03.03.1944
Sameinað þing: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í D-deild Alþingistíðinda. (4268)
29. mál, Suðurlandsbraut um Krýsuvík
Frsm. (Helgi Jónasson):
Herra forseti. — Ég skal ekki vera fjölorður um þessa till. — N. hefur rætt hana mjög ýtarlega á fundum sínum. Hún hefur líka rætt málið við atvmrh., fjmrh. og vegamálastjóra. Þó að hv. nm. sjái sér ekki fært að fara fram á hærri upphæð en hér er gert ráð fyrir, 1/2 millj. kr., get ég lýst yfir því, að þeir mundu fallast á þessa upphæð, þótt ekki sé nú lengra gengið en hér er farið fram á, og óska ég þess eindregið, að þessi till. verði samþ.