varanlegt tjón á ekki af að hljótast fyrir allar stéttir og þjóðina í heild. Gælur, athafnaleysi og gróðavon er hér ekki lengur um að ræða fyrir neinn einstakling eða stétt, heldur tap og tjón og smán fyrir alla, því lengra sem haldið er á þessari braut. Fram undan blasir ekki annað, ef ekkert er að gert, en að þjóð vor bíði fullnaðarósigur um lausn síns fyrsta alvarlega innanlandsmáls, eftir að hún er alfrjáls orðin, og stefnt beint í fjárhagslegt og atvinnulegt hrun, samhliða því sem aðrar þjóðir fagna frelsi og sigri í þeirri ægilegu eldraun. sem yfir þær hefur gengið. Það er ekki leiðinleg byrjun fyrir hið unga lýðveldi.

Þjóðinni hefur borizt mikill auður í hendur á fáum árum, meðan öðrum hefur blætt, svo að nú er hún auðugri af veraldarauð en nokkru sinni fyrr í sögu sinni. Og þó verður að segja það eins og er, að hún er nú sennilega nær fjárhagslegu og atvinnulegu hruni, ef dýrtíðin væri látin hafa sinn gang, heldur en á mestu kreppu- og skuldaárunum, sem yfir hana gengu og mörgum hefur orðið tíðrætt um. Nokkur hundruð milljónir, sem nú eru í erlendum innstæðum, verða fljótar að hverfa. Þær hverfa fljótar en þær komu, ef þjóðin ætlar að treysta á þær sér til framfæris í stað atvinnulífs síns og framleiðslu. Ef oss tekst því ekki að treysta gang og afkomu atvinnuveganna, þannig að vér verðum samkeppnisfærir við þær þjóðir, sem brátt taka að sinna sömu störfum og vér og keppa um sömu markaði, eftir að vopnin eru kvödd, þá verða örlög vor næstu árin lík og örkumla manns, sem að vísu á innstæður nokkrar, en hefur misst starfsorku sína til að sjá sér og sínum farborða.

Það er engin þörf að lýsa því máli, sem dýrtíðin óheft talar til allra nú, sem vilja heyra. Það hafa aðrir gert nægilega skýrt hér á undan mér í kvöld og áður. Það nægir að benda á það, að enginn mun vilja taka á sig ábyrgðina lengur að láta dýrtíðina lausa nú. Jafnvel þeir, sem áður hafa gert gælur við hana, og þeir, sem jafnvel óska fullkomins hruns og upplausnar í fjárhags- og atvinnulífi þjóðarinnar, af einhverjum annaxlegum ástæðum, munu vart vilja vera lengur við hækkun dýrtíðarinnar kenndir. Og víst er um það, að enginn mun vera fáanlegur lengur til að sitja eða setjast í ráðherrastólana til að stjórna út í hið fyrirsjáanlega hrun fjármála- og atvinnulífsins, ef ekkert er að gert. Þetta eitt ætti að vera nægileg bending þeim, sem máske vilja enn ekki sjá.

Þá er hagur ríkissjóðs þannig, eins og bent hefur verið á, að hann verður að skera stórum niður allar verklegar framkvæmdir og fella alveg niður allar dýrtíðargreiðslur, ef hann á að standast útgjöld sín, þau, er nú eru, miðað við að greiða vísitöluna 250, en hún er þegar 272, eins og kunnugt er. Það er því valt, svo að ekki sé meira sagt, að tala um mikilvægar tryggingar hjá slíkum sjóði fyrir atvinnuvegina, þótt einhverjar samþykktir fengjust um framlög þaðan. ef stórauknar tekjur fást ekki um leið og trygging fyrir því, að framlög fáist og örugg framkvæmd til að halda vísitölunni niðri. Ella munu öll framlög, hversu há sem þau væru, til atvinnuveganna, verða blekking ein og verra en það.

Ég sé t.d. ekki, hvaða gagn bændum er í dálítið hækkuðu afurðaverði, ef vísitala framfærslukostnaðar eykst margfalt meira en því nemur, meðan það hækkaða verðlag er í gildi. Ég fæ ekki heldur séð, hvert gagn verkamanninum eða launamanninum er í því að fá hækkað kaup, ef hækkun þess og vísitölunnar veldur því. að atvinna þeirra rýrnar stórum og atvinnuöryggi allt og þeir verða fleiri og fleiri að fara að ganga auðum höndum. Og ég fæ ekki heldur séð, hvert gagn gróðamanninum er í því að safna fleiri krónum. ef gildi þeirra minnkar í hlutfalli við fjölgunina eða meira en það. Öll slík vinnubrögð og ráðstafanir til þeirra eru hrein Kleppsvinna, og engum hægt að telja trú um, að sé á neinu viti byggt. nema þeim einum, sem stríðsgróðinn og hin mikla velta stríðsáranna hefur gert staurblinda fyrir öllu öðru en hækkandi tölum. En afleiðing hinna hækkandi talna er eyðing þeirra verðmæta, sem fengin eru, og leiðir fyrr eða síðar til fullkomins hruns.

Hér verður því að stinga fótum við, og ég hygg, að allir séu sammála um. að komin sé ellefta stund til að gera það. Þingið er áfellt leynt og ljóst fyrir að geta ekki myndað ríkisstjórn og leyst allan vanda þegar í stað. En sannleikurinn er sá, að allar ráðstafanir, sem það hefur reynt að gera eða einhver hluti þess, hafa verið affluttar og eyðilagðar í framkvæmd af þeim sömu mönnum, sem harðast dæma. Allir hafa heimtað áframhald kapphlaupsins fyrir sig, verkamenn hærri laun, framleiðendur hærra verð og gróðamenn og milliliðir meiri gróða og minni hömlur og skatta. En nú er það sannast mála, að hvert það þing og hver sú ríkisstjórn, sem slíkum kröfum vildi lengur þóknast, væri vitandi vits að leiða þjóð sína á helleiðir.

Hér eiga aðallega þrjár hagsmunaheildir þjóðfélagsins hlut að máli. Og allar hafa þær viljað hafa sinn hlut sem mestan, eins og mannlegt er. Það eru framleiðendur til lands og sjávar, það eru verkamenn og launþegar, og það eru eigna- og gróðamenn. Kapphlaupinu um stríðsgróðann er áreiðanlega að verða lokið. Nú hefst kapphlaupið um það að tryggja það, sem fengið er. Framleiðendur þurfa að tryggja atvinnurekstur sinn, verkamenn og launþegar þurfa að tryggja atvinnu sína, og eignamenn þurfa að tryggja verðmæti sín. Og enginn getur fengið þá tryggingu, sem hann þarf, nema hagur þjóðarheildarinnar sé tryggður fyrst og fremst. Ella eiga allir á hættu að tapa öllu. Eðlilegast væri, að framlög þessara aðila allra til tryggingar sér og þjóðinni væru að nokkru í hlutfalli við það, hverjir eiga mest á hættu, ef hrunadansinum er áfram haldið til enda. Er þá ekki að efa það, að fyrst kemur röðin að þeim, sem peningana eða innstæðurnar eiga. Fjárhagslegt hrun eyðir þeim með öllu, og áframhaldandi vísitöluhækkun lækkar fyrst kaupmátt þeirra. Nægir þar að benda til, hversu farið hefur um innstæður þeirra, sem áttu þær áður en kapphlaupið hófst. Vinna verkamannsins og framleiðslutæki og bústofn atvinnurekandans munu hins vegar jafnan verða nokkurs virði, einnig eftir að hrun væri gengið yfir.

Þó að þessu sé þannig farið, hafa þó hér sem oftast hinir síðustu orðið fyrstir. Bændur landsins hafa hvað eftir annað boðið fram hlutfallslega lækkun. Og þegar því hefur ekki verið sinnt, heldur dýrtíðaraldan verið notuð beinlínis til að níðast á þeim og rétti þeirra, þá bjóðast þeir nú til að ganga í fremstu víglínu og færa fyrstu fórnirnar, til þess að íslenzka þjóðin geti umflúið hinn vansæmandi ósigur fyrir sjálfri sér í dansi kringum gullkálfinn, þar sem hún mun ranka við sér á eyðimörku hér um bil samtímis því, sem aðrar þjóðir umhverfis hana rísa til frelsis og endurreisnar, er martröð harðstjórnar og hernaðar er af þeim létt.

Frumvarp þetta, sem hér liggur nú fyrir, er máske annar merkilegasti viðburðurinn í löggjöf þessa árs og mun vissulega verða talið það, ef það verkar eins og til er ætlazt af þeim, sem mest hafa að því unnið. Öllum var ljóst, að stofnun lýðveldis á Þingvöllum 17. júní s.l. væri nafnið eitt, ef þjóðin ætti ekki þegnskap, þjóðhollustu og manndóm til að færa þær fórnir, sem þörfin krefur, þegar sameiginleg hætta steðjar að. Vér erum að vísu bardagafúsir, Íslendingar, eins og forfeður vorir, og er það ekki nema gott, þegar við á og við viljum útrýma órétti og jafna sakir okkar á milli. En við ættum líka að hafa lært það af forfeðrunum, að það er háskalegt að geta ekki snúizt sameiginlega til varnar, látið deilur og óuppgerðar sakir hvíla í bili, ef þjóðin öll er í hættu, jafnt fátækir og ríkir, þeir, sem góða hafa aðstöðu og illa.

Ég fagna því, að frumvarp þetta er fram komið sem fyrsta sáttatilraun í deilu þeirri, er yfir stendur, og ég fagna því, að þeir urðu fyrstir, sem ég tel mig fulltrúa fyrir, þó að þeim hafi ekki borið skylda til öðrum fremur. Menn mega kalla það búhyggindi af bændum að afsala sér stundarhag til að tryggja sjálfa sig og þjóðina alla gegn bráðum voða. Það álita líka sjálfsagt margir bændur, að svo sé. En eru það þá ekki líka búhyggindi af launþegum og verkamönnum, eignamönnum og gróðamönnum að gera slíkt hið sama og feta í fótspor bændanna í þessum efnum? Og víst er um það, að fyrir þjóðina alla eru það búhyggindi hin mestu. Og ef aðrir halda, að þetta sé ávinningur fyrir bændur, því vilja þeir þá ekki einnig taka slíkan ávinning sér til handa, gleyma einhverju af stundarhagsmununum og horfa lengra fram í tímann en til næsta dags?

Það, sem gert er með þessu frumvarpi, er gert í því örugga trausti, að aðrir komi á eftir í slóðina, verkamenn og launþegar slái af kröfum sínum í bili, stöðvi stríðið og snúist á sveif með þeim öflum, sem vilja vinna að því að styrkja og efla atvinnuvegi okkar til samkeppninnar út á við, sem nú er á næsta leiti. Og það er einnig gert í þeirri von, að þeir, sem fjármunina eiga mesta. vilji leggja fram það fé, sem með þarf til að snúa við straumi dýrtíðarinnar þannig, að stefnubreytingin þurfi ekki að mæða of þungt á hinum aðilunum tveim, vegna of snöggra umskipta og óþæginda, sem þar af leiðir.

Það er ætlazt til þess af þeim, sem að þessu standa, að fjárframlög fáist til að tryggja hag og skuldbindingar ríkisins, og það er ætlazt til þess einnig, að örugg framkvæmd þessara mála verði tryggð með stuðningi Alþ. Ef einhverjar af þessum vonum bregðast, sem þannig fylgja frá fulltrúum bændanna, kapphlaupinu haldið áfram af hinum aðilunum og hrun því ekki umflúið, þá geta þeir, sem mest hafa áfellzt bændur hingað til, snúið geiri sínum annan veg og athugað sinn eigin hlut í því, sem á eftir kemur. Bændur munu þá verða knúðir til að taka þátt í þeim dansi til enda, og þeir munu þá bæði hafa lagalegan og siðferðilegan rétt og það sterkari og meiri en nokkru sinni fyrr.

Þau átök, sem hér eru fram undan. eru gerð til þess að bjarga í bili þeim verðmætum, sem styrjöldin hefur skolað hér á land, og það eru þau búhyggindi, sem brýnust og sjálfsögðust eru nú. Þegar það hefur áunnizt og við stöndum jafnfætis öðrum þjóðum í samkeppni um markaði og viðskipti, þá verður fram að fara það eðlilega eignauppgjör, eignajöfnun og uppbygging nýs atvinnulífs og framfara, sem nú vantar samhug og samstarf til að framkvæma á Alþ. Við verðum að tryggja, að þessi verðmæti verði ekki að engu vegna áframhaldandi verðbólgu, og ef það tekst, er engin hætta á því, að þjóðin vitkist ekki til að nota þau sér til hagsældar, framfara og nýrrar sóknar í menningar- og athafnalífi sínu.

Með frumvarpi þessu hafa bændur lagt fram sinn skerf og segja nú við hina, sem sameiginlega hagsmuni eiga með þeim um, að vel takist : „Eftir er enn yðvarr hlutur.“

Því spyrja menn nú: Hvað gera aðrar stéttir? Ætla t.d. verkamenn að halda áfram vinnustöðvunum og kröfum um hækkað kaupgjald, jafnvel þeir, sem hafa miklu hærri árstekjur en sem nemur meðaltekjum bændanna? T.d. þeir, sem nú hafa gert verkfall við eitt fyrirtæki hér í bænum, en höfðu í árstekjur s.l. ár frá 16600 kr. upp í 27 þúsund kr.? Telja verkamenn, að þetta muni reynast hollt þjóðfélaginu í heild og þeim sjálfum? Mun það leiðin til að skapa atvinnuöryggi. tryggja öllum vinnu og lífvænlega afkomu? Hvað mundi fyrirtæki þeirra lengi geta veitt þeim það, þegar taka þarf upp samkeppni við aðrar þjóðir á mörkuðunum?

Eða ætla verkamennirnir að taka sömu stefnu og bændurnir, slá af kröfunum til þess að tryggja heilbrigt samkeppnisfært atvinnulíf og þar með sína eigin framtíð? Ætla þeir að viðurkenna í orði og verki þá staðreynd, að til þess að unnt sé að sjá öllum verkfærum mönnum fyrir stöðugri vinnu, þurfa verkalaunin að miðast við það, hvað framleiðslustarfsemin gefur af sér?

Enn fremur verður spurt: Hversu fúsir verða fulltrúar eigna- og gróðamanna til að leggja fram og sætta sig við álögur, sem með þarf til að framkvæma það, sem hér er gert ráð fyrir, að afstýra frekari vexti dýrtíðarinnar og standa undir þeim niðurgreiðslum. sem til þess þarf?

Þannig er spurt um land allt, og menn bíða óþreyjufullir eftir svörum.

En nú er ekki hægt að svara með orðum einum, heldur verkum. Það verða menn að gera sér ljóst. Þeir, sem hér eftir, meðan þessi barátta er háð til lokasigurs, gera ekki annað , en að auka kröfur sínar um fé og fríðindi, eru í blindni leiddir af leiðtogum og forsvarsmönnum, sem hafa allt annað í huga en að sigrast á þeim sameiginlega óvini, sem nú er við dyr íslenzku þjóðarinnar. Og þeir hafa illt í huga, hversu fagurlega og friðvænlega sem þeir tala.

Viljinn til samvinnu verður frá þessum degi mældur eftir því, hvað menn sýna í verki við að fórna og slá af þrengstu hagsmunakröfum sínum og fríðindum til að skapa grundvöll fyrir heilbrigt atvinnu- og fjárhagslíf eftir iðuköst styrjaldaráranna og vímu stríðsgróðans.

Hér eftir verðum við að keppast við að færa þær fórnir, sem þjóðin þarf til að tryggja fjárhagslegt og atvinnulegt frelsi sitt og sjálfstæði. Enn er tími til þess, ef viljinn er fyrir hendi.

Hver ætlar að skerast úr leik?