08.03.1944
Sameinað þing: 28. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í D-deild Alþingistíðinda. (4298)
58. mál, launauppbót til embættis- og starfsmanna ríkisins vegna barna á framfærslualdri
Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen):
Ég finn ekki hvöt hjá mér til að ræða um þetta mál með svipuðum hætti og hv. 7. þm. Reykv. Mér skilst, að málið muni ekki græða á því, að notað sé slíkt orðbragð sem hv. þm. viðhafði. En þar sem nál. minni hl. hefur verið nýlega útbýtt og hv. frsm. sagðist ekki hafa komizt lengra í lestri nál. en til hálfs, þykir mér ástæða til að fara nokkrum orðum um málið.
Þegar afgreidd voru fjárl. á síðasta Alþ., þá átti fjvn. að sjálfsögðu samræður við fjmrh. um afgreiðslu þeirra. Fjmrh. lýsti þá yfir, að ríkisstj. ætlaði ekki að nota þá heimild, sem hún hefði til þess að greiða þessi barnameðlög, og þess vegna hefði stj. ekki tekið upp á fjárl. neinar fjárveitingar í þessu skyni.
Eins og greint er frá í þessu nál. minni hl. fjvn., þá sætti þetta engum mótmælum í n., og engar till. komu fram um að breyta þessu frá því, sem fjmrh. lýsti yfir, að væri tilgangur ríkisstj. Í meðferð fjárl. á Alþ. komu ekki heldur fram neinar raddir eða till., sem bentu til þess, að ríkisstj. að þessu leyti væri í andstöðu við Alþ. Þannig mætti Alþ. þessum till. ríkisstj. um að láta þessar greiðslur niður falla, og ég fyrir mitt leyti get ekki litið á þetta öðruvísi en sem samþykki Alþ. á þessari tilhögun ríkisstj.
Þessar fjárgreiðslur, sem hér um ræðir, eru þannig til komnar, eins og greinir í nál., að á vorþinginu 1942 komu fulltrúar frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og fóru fram á það við Alþ., að það hækkaði grunnlaun starfsmanna ríkisins. Um þetta varð ekki samkomulag á Alþ. að þessu sinni, en í þess stað var ríkisstj. heimilað að greiða þessa barnastyrki, og var það til að mæta fyrrnefndum óskum frá fulltrúum starfsmanna ríkisins. Alþ. féllst á að fara þessa leið, en hækka ekki grunnlaun að því sinni. Síðar á Alþ. sama ár voru hækkuð grunnlaun með þeim hætti, sem alkunnugt er og gerð er grein fyrir í nál. minni hl. Þannig var orðið við þeim tilmælum, sem þessir forsvarsmenn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja höfðu borið fram við Alþ., og þar með í raun og veru kippt burt ástæðunni til þess að veita áfram þennan barnastyrk, þó að hann væri að vísu greiddur bæði árið 1942 og 1943. — Þetta er þá gangur málsins, eins og hann var hér á Alþ.
Svo er hér vikið að því í nál. minni hl. og eins í grg. till. sjálfrar, svo sem frsm. meiri hl., hv. 7. þm. Reykv., sagði, að kostnaður af greiðslum þessum væri 225 þús. kr. Það er ekki hægt að sjá af grg. till., að þetta sé allur kostnaðurinn, því að þar er ekki vikið að þeim fjölmennu stofnunum, þar sem þessar greiðslur fara fram beint til starfsmannanna. Það er því síður en svo, að í þessari upphæð, sem vitnað er til í grg. till. og frsm. talaði um, sé falinn allur kostnaðurinn. Þegar minni hl. fór að kynna sér þetta nánar, þá upplýsti fjmrh., að ekki væri enn búið að greiða þessa styrki fyrir árið 1943 að fullu. Hann benti á, að sú upphæð, sem greidd var beint úr ríkissjóði um hendur ríkisféhirðis árið 1942, hefði numið 288 þús. kr., og engin ástæða er til að ætla, að þessi hluti styrksins verði minni árið 1943 en 1942. Þetta eru þær upplýsingar, sem minni hl. fékk hjá hæstv. fjmrh., og hann er hér viðstaddur og getur borið því vitni, hvort þetta sé ekki rétt með farið varðandi það, sem hann lagði til þessa mála.
Hitt fengum við einnig upplýsingar um, að þarna er ekki um að ræða nema hluta af upphæðinni, því að eins og við tökum fram í nál. okkar, þá eru það fjölmargar stofnanir, þar sem þessar greiðslur fara fram beint frá reikningshaldara viðkomandi stofnunar. Þessar stofnanir eru t. d. póstur og sími, útvarp, einkasölur ríkisins og einhverjar fleiri, þótt ekki sé minnzt á þær í nál. Hins vegar tókst ekki að fá upplýsingar um það, hvað þessi útgjöld muni nema miklu á hverjum tíma, en ekki er ólíklegt, að það séu upp undir 200 þús. kr. á ári. Ef miðað er við árið 1942, þar sem styrkur sá, sem gengur í gegnum hendur ríkisféhirðis, er fullgreiddur, má gera ráð fyrir, að upphæðin alls nemi árlega um hálfri milljón kr. Þetta vildum við, að kæmi fram í nál. minni hl., og hér er algerlega rétt með farið eftir þeim upplýsingum, sem við öfluðum okkur. Ég held þess vegna, að það hafi verið gersamlega ástæðulaust að viðhafa þau ummæli, sem frsm. meiri hl. viðhafði í garð minni hl.
Þá fengum við í minni hl. einnig þær upplýsingar hjá fjmrh., að sú tilhögun hefði verið höfð á greiðslu þessa styrks, að þeir einir hafi orðið hans aðnjótandi, sem höfðu aðalstarf sitt hjá ríkinu. Nú er það vitað, að það er fjöldi manna úti um byggðir þessa lands, sem hafa á hendi ýmiss konar störf fyrir ríkið, þótt þau störf séu ekki nema hluti af þeim störfum, sem þessir menn hafa með höndum. En ég held, að það sé ekki hægt að leggja annan skilning í þessa till. en að þessir menn geti einnig orðið aðnjótandi þeirra réttinda, sem till. gerir ráð fyrir, því að nú er samkv. till. lagt fyrir stj. að greiða þetta í stað þess, að það var aðeins heimild áður. Minni hl. getur ekki getið sér til, hve mikil viðbótargjöld mundi leiða af því, að þessir menn nytu réttinda l. Það kæmi í ljós, þegar farið yrði að framkvæma þessa till.
Þetta eru þá þær ástæður, sem minni hl. hefur fram að leggja með þeirri afstöðu, sem hann hefur tekið, að geta ekki fallizt á þá till., sem hér liggur fyrir. Hvort tveggja þetta, hækkun grunnkaups síðan á árinu 1942 og auk þess sem Alþ. óbeinlínis tók afstöðu við afgreiðslu fjárl. fyrir yfirstandandi ár að veita ekki neitt til þessara fjárgreiðslna, gerir það að verkum, að minni hl. getur ekki fallizt á till.
Hv. frsm. meiri hl. gat þess, að komið hefðu fram raddir um að fresta afgreiðslu till. frá mönnum, sem standa með minni hl. Þetta er alveg rétt. En um þetta náðist ekkert samkomulag í n., svo málið ber hér alveg eðlilega að. Það koma hér fram tvö mismunandi sjónarmið, sem Alþ. tekur ákvörðun um.
Meira hef ég svo ekki um þetta mál að segja. Einn nm. hefur skrifað undir nál. minni hl. með fyrirvara, sem hann mun gera grein fyrir: