10.10.1944
Neðri deild: 62. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1598 í B-deild Alþingistíðinda. (4218)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Sveinbjörn Högnason:
Hv. þm. Siglf. taldi það heppilegra að svara ekki fyrri ræðu minni, fyrr en ég væri búinn með minn ræðutíma við þessar umræður. Hann hafði sem sé í gær beðið um að svara ræðu minni, en sá sér það þá ekki fært, þar sem hann vissi, að ég átti eftir af ræðutíma mínum, og tók sig út af dagskrá. Ég hygg, að það hafi verið rétt mat hjá hv. þm. Siglf., þar sem ræða hans var tóm þvæla og öngþveiti, að gera þetta ekki fyrr en tími til andsvara var búinn, því að vitanlega er erfitt að svara þvílíkri ræðu nema að taka hvert atriði fyrir sig. Mér þykir leiðinlegt, að ræðumaður getur ekki einu sinni hlustað á andsvörin, en skil, að honum þyki þægilegra að vera í burtu.
Ég verð að segja það, að ræða hv. þm. Siglf. um landbúnað sýnir, að hann hefur litla reynslu í landbúnaði, enda hefur hann aldrei nærri honum komið svo vitað sé, og minnir þessi ræða mig á það, hversu ofstækísfullar trúaarskoðanir á einhverjum efnum geta ruglað dómgreind góðra manna á augljósum staðreyndum, sem liggja fyrir augum þeirra. Ræða hv. þm. Siglf. gekk mest út á það, hversu framleiðsla íslenzkra landbúnaðarafurða sé orðin óþolandi dýr, sem eingöngu væri að kenna sleifarlagi bænda og hversu fulltrúar þeirra hefðu unnið illa fyrir þá undanfarin ár. Hann fullyrðir, að ef allar landbúnaðarafurðir lækki ekki um helming, þá sé ekki að tala um annað en hrun fyrir íslenzkan landbúnað, þegar markaðir opnast aftur erlendis. Ég er hv. þm. alveg sammála um það. að það verður ekki aðeins hrun fyrir íslenzkan landbúnað, heldur og aðra atvinnuvegi, ef sá framleiðslukostnaður á að haldast, sem landbúnaðurinn stendur undir, en sem hv. þm. Siglf. og hans. flokkur vill ekki lækka, — og að það verði ekki aðeins landbúnaðurinn, sem geti ekki staðið undir kaupgjaldinu, heldur hlýtur sjávarútvegurinn að hrynja fyrr. Þetta er hv. þm. vel kunnugt um, og þetta veit hver maður, og því þýðir ekki að berja höfðinu við steininn, að ef einn framleiðandi verður að greiða sexfalt kaupgjald í framleiðslukostnað samanborið við það, sem greitt er í löndunum í kringum okkur, þá getur hann ekki staðizt samkeppnina. Gildir þetta ekki aðeins um landbúnaðinn, heldur og sjávarútveginn, þar sem sjávarútvegsbóndinn verður einnig að selja sínar afurðir á erlendum markaði.
Þá vildi hv. þm. láta skína í það, að þetta væri, allt hægt að bæta með því að viðhafa meiri tækni í íslenzkum landbúnaði, en gengur hins vegar fram hjá staðreyndunum. Hann segir, að þar, sem landbúnaðurinn sé rekinn á þann veg, sem hann vill vera láta, af ríkinu eða bæjum og með fullkominni véltækni, þá væri hægt að hafa íslenzkar landbúnaðarafurðir ódýrari. En það hefur hins vegar sýnt sig margsinnis og einmitt undir handarjaðri þessa hv. þm. og flokksbræðra hans, að þeir hafa ekki einu sinni getað rekið sinn nýtízku búskap með því verklagi, sem þeir vilja við hafa, þannig að hann beri meðalframleiðsluverð. Það hefur sýnt sig, að þar, sem landbúnaður hefur verið rekinn með véltækni, eins og á Hólsbúinu á Siglufirði og á Korpúlfsstöðum í nágrenni Reykjavíkur, þá hafa þau bú ekki getað borið það framleiðsluverð, að þau séu talin meðalbú eða undir meðallagi, heldur hafa þau verið rekin með halla. Hvað þýðir svo að vera að telja mönnum trú um, að eini vegurinn sé að skapa fleiri slík bú, bú, sem bera ekki meðalframleiðsluverð? Hvernig stendur á því, að þessi hv. þm. eða flokkur hans, sem keypt hefur Korpúlfsstaði, þar sem hægt er að heyja þúsundir hesta, hafa ekki rekið þar á síðustu árum nema um 20 kýr, þar sem áður voru reknar þar 300–400 kýr. meðan jörðin var í einstaklingseign? Er það af því, að þessir menn vilja ekki peninga? Menn skyldu ætla, að það væri hægt að grípa upp æðimikinn gróða á slíku búi, ef það verð fæst fyrir afurðirnar, sem bændum á afskekktu jörðunum er reiknað. Standast þeir ekki samkeppnina við þessa bændur víðs vegar úti um land, sem ekki eru aðnjótandi véltækninnar, og vegna hvers treysta þeir sér ekki til að reka þetta stóra bú, alveg við nefið á sér í Reykjavík? Ég vildi fá svör við þessu. Er það af því, að kröfur um launagreiðslur eru orðnar svo háar, að ekki er hægt að reka bú hér í nágrenni Reykjavíkur, bú, sem er útbúið öllum nýtízku þægindum og hefur véltækt land?
Forseti minnir mig á, að þetta eigi aðeins að vera stutt aths., og skal ég verða við ósk hans, en vil þó aðeins minnast á eitt atriði, sem sýnir, hversu hv. þm. Siglf. hefur frámunalega lítið vit á búskap, er hann vill vera að segja öðrum fyrir, sem fengizt hafa við búskap alla sína tíð. Hann segir, að þegar svona bú séu rekin í félagi, þá sé hægt að hugga sig við, að einn maður geti slegið hjá öllum. Það getur vel verið, að það líti svo út fyrir þeim, sem aldrei hafa við landbúnað fengizt á Íslandi, að þeir álíti, að þetta sé betra heldur en ef margir væru að slá á sama tíma, hver fyrir sig. Hann segir enn fremur, að það hafi verið svo erfitt að reka Hólsbúið á Siglufirði, af því að þar rigni svo gífurlega. Ég verð að segja hv. þm. það, að þótt við hefðum nýtízku sláttuvélar til þess að slá niður tún okkar, dytti okkur ekki í hug að slá þau nema að líta eftir veðurfari og yrðum að haga okkur eftir því. Einnig verð ég að segja honum það, að það rignir víðar á Íslandi heldur en norður á Siglufirði og að rigningin gerir fleirum erfitt fyrir um búskapinn heldur en Hólsbúinu. Hef ég heyrt, að það væri frekar úrkomulítið á norðurlandi samanborið við hér sunnanlands og að hlutfallslega væri tífalt meiri úrkoma þar, heldur en þar, sem hv. þm. segir, að ófært sé að stunda búskap vegna rigninga.
Forseti er nú orðinn óþolinmóður, og skal ég því hætta, en vildi aðeins segja um leið og ég sezt niður, að ef hv. þm. Siglf. telur, að við eigum að vera samkeppnisfærir, og segir, að söluverð á smjöri hingað komnu frá S.-Ameríku eigi að vera 7 krónur pr. kg, þá verður hann að sýna það svart á hvítu, að við höfum hér vinnuafl, sem sé samkeppnisfært við vinnukraft í öðrum löndum. Það er ekki hægt að bera saman mold okkar lands við mold annarra landa, fyrr en við erum settir jafnfætis þjóð, sem þarf að greiða 90% í vinnukraft eða framleiðslukostnað, en hér eru sem kunnugt er gerðar sexfalt hærri kaupkröfur heldur en suður við miðjarðarlínu, þaðan sem áðurnefnt smjör kemur. Auk þessa vildi ég biðja hv. þm. Siglf. að kynna sér ofur lítið undirstöðuatriði landbúnaðar og hvernig hann er rekinn, áður en hann fer að temja sér spámennsku í þessum efnum.