29.02.1944
Sameinað þing: 24. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í D-deild Alþingistíðinda. (4376)

41. mál, samgöngubætur frá Reykjavík austur í Ölfus

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. — Það er ekki ætlun mín að blanda mér inn í þær hörðu deilur, sem staðið hafa milli hv. þm. Suðurlands um framtíðarlausn samgöngumálanna hér á Suðurlandi. En það er eitt atriði, sem ég vildi fara nokkrum orðum um og flyt brtt. í því sambandi, en það er nefndarskipun til rannsókna á framtíðarskipulagi samgangnanna hér á Suðurlandsundirlendinu. Nú er það mín skoðun, að þegar um slíka nefndarskipun sem þessa er að ræða, eigi að velja í hana menn, sem hafa sérþekkingu á verkefni því, sem fyrir liggur. Þegar því mönnum er falið að gera till. um ákveðin verkleg efni, á fyrst og fremst að líta á sérþekkingu þeirra og breyta eftir því.

Í þeirri till., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að skipaðir verði 5 menn í n. til að athuga þetta mál. En eins og ég hef áður tekið fram, álít ég, að lítið gagn yrði af slíkri nefndarskipun, ef ekki yrðu valdir í hana menn, sem sérþekkingu hafa á verkefninu. Ég hef áður talað um þetta atriði hér, og á grundvelli þessara staðreynda flyt ég hér ásamt hv. 11. landsk. till. um, að í stað þess að í upphaflegu till. er gert ráð fyrir 5 manna n., verði þetta þriggja manna n., skipuð sérfróðum mönnum. Í samræmi við þetta flytjum við brtt. um skipun n. á þann hátt, sem segir í till. okkar.

Ég þarf ekki að fara um þetta fleiri orðum, en ég held, að þessi skipan sé líklegri til að ná þeim árangri, sem n. er ætlað að ná, þar sem sérþekking er frumskilyrði til þess, að starf n. geti orðið að gagni.

Svo vænti ég þess, að þessi till. fái náð fyrir augum hv. þm. og að þeir líti réttum augum á þá þörf, sem hér er á því, að grundvallaratriðið í þessu efni, sérþekkingin, sé til staðar. Leyfi ég mér hér með að afhenda hæstv. forseta hina skriflegu brtt. mína.