10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (4317)
67. mál, norræn samvinna
Forseti (GSv):
Ég get ekki vitað, nema þm. taki, eins og horfir, upp á því að koma með brtt, og það skrifl. brtt. unnvörpum, og er álitamál, hvort ég eigi tafarlaust að leita afbrigða fyrir þær, eina og eina í senn, eða eins rétt er að draga það. (BrB: Þessi kom nú víst bara til að afstýra slysi). En ef þm. ætla yfirleitt að láta sitja við það, sem komið er, mun ég þó leita afbrigða fyrir þessari.