10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í D-deild Alþingistíðinda. (4348)
12. mál, virkjun Fljótsár
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. — Ég skal ekki fara út í það, hversu miklar eignir Siglufjarðarkaupstaðar eru. Mér er vel kunnugt um það, frá því er þetta mál var til umr. á síðasta sumri. En ég stóð upp út af því, sem hv. 1. þm. Rang. sagði um það, að stj. ætti að grípa í taumana, ef framkvæmd svona fyrirtækis gæti ekki svarað kostnaði eða væri framkvæmd á óskynsamlegan hátt. Mér er ekki kunnugt um, að ríkisstj. hafi neina heimild til þess að grípa í taumana hjá svona fyrirtæki sem þessu, þó að kostnaður við það fari fram úr áætlun. Og ríkisstj. getur það ekki, þó að kostnaðurinn fari langt fram úr því, sem nokkur telur heilbrigt. Hins vegar er það að sjálfsögðu hið opinbera eftirlit, sem á að sjá um það, að þessar rafvirkjanir fullnægi þeim skilyrðum og reglum, sem þar eru um settar.