09.10.1944
Neðri deild: 61. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1576 í B-deild Alþingistíðinda. (4212)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti. — Alllangt er um liðið, síðan ég kvaddi mér hljóðs, og þau ummæli þm. tekin að fyrnast, sem ég hugði að ræða, en aðalatriðið fyrir mér var hitt að gera grein fyrir meginafstöðu minni til málsins. Það mun þm. kunnugt frá því, að þessi mál hafa fyrr verið hér rædd, að ég hef jafnan verið móti því, að ríkissjóður keypti niður vísitöluna. Menn hljóta að sjá, að það er í aðalatriðum sama, hvort neytendur greiða verð vöru allt eða þeir greiða part af því beint, en ríkissjóður tekur hinn hluta verðsins með tollum og sköttum og útdeilir síðan til framleiðenda. Það er eintóm blekking, að með því sé verið að lækka dýrtíðina, þetta er ekkert annað en að kaupa niður vísitöluna. Það getur náttúrlega munað nokkru fyrir ýmsar framleiðslutegundir, hvort vísitalan er há eða lág, en að lokum verður það alltaf framleiðslan í landinu, sem ber þunga dýrtíðarinnar, alveg jafnt hvort vísitölu er hagrætt eða ekki.
Ef það er rétt, sem flestir álíta, að dýrtíðin sé böl, þá er hitt rétt, að þjóðin gerir frekar einhver átök til að fá dýrtíðina lækkaða raunverulega, ef ekki er hylmað yfir ástandið með vísitölulækkun. Nú hygg ég allir séu sammála um, að það sé gersamlega ófær leið að ætla að halda lengi áfram að greiða milljónatugi árlega úr ríkissjóði til vísítölulækkunar. það sé aðeins gert til bráðabirgða. En meðan þetta handhæga ráð er haft til að fresta því að takast á við sjálfa dýrtíðina, hef ég enga trú á, að það verði reynt af neinni alvöru. Reynslan er þar búin að sýna sig.
Þrátt fyrir fullvissu allra þm. um, að þetta er ekkert frambúðarúrræði, hagar þingið sér enn eins og gera eigi niðurborgunina að viðvarandi reglu. Mér hefur virzt af umr., að erfitt sé að fá menn til að tala um þessi mál í fullri alvöru. Það, hvort þm. er með eða móti niðurborgun, er haft fyrir einhvern mælikvarða á það, hvort hann sé vinur sveitanna eða óvinur. Þótt þeir, sem með eru, þekki e.t.v. ekki laut frá þúfu né kind frá geit, eru þeir svo skilningsgóðir og miklir bændavinir, að framar verður ekki komizt, en allir, sem andæfa þessari aðferð, eiga að vera fjandmenn sveitanna. Af sömu hálfu er sagt, að niðurborgunin sé eingöngu gerð fyrir neytendur. Ég veit ekki, nema svo langt megi komast í sveitavináttu að segja, að uppbót á útfluttar gærur t.d. sé neytendastyrkur. Það sama, sem heitir neytendastyrkur í sveitum. heitir bændauppbætur annars staðar. Sannast er það, að um hvort tveggja þetta er að ræða, en ekki um annað hvort.
En höfuðatriðið er þetta: Er ríkissjóður fær um að borga þetta? Ég tel það gersamlega ósæmilegt fyrir þm. að afgreiða l. um framlög úr ríkissjóði vitandi það, að fé er ekkert til þeirra og jafnvel verður ekki fáanlegt. Nú liggur fyrir fjárlagafrv., þar sem dýrtíðargreiðslurnar eru náttúrlega ekki teknar með, en þó er frv. svo hæpið, að það mun koma frá fjvn. með nokkurra millj. kr. tekjuhalla, þótt hún gæti nokkru meira hófs en að undanförnu. Svo bætast þar við hækkanir, sem einstakir þm. geta fengið samþ. Ekki er hægt að vita, hve miklu þær uppbætur muni nema, sem hér ræðir um, en fjmrn. telur eftir reynslu fyrri ára, að þær muni leika á 22–25 millj. kr. á næsta ári, þó þannig, að gert sé ráð fyrir, að útflutt ull seljist án þess, að verðbæta þurfi, því að um skeið hefur verið von um það hátt verð fyrir hana. Síðan hefur hæstv. atvmrh. látið það í ljós, að ullin sé ekki seljanleg nú, nema með henni yrði að greiða 6–7 kr. Þetta er engin ágizkun, heldur alveg rétt, en það er bara óvíst, hvort ullin verður geymd, og hvernig hún selst þá síðar.
En það verður að gera ráð fyrir þessum halla, og mér skilst, að það, sem ríkissjóði er ætlað að greiða, sumpart í bætur og sumpart til að færa niður neyzluverðið á landbúnaðarafurðum, nemi nál. 30 millj. kr.
Enn er einn gildur liður ótalinn í fjárl. til greiðslu á næsta ári, nefnilega um 18 millj. kr. vegna alþjóðastarfsemi. Það vantar fé í ríkissjóðinn fyrir þessum 30 millj. og 18 millj., og þar að auki er tekjuhalli á frv., sem nú liggur fyrir. Þetta verða alls yfir 50 millj. kr. Nú er talað um það að sjálfsögðu, að það þurfi að hugsa um tekjuöflun. en ég held, að hv. þm. hafi ekki gert sér grein fyrir, hvað upphæðin er gífurleg. Ný tekjuöflun á einu ári getur ekki bætt hana upp.
Það hefur verið rætt um sérstakan eignarskatt, þó að flestir hafi víst komizt að þeirri niðurstöðu, að sú leið sé ekki fær. Mér skilst aðallega vera til þess hugsað að leggja einhvern viðauka á tekjuskattinn, en hann er nú áætlaður í frv. 21 millj. kr., en 18 millj. í fyrra. Þ. færði hann upp, og ég ætla, að bæði stj. og þm. þyki þar teflt á tæpasta vaðið. Þó að viðauki yrði lagður á tekjuskattinn, yrði sá viðauki ekki meiri en 25%, en það eru aðeins 5 millj. kr. M.ö.o., með þessari leið, sem mörgum mun þó sýnast torsótt, mundu aðeins fást 5 millj. kr., en ekki þær 50 millj., sem vantar. Ég held, að þetta sýni allgreinilega, að hverjar hliðar, sem eru á uppbótamálinu að öðru leyti, þá blasir þarna við ein hlið, sem gerir að verkum, að ástandið er ófært. Þm. hafa ekki siðferðilega heimild til að gefa slíkar ávísanir á ríkissjóð. Ef slíku fer fram, að 50 millj. kr. tekjuhalli sé í fjármálum okkar, jafnvel þótt eitthvað sé klórað í bakkann með nýjum sköttum, leiðir það ekki til annars en ríkisgjaldþrots, en ég trúi ekki, að þm. telji það sæma sér eða að þeir hafi til þess umboð frá kjósendum sínum að gera slíkar ráðstafanir.
Ég hef heyrt, að einn af samningamönnum okkar hafi sagt, að þetta sé ekkert, það sé hægt að borga það með síld. Það eru mér ný vísindi, að ríkissjóður eigi síld, og mér er líka sagt, að það sé talinn óþarfi fyrir fjvn. að taka þessar 18 millj. kr. í fjárlög, því að það verði einhver önnur ráð, t.d. þau, að Landsbankinn borgi þetta. Mér er ekki kunnugt um, að Landsbankinn sé svo ríkur, enda voru þessar skuldbindingar ekki gerðar fyrir hönd bankans. Ríkíssjóður á að greiða þetta, en getur það ekki. Leiðin er engin, nema afla þessa með sköttum, eða að ríkissjóður taki það að láni, og þá blasir við skemmtilegur árangur af starfi okkar þm. Um stríðsárin hafa flestir landsmenn borgað sínar skuldir niður. Ríkissjóður einn með sína ágætu ráðsmennsku á að fara út úr stríðinu með skuldabagga. Þegar erfiðu árin koma, getur ríkissjóður svo enga hjálparhönd veitt, því að þá er hann að kafna í skuldum. Þetta er ósæmilegt.
Það er ýmislegt fleira, sem vert væri að minnast á í sambandi við milligjafirnar. Ég veit ekki, hvort menn hafa tekið eftir því, að við höfum haft mikla og merkilega stræku í 3 ár: eigendur sauðakjöts hafa strækað á neytendur. Það er talin aðalástæðan fyrir því, að ríkissjóður verður að hlaupa undir bagga með beinar greiðslur, að framleiðslan er talsvert meiri en það, sem neytt er í landinu, hvort sem það stafar af kaupgetuleysi eða því, að kjötið er of mikið. Það er sama, hver orsökin er, það verður að selja allt kjötið. En þeir, sem stjórna sölu kjöts, strita við að halda því frá munninum á fólkinu. Það er enginn áhugi fyrir að selja það, úr því að ekki þarf annað en heimta fé úr ríkissjóði til að jafna hallann. Ég lýsi þungum sökum á hendur þessum mönnum. Þeir skapa ríkinu óafsakanleg útgjöld. Þetta sleifarlag verður ekki lagað, fyrr en afnumdar verða ríkissjóðsgreiðslurnar. Engin bændaást getur bjargað þessu, heldur bara fyrirkomulagsbreyting.