03.03.1944
Sameinað þing: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í D-deild Alþingistíðinda. (4294)
58. mál, launauppbót til embættis- og starfsmanna ríkisins vegna barna á framfærslualdri
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Það er rétt, að stj. ákvað fyrir áramót að fella niður greiðslur á þessum ómagastyrk, sem greiddur er samkv. lagaheimild frá 30. júní 1942, og ekki sízt af þeirri ástæðu, að í fjárl. er engin fjárhæð ætluð til þess að standa straum af þessum útgjöldum. Þessi styrkur hefur verið greiddur í tvö ár, 1942 og 1943. 1942 nam hann kr. 288 þús., en 1943 kr. 215 þús. Þar að auki greiða að sjálfsögðu ríkisstofnanir þennan styrk, og ég held, að ætla mætti, að útgjöld ríkissjóðs og ýmissa stofnana við þessi útgjöld mundu nema um 1/2 millj. kr.
Það er athugandi í sambandi við þennan styrk, að lagaheimild þessi er sett á vorþingi 1942, og þá eru aukauppbætur til starfsmanna ekki komnar til greina, ef líta átti á þennan styrk sem nokkrar aukauppbætur til starfsmanna. En á sumarþinginu eru svo aukauppbæturnar ákveðnar, svo að ég gæti hugsað mér, að ekki væri nema eðlilegt, að þessi styrkur félli niður, um leið og aukauppbæturnar væru ákveðnar. Þar að auki virðist ekki sjálft Alþ. hafa haft mjög mikinn áhuga á því, að þessum styrk væri haldið uppi, þar sem hann hefur ekki verið tekinn í fjárl. Þetta hefur verið framkvæmt þannig, að ríkissjóður hefur aðeins greitt þennan styrk til þeirra, sem eru fastir hjá ríkinu. Ef þeim væri haldið áfram, mundu miklu fleiri starfsmenn ríkisins koma undir þetta, t. d. hreppstjórar og ljósmæður, sem gætu heimtað að fá þennan styrk sem starfsmenn hjá ríkinu. En ef ríkisstj. kynni að verða skylduð til að greiða þennan styrk, mætti taka margt til athugunar í því sambandi, t. d. hvort rétt gæti talizt að greiða mönnum slíkan styrk, þótt þeir eigi ekki nema 1–2 börn, en gæti talizt sanngjarnt að veita þeim stuðning, sem eiga fyrir mörgum börnum að sjá.