11.02.1944
Sameinað þing: 15. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (4256)
29. mál, Suðurlandsbraut um Krýsuvík
Eiríkur Einarsson:
Ég verð að lýsa yfir því og jafnvel að gefnu tilefni, að mér hefur fundizt þessar umr. dálítið skrítnar. Mér var gefinn kostur á að vera meðflm. að þessari till. Það, að ég er ekki með, er þess vegna ekki því að kenna, að ég hafi ekki átt þess kost, heldur tregðu minni eða þeim vafa, sem ég er í um það, hvort hér sé rétt að farið um framkvæmd stórmáls. Í þessu vil ég þó ekki láta liggja neinn fordóm af minni hálfu. En úr því að þetta er komið á leið með þessa Krýsuvíkurbraut og búið að leggja í hana hátt á sjöunda hundrað þúsunda, er ekki um annað að ræða en halda áfram, og því lengra sem komið er, því frekar er ástæða til að segja sem svo: Úr því, sem nú er komið, verður að ljúka þessu verki.
Það þarf ekki að eyða mörgum orðum að því, sem allir eru sammála um, að úrlausn í samgöngumálum á Suðurlandsundirlendinu er brýn nauðsyn. Það þarf ekki nema duttlunga í veðri til þess að hindra bændur í lífsbaráttu sinni með því að setja framleiðslureksturinn í strand, og er þetta þó ekki síður tilfinnanlegt fyrir neytendurna. Þarf ekki að eyða orðum að þessu, og er ekki til sá afturúrléttingur, að hann leyfi sér að mótmæla því, að þessi brýna úrbótaþörf sé fyrir hendi.
Það er nú svo, að þetta samgöngumál hefur sætt lélegri og ógiftusamlegri meðferð en önnur stórmál, sem rædd hafa verið hér á Alþ. á síðari áratugum. Þarf ekki að nefna nema fá atriði og ártöl til að sanna þetta. Ef þetta er tekið til athugunar og maður rekur til ársins 1891, er ráðizt var í að gera Ölfusárbrúna, verður að viðurkenna, að það var stórverk á þeim tíma, og sama er að segja um Hellisheiðarveginn 1890. Hvort tveggja var mikið verk. Þá var miðað við allt annað en nú, bæði um framleiðslu og flutningatæki. Það er ekki hægt að sakast um það, þó að vegurinn liggi um blautadrög. En að hann skuli enn vera hinn sami og í upphafi, þó að borið hafi verið ofan í hann öðru hverju, sætir meiri furðu. Svo þegar farið var að ræða um að bæta úr þessu, var fyrsta sporið stórt, en mér liggur við að segja, að eftir því sem tímarnir líða, fari sporin smækkandi. Það var hinn stórvirki stjórnmálamaður Jón Þorláksson, sem berst fyrir því á árunum 1910–1920, að járnbraut sé lögð austur, og býður sig fram 1916 til þingmennsku í Árnessýslu beinlínis með tilliti til þessa mikla áhugamáls síns. En hvernig sem það atvikaðist, var æ meir horfið frá hugmyndinni um járnbraut og að þeim möguleika að leggja bílvegi, og þeir menn, sem rætt höfðu um járnbrautina, sneru sér meir og meir að þessum möguleika. Upp úr þessu, árið 1932, voru á Alþ. samþ. 1., sem eru enn í gildi, um að leggja veg austur yfir Svínahraun og Hellisheiði. Ég skal ekki leggja dóm á það, hvort betur væri farið, að þessi 1. hefðu verið framkvæmd, ef fé hefði fengizt, en líta ber á það, að ýmsir, sem gamlir eru, telja, að ævinlega sé snjólítið um Þrengslin. Ef það er rétt, þá má spyrja: Er þetta ekki líka til athugunar? Fyrir nokkrum árum var samþ. á Alþ. áskorun til ríkisstj. um að undirbúa lagningu vegar austur skemmstu leið miðað við fullt öryggi árið um kring. 1943 er samþ. till. um steinsteyptan veg austur yfir Hellisheiði. Mig minnir, að yfirgnæfandi meiri hl. þeirra hv. þm., sem nú eiga hér sæti og nú eru með þessari till., hafi fylgt því máli. Hvernig á að finna hér samhengi? Hvað er alvara og hvað ekki? Að því er snertir þessa till. frá síðasta ári um steinsteypta veginn, spyr ég: Er búið að rannsaka það og komast að því, að niðurstaðan sé neikvæð að efna til þeirra framkvæmda, eða varð það til að hvetja til þessarar till., sem nú liggur fyrir? Ég veit það ekki, en ekki væri óeðlilegt, að svo væri.
Nú er það svo, að Krýsuvíkurvegurinn er kominn talsvert á leið meðfram Kleifarvatni og erfitt að snúa aftur með það mál. Vitanlega mundi hann koma að meiri eða minni notum, þó að honum yrði ekki haldið áfram, en erfitt er að snúast þannig í málunum, og ég tel það ekki rétt. En langt er frá því, að þessu verki sé lokið, því að leiðin, sem eftir er að leggja veginn um, mun vera 51 km að lengd. Ef þetta er ekki rétt, biðst ég þess, að það sé leiðrétt. Náttúrlega, ef vissa er fyrir hendi um, að þetta sé æskilegt, og ef verið er að bæta úr þörf, þá er ekki að horfa í það, að milljónir fara til þess. En það, sem ég vildi tryggja af minni hálfu og ég geri að álitamáli, er það, hvort hér sé rétt að farið. Ég teldi illa farið, ef milljónaframlög til þessa Krýsuvíkurvegar kæmu ekki framtíðinni að notum og yrðu til að fresta framkvæmdum á öðrum leiðum, sem þá þættu heppilegri, því að þá þarf líka fé til að halda veginn á enda. Á sama hátt er álitamál, sem ég veit, að er hugmynd vegamálastjóra, að reyna að tryggja vetrarsamgöngur með breytingu og lögun á Þingvallaveginum. Ég vil ekkert staðhæfa hér um, en þetta er allt til að líta á og taka til athugunar. En þegar annars vegar er flokkur þm. hér, sem flytur þessa till. um Krýsuvíkurveginn, en hins vegar uppi ráðagerðir um endurbætur á Þingvallaveginum, þá er engin furða, þó að ég og mínir líkar verði til að spyrja: Hverju sætir þetta, og hvernig er öryggi þessara mála komið? Þó að nefndar séu 2 millj. kr. til Krýsuvíkurvegarins, þá ægir mér það ekki út af fyrir sig, ef það gæti orðið til að tryggja lausn þessa vandamáls. En ég fullyrði, að hver víðsýnn fjmrh. mundi segja, ef nefndar væru tvær eða jafnvel fjórar milljónir: Draga verður úr einhverju öðru eða finna nýjar tekjuöflunarleiðir, svo mikil er nauðsynin.
Þeir menn hafa verið til, sem litið hafa á höfuðnauðsyn málanna, en ekki verið að skoða það, hversu mörgum milljónum til þeirra yrði kostað. Ég vil hvorki játa né neita, hvort ég verð með þessari till. eða ekki. Ég hef það til athugunar að gera brtt. við hana og mun bíða og sjá, hvað setur. Ég veit, að til þess er ætlazt af umbjóðendum mínum í Árnessýslu, að ég geri það, sem rétt er í þessu máli, og fari þar eftir sannfæringu minni, og þess vegna vil ég ekki hrapa að neinu, heldur hafa óbundnar hendur í lengstu lög og sjá, hvað n. sú, sem nú fær till. til meðferðar, leggur til hlutanna. Ég vil undirstrika, að meginatriðið er það, að ekkert verði gert, hvorki að því er snertir Krýsuvíkurveginn né Þingvallaveginn, sem gæti orðið til að fresta aðgerðum, er væru til öryggis fyrir alla framtíð í vegamálum.