11.10.1944
Neðri deild: 63. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1604 í B-deild Alþingistíðinda. (4221)

148. mál, dýrtíðarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. — Ég hef í rauninni ekki mikið um það að segja, sem fram hefur komið í þessu máli. frá því er það var síðast til umr. Ég hef ekki orðið var við, að þm. hafi rætt þetta mál mikið út af fyrir sig. Hv. 2. þm. N.--M. notaði það sem rök, ef rök skyldi kalla, í sambandi við sitt innlegg í málinu, að lítið þýddi að ræða við menn, sem hefðu svo lítið vit á landbúnaði. Sérfræðingar eins og hann gætu einir talað, skildist manni. Hann minntist á, að ég hefði talað um, að það væru rúmar 20 þús. smál. af mjólk, sem framleiddar væru, en það væri ekki einu sinni mjólkin, sem kæmi til sölu á verðlagssvæði Rvíkur og Hafnarfjarðar. Hv. þm. á að vita þetta allt vel, hann er starfandi maður í Búnaðarfél., en það verður að virða mér til vorkunnar, ef ég fer skakkt með, að ég hef ekki betri skýrslur. Mínar aths. voru byggðar á Landsbankaskýrslum, og þar er miðað við annað en hv. 2. þm. N.-M. gerði. Í skýrslunni fyrir 1943 stendur á bls. 10: „Innvegin mjólk frá mjólkurbúunum 7 (7) nam um 21,5 (20) millj. lítrum, og komu, eins og árið áður, um 3/4 af því mjólkurmagni á verðlagssvæði Reykjavíkur og Hafnarf jarðar.“

Þessi 20 þús. tonn er það, sem kemur frá búunum, og 3/4 af því fara til Rvíkur og Hafnarfjarðar. Ég hef bara í útreikningum mínum miðað við það, sem komið hefur á markaðinn. Mjólkin, miðað við kúafjölda, er miklu meiri,. 3–4 sinnum meiri. En þegar ég reikna fiskframleiðsluna, sleppi ég öllum fiski, sem framleiddur er til neyzlu innan lands. Á bls. 13 í skýrslu Landsbankans stendur: „Hér er sá fiskur ekki meðtalinn, sem farið hefur til innanlandsneyzlu nýr.“

Við vitum, að fiskneyzlan hjá okkur er meiri að magni en kjötneyzlan, a.m.k. er oft í Rvík borðaður fiskur 5 daga vikunnar. Fiskmagnið er mjög miklu meira en kjötmagnið, sem notað er innan lands, svo að þó að ég léti það jafnast upp, mundi sízt halla á landbúnaðinn. Það er ekki ástæða fyrir hv. 2. þm. N.-M. að vera með neinn þjóst. Í útreikningunum er ekki hallað á bændastéttina. T.d. er ekki reiknuð lýsisframleiðsla, sem er um 700 tonn, og fleira verðmætt í sjávarútveginum. Hv. þm. þekkir framleiðslumál bænda manna bezt, og væri gott, ef hann léti svo lítið að ræða málið og legði fram gögn í stað þess að mæla af hroka og þjósti.

Af hálfu nokkurra þm. hefur verið rætt um ríkisbúin og að þau bæru sig ekki. Ég álít það mikið rannsóknaratriði, hvernig á því stendur, en það er ekki rétt að draga þá ályktun af því, að ekki heldur stórbúskapur geti gefið afrakstur, enda mundi það þýða, að vonlítið væri fyrir okkur að vera að basla áfram. Það hlýtur að vera eitthvað annað að. Það hefur sannazt á stórbúunum í Ameríku og í Sovétríkjunum, að afköstin eru þar framúrskarandi, og mjög góð lífskjör fyrir fólkið, sem þar vinnur. Ég efa ekki, að þetta gæti líka orðið í íslenzkum landbúnaði, ef unnið væri með beztu aðferðum. Á landi eins og Suðurlandsundirlendinu hlýtur að vera hægt að hafa ágæt lífskjör.

Hv. þm. V.-Sk. minntist á strauminn úr sveitunum. Honum hættir við að vilja víkja ofur lítið til því, sem sagt er. Ég var ekki að harma strauminn úr sveitunum. Ég lagði einmitt áherzlu á það, að því meira sem afköstin ykjust, því færra fólk mundi þurfa við landbúnaðarframleiðsluna. Hv. þm. talaði um, að ef afköst manna ykjust við landbúnaðinn, þá mundi útstreymið úr sveitunum halda áfram og þá yrði að skaffa lífsmöguleika annars staðar. Það er alveg rétt, og það er það, sem þarf að gera. Þjóðin hefur takmarkaða möguleika, hvað landbúnað snertir, vegna erfiðra skilyrða. Það er því skiljanlegt, að höfuðlandbúnaðarframleiðslu Íslendinga verður að miða við innlendan markað, og er enn langt frá því, að hún fullnægi honum. En ég vil ekki fortaka, að hægt væri að reka landbúnað í öðrum greinum til útflutnings, t.d. keppa við Dani í svínarækt. Hvað ætti að vera því til fyrirstöðu? Við gætum sem sé e.t.v. tekið upp nýjar framleiðslugreinar. Hitt er rétt, að lífsmöguleika þurfum við að skapa fyrir fólk, sem streymir úr sveitunum, og þá höfum við við sjóinn. Það er óþarfi fyrir aðrar þjóðir að sækja hingað, ef við höfum dug til að hagnýta fiskimiðin í sambandi við aðrar þjóðir, þegar verkaskipting kemst á.

Hv. þm. V.-Sk. er svartsýnn á, að hægt sé að skapa lífsmöguleika annars staðar. Hann sagðist vera viss um, að atvinnuleysi yrði óhjákvæmilegt. Ég sé ekki, að svo þyrfti að vera, ef m.a. Alþ. hefði fullan hug á að láta það ekki verða.

Þá nefndi hv. þm. það, að við sósíalistar mundum lítt hirða um, ef atvinnuleysi yrði, hvort það væri gagnlegt, sem unnið væri, eða ekki. Ég vil endurtaka, að ég álít, að þjóðarbúskapurinn eigi að vera skipulagður með það fyrir augum, að hann sé til gagns. Það er misskilningur hjá þessum hv. þm., að við sósíalistar höfum lagt áherzlu á, að ekki væri unnið við annað en gagnslaus verk. Við höfum einmitt lagt höfuðáherzlu á það, að í atvinnubótavinnunni væru unnin verk, sem væru til gagns. Við lögðum til, að það yrðu byggð hús hér í Reykjavík, þegar byggingarverkamenn gengu hér atvinnulausir í stórum stíl, og ef eftir því hefði verið farið, þá hefði það bætt mjög úr þeim vandræðum, sem við eigum nú við að búa. En það var einmitt flokkur hv. þm. V.-Sk., sem taldi það fullkominn óþarfa að byggja hús hér í Reykjavík, og þessi flokkur beitti sér fyrir því að hindra innflutning á byggingarefni til landsins. Hv. þm. ætti að muna það, að einn flokksmaður hans, hv. þm. V.-Húnv., skrifaði grein í Tímann, þar sem var farið fram á það, að húsabyggingar í Reykjavík væru stöðvaðar, og spurt, hvaða vit væri eiginlega í því að vera að byggja hús í Reykjavík. Nei, það var ekkert vit í því að láta atvinnulausa menn, sem voru auk þess húsnæðislausir, byggja hús yfir höfuðið á sér, svo að þeir þyrftu ekki að hírast í skúrum og kjallaraholum.

Það var annað, sem flokkur þessa hv. þm. vildi láta vinna við í atvinnubótavinnu. Hann vildi láta vinna við klakahögg og gatnagerð um hávetur, þegar lítið eða ekkert var hægt að vinna að því til gagns. Og það er auðskilið. Til hvers þetta var gert. Það var gert til þess að reyna að ófrægja atvinnubótavinnuna sem allra mest og reyna að koma því til leiðar, að hún yrði felld niður. Hv. þm. ætti því ekki að vera að reyna að klína því á flokk okkar sós., að hann hefði ekkert viljað láta gera til gagns. Við vildum einmitt fyrst og fremst láta vinna „praktísk“ verk.

Ég veit ekki, hvort ég á að ræða í heild um afstöðu Framsfl. til ræktunarmálanna og hvað þeir hafa gert til þess að auka tæknina við landbúnaðarframleiðsluna. Ég veit ekki, hvort hægt er að segja, að afstaða hv. þm. V.-Sk. til mjólkurskipulagsins hafi orðið til þess, að beitt hafi verið meiri tækni við framleiðslu mjólkurinnar nú en áður.

Ég get minnzt á eitt dæmi um hug Framsfl. til aukinna framfara. Ég kom fyrir skömmu í eitt kauptún hér á landi, þar sem þorpsbúar, og þá einkum sós., beittu sér fyrir því að rækta í kringum kauptúnið. En þegar búið var að girða landið og þurrka það, þá var það einn fulltrúi Framsfl. á Alþ., sem beitti sér fyrir því, að girðingin væri rifin upp, og var þannig allt, sem búið var að gera, látið grotna niður í vanhirðu og fara til ónýtis.

Viðvíkjandi raforkumálunum, þá er bezt fyrir okkur að gera okkur það ljóst, með hverju móti við getum bezt komið raforku til sveitafólksins. Það verður bezt að skipuleggja fyrst búskapinn þannig, að hann geti veitt þær aðstæður, sem geta haldið fólkinu í sveitunum. Það eru ekki fyrst og fremst erfiðleikarnir við dreifbýlið, sem valda því, að fólkið hópast úr sveitunum, heldur er það miklu fremur hitt, að fólkinu drepleiðist þar. Það er fátt til skemmtunar fyrir ungt fólk á fámennum sveitabæjum að vetrarlagi. Á móti þessu þarf að vinna. Það þarf að skapa ánægju fyrir fólkið í sveitunum. Það þarf að gera því fært að njóta þar þeirra menningartækja, sem fólkið sækist eftir. Ég held, að raforkunni verði bezt komið út í sveitirnar þar, sem þær verða þéttbýlastar, og geta þær helzt orðið það þar, sem mjólkurframleiðsla er aðalatvinnuvegurinn, og ef við ætlum að koma raforkunni út í sveitirnar, þá þurfum við einmitt að hraða því sem mest að ummynda búskapinn og koma honum í það horf, að unnt verði að færa byggðina saman. Það er ekki heppilegt að eyða stórfé í það að leggja vegi og síma inn á afskekkta bæi, sem hljóta að leggjast í eyði innan skamms. Það er sóun á fé, sem kemur niður á bændum eins og öðrum. Það er heppilegast að geta leitt raforku út í sveitirnar með tilliti til samfærslu byggðarinnar, og það er hyggilegast, að þetta tvennt verði tekið fyrir á sama tíma. Það er ekki heppilegt að reyna, nú að koma raforku út á hvern sveitabæ á landinu, þegar það er séð fyrir, að fólkið muni samt sem áður ekki fást til þess að vera kyrrt á þessum stöðum.

Hvað snertir frv. sjálft, sem nú er minnst rætt um, vil ég aðeins ítreka það, sem ég áður sagði, að ég álít, að með því sé alveg horfið frá því samkomulagi, sem gert var 1943 og sem gerði álit sex manna n. gildandi. og að þau bráðabirgðaákvæði. sem hér á að setja inn, breyti 2. gr. l. alveg öfugt við allar þær forsendur, sem lágu fyrir hinu upphaflega samkomulagi. Og það er alveg gengið í öfuga átt við tilgang dýrtíðarl. frá 1943 um það að tryggja, að kaupgjald og verðlag landbúnaðarafurða lækki í samræmi hvað við annað, því að hér á að halda verðlagi landbúnaðarafurða uppi til 15. sept. n.k., þótt kaupgjald kunni að lækka.

Ég vildi því óska eftir því. að fjhn. athugaði þetta frv. betur, en ef það verður ekki gert, þá mun ég verða að bera fram brtt. við 3. umr.