23.02.1944
Sameinað þing: 21. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í D-deild Alþingistíðinda. (4373)

41. mál, samgöngubætur frá Reykjavík austur í Ölfus

Flm. (Eiríkur Einarsson):

Það, sem ég vil nú bæta við ræðu mína í gær, eru einungis nokkur orð til andsvara þeim, sem síðan hafa tekið til máls um þessa till. Þá er fyrst að geta þess, að það, sem hv. 1. þm. Árn. sagði um till. og málefnið, er þannig, að ég finn enga ástæðu til að svara því, sérstaklega af því að hann talaði hófsamlega og af velvilja um málið, eins og vænta mátti af honum. Þá var það hv. þm. V.-Sk., sem ræddi hér nokkuð langt mál um till. Hann vitnaði til þess, sem stendur í grg. till., þar sem talað væri um vettlingatök, málið hefði verið rætt um 30 ára skeið o. s. frv., og ef ég man rétt, taldi hann, að hér væri verið að reka fleyg í málið, og hann hefur látið það í ljós, að þessi till. væri fram borin til þess að spilla fyrir till. um 2 millj. kr. framlag til Krýsuvíkurvegar. Ég tók það nú fram í gær, að þetta væri ekki ætlunin, og þó að menn eins og hv. 1. þm. Rang. vilji brýna gáfurnar og finna einhver rök fyrir því, að ég sé þarna allur af illum vilja gerður, þá er ég hræddur um, að ekki bíti hjá honum.

Það er athugandi í þessu sambandi, að frá því fyrst var farið að ræða um nauðsyn umbóta á samgönguleiðinni milli Reykjavíkur og Suðurlandsundirlendisins, hefur alltaf verið talað um að miða við fullkomna aðalleið fyrst og fremst. Það hefur líka verið rætt um möguleika á því, að svo kynni að fara um aðalleiðina, að hún gæti teppzt að vetrarlagi, og till. hafa verið uppi um varaleiðir, svo sem Krýsuvíkurleið og Þingvallaleið, og þannig er vitanlega lagasetningin frá 1936 um Krýsuvíkurveginn til orðin. Mér heyrðist á ræðu hv. 1. þm. Rang. nú, að með því að fylgja fjárframlagi til Krýsuvíkurvegar væri hnúturinn leystur. En þó að ég hafi lýst því yfir hér, að ég mundi fylgja til atkv. fjárbeiðni til framhalds Krýsuvíkurvegar, af því að hann er þegar kominn af stað, og alltaf mun hann einhverjum koma að haldi, þá þýðir ekki sú yfirlýsing mín það, að ég hafi ekkert annað um það mál að segja eða framtíðarlausn þess. Það væri talandi tákn líðandi tíma, ef ekki væri hægt að benda á aðra leið en þessa varaleið, hvar sem hún lægi.

Þá vildi hv. 1. þm. Rang. halda því fram, að þessi till., sem hér liggur fyrir, sé fram komin til höfuðs Krýsuvíkurplaninu. Það þarf illvilja til að leyfa sér að segja þetta, enda vil ég afsaka þessi ummæli, og ég tók ekki eftir, að það kæmi fram í ræðu hv. þm. V.-Sk., enda held ég, að hv. 1. þm. Rang. hafi sagt þetta meira af líkams- en sálarkröftum. Þá hefur mikið verið um það rætt, hvernig n. yrði skipuð, og hv. þm. V.-Sk. eyddi orðum að því, að ætlunin er, að vegamálastjóri verði form. n., og hann sagði, að vegamálastjóri væri búinn að spreyta sig á þessu máli um langt árabil, og hvað væri orðið úr framkvæmdum. Það er alveg rétt, að það hefur mikið mætt á vegamálastjóra, og ég get tekið undir það, að ýmislegt það hefur tekizt verr en skyldi að halda vegunum færum að vetrinum. En um leið og þess er minnzt, að ýmis mistök hafi orðið á vegamálum landsins, verður að minnast þess, að það er annar aðili, sem þarna ræður meiru um en vegamálastjóri. Þessi aðili er Alþ. Vegamálastjóri er ekki öfundsverður af því að eiga alltaf að gera upp á milli einstakra þm., þegar um fjárveitingar til vegamála er að ræða. Það er sannarlega erfitt og vandasamt starf, sem sá maður hefur með höndum. En ég er ekkert að halda því fram, að það sé réttlátast, að n. verði skipuð á þann veg, sem till. hljóðar. Ég mundi geta fallizt á einhverja breytingu á skipun n., ef það þætti til bóta og stofnaði ekki till. í háska, en ef ég hef haft oftraust til einhverra þingflokka, þá bið ég þá afsökunar.

Hv. þm. V.-Sk. tók það fram, og virtist hneykslast á því, að við tillögumenn vildum miða við leið, sem væri stutt og örugg og fullnægði skilyrðum til frambúðarþróunar o. s. frv. Mér finnst erfitt að hneykslast á þessu. Hér er auðvitað átt við það að velja sem stytzta leið, sem fullnægi um leið sem mestum öryggisskilyrðum. Þarf nokkurra skýringa á þessu? Ekkert í till. stríðir á móti því, að þetta sé þannig.

Hv. þm. talaði um það, að Krýsuvíkurleiðinni mundi meðal sjálfstæðismanna í Árnessýslu vera að aukast fylgi, og vitnaði hann til þess, að ég hefði lýst því yfir, að ég mundi fylgja til atkv. fjárframlagi til hennar. Það er alveg rétt, að ég gerði það. En ég vil spyrja þennan hv. þm., hvaða till. mundu hafa komið fram á Alþ., sem miðuðu við 2 millj. kr. framlag til að bæta eitthvað úr samgöngunum austur yfir, að menn hefðu ekki fagnað þeim. Það er ekki Krýsuvíkurleiðin út af fyrir sig, sem menn eru að fagna, ekki sjálfstæðismenn fremur en aðrir, sem fagna þessari fjárveitingu. En ef Krýsuvíkurplanið kemur einhverjum til góðs, er þá ekki að fagna því? Hvað halda menn t. d. um það, hefði samkvæmt lagasetningu frá 1932 verið lagður vegur um „Þrengslin“, sem sumir höfðu góða trú á a. m. k. sem vetrarleið, hefði þá þegar verið varið stórfé í þessa vegagerð, sem þó var ekki nema 17,2 km. að lengd? Haldið þið ekki, að Árnesingar hefðu fagnað því, ef til þeirra framkvæmda hefði verið varið samsvarandi stórri fjárhæð og nú er ráðgert að leggja til Krýsuvíkurvegar? En þetta er ekki dómur um leiðina, þetta er dómur um viðleitnina. Auðvitað ber að fagna hverri viðleitni í þá átt að bæta úr samgönguvandræðunum austur. Leggjum þess vegna Krýsuvíkurveginn, — hann kemur einhverjum að notum, — en við þurfum jöfnum höndum að leggja veg, sem getur verið fyrir framtíðina, sem skemmstan aðalveg. Það var hv. 2. þm. N.-M., sem um þetta atriði hafði alveg réttan skilning, og býst ég við, að hans þingmannlega víðsýni komi þar mest til greina. Á síðasta sýslufundi Árnesinga var bæði hvatt til þess að flýta Krýsuvíkurveginum og einnig hvatt til þess að flýta ákvörðunum um framkvæmdir á aðalsamgönguleiðinni, sem nú er talað um. Hv. 1. þm. Rang. getur sjálfur búið að því, sem hann sagði, og melt þá fæðu, ég hélt á málefninu eins og það liggur fyrir, og þar mun þurfa annarra átaka við heldur en illkvittni. Ég hef ekkert að saka hann um, hann hefur ekki gert mér neitt til miska, en aðeins bergmálað eitthvað, sem hann hefur heyrt á lakari stöðum. Betri menn í Árnessýslu hafa fundið mér margt til foráttu, en ekki hafa þeir vænt mig um svik í þeim málum. Það er til annars nauðsynlegra hægt að fara austur yfir Þjórsárbrú en sækja slíkan varning.

Ég vænti, að málinu verði vísað til hv. fjvn. að lokinni umr., í trausti til þess, að hún líti á það með skilningi og veiti því góða afgreiðslu.