07.03.1944
Sameinað þing: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í D-deild Alþingistíðinda. (4283)

29. mál, Suðurlandsbraut um Krýsuvík

Eysteinn Jónsson:

Ég lít þannig á þessa brtt., þó að í henni standi, að þessi fjárhæð skuli færð til gjalda á árinu 1945, að það sé að sjálfsögðu átt við, að hún komi raunverulega til gjalda á ríkisreikningi þessa árs. Annars vil ég segja það, að þó að ég sé mótfallinn þeirri aðferð, sem hér hefur verið við höfð til þess að greiða þetta fé, þá þykir mér það verk, sem hér á að vinna, svo nauðsynlegt, að ég treysti mér ekki til að standa á móti till., og segi því já.