29.02.1944
Sameinað þing: 24. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í D-deild Alþingistíðinda. (4375)
41. mál, samgöngubætur frá Reykjavík austur í Ölfus
Helgi Jónasson:
Ég þarf ekki mörg orð að þessu sinni. Ég gerði ýtarlega grein fyrir þessu máli fyrir fáum dögum. Ég gæti endurtekið það, sem ég sagði, en það stendur óhaggað. Ég sé, að í Þjóðviljanum í dag er talað um nefndarskipun eins og þá, sem ég gat um í niðurlagi ræðu minnar, og ég veit, að óhætt muni vera að taka Þjóðviljann trúanlegan í þessu, þar sem ritstjóri hans er einn af flutningsmönnum þeirrar till., sem hér liggur fyrir. Þótt hv. 2. þm. Arn. skammaði mig og notaði ókvæðisorð, þá er það ekki mín sök. Ég lýsti honum aðeins og afstöðu hans til þessara mála fyrr og síðar með þeim vægustu orðum, sem við áttu. Nú er samvizka hans og óttinn við kjósendur vaknaður. En það þekkja allir í Árnessýslu og Rangárvallasýslu afstöðu hans í þessu fyrr og síðar.
Hv. 2. þm. Árn. hefur borið mér á brýn, að ég væri bæði fávís og ofbeldisfullur. Það er engin nýlunda, að menn grípi til þess ráðs, þegar menn eru orðnir rökþrota. Þetta voru úrræði þm., er ég hafði lýst málinu eins og það liggur fyrir. Það er alkunna, að þessi hv. þm. er mjög frægur fyrir rökfimi og skilmerkilegan málaflutning, auk þess sem orðalag hans er mjög einfalt og óbrotið, og geri ég ekki kröfu til að jafnast á við hann á því sviði. Annars ætla ég ekki að eyða fleiri orðum við þm. Hann er búinn að bíða ósigur. Krýsuvíkurvegurinn verður ofan á, og það er mér nóg.