07.03.1944
Sameinað þing: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í D-deild Alþingistíðinda. (4393)

41. mál, samgöngubætur frá Reykjavík austur í Ölfus

Sigurður Bjarnason:

Ég sé, að hv. fjvn. hefur ekki treyst sér til þess að taka til greina brtt. þá, sem ég flyt hér ásamt hv. 11. landsk. þm. Nefndin hefur viljað halda við þá stefnu, sem ríkjandi hefur verið hér á hæstv. Alþ., að kjósa stöðugt nýjar n., skipaðar mönnum án tillits til sérþekkingar þeirra. Það er mjög ánægjulegt til þess að vita, að í sama mund sem fjvn. er að hengja sig í þessa stefnu, sem hér hefur verið lýst, skuli hæstv. fjmrh. hafa lýst því yfir, að um 50 n. séu starfandi í landinu og um það bil 200 þús. kr. sé árlega varið til þess að fóðra þessar n. Mér finnst það mjög ánægjulegt, að það skuli hafa verið bent á það, á hvaða braut hv. Alþ, er í þessum efnum og að það skuli hafa komið frá hæstv. fjmrh. og þar með fundinn mælikvarði á það, hversu fljótir þm. eru að átta sig á því, hvaða ófremd þetta er. Í sama mund og slík yfirlýsing kemur fram frá hæstv. stj., tekur ein virðulegasta n. þingsins sig til og samþ. till. um enn eina nýja n. og treystir sér ekki til að taka til greina ábendingar um það, að hentara sé að treysta sérfróðum mönnum í þessum efnum heldur en að kjósa þessa menn af þingflokkunum án tillits til sérþekkingar. Þetta vildi ég láta koma fram hér við þessa umr. varðandi brtt. mína. En varðandi till. þá, sem við hv. 11. landsk. flytjum í sameiningu, þá kemur okkur ekki til hugar að taka hana til baka, og mun þm. gefast tækifæri til þess að segja um það, hvort þessa n. eigi að skipa menn af þingflokkunum eða sérfróðir menn, verkfræðingar, eins og gert er ráð fyrir í till. okkar. En við höfum orðið að bera fram smávægilega brtt. við þessa brtt. okkar, vegna þess að upphaflega brtt. tók við óbreyttu niðurlagi hinnar upphaflegu þáltill., að n. skyldi hafa lokið störfum fyrir lok maímánaðar 1944. Við tókum þetta ekki upp, vegna þess, að það er ekki víst, að n. gæti lokið störfum fyrir þennan tíma. Nú berum við því fram brtt. um, að þetta verði fellt niður úr brtt. í síðasta málslið, en þar segir svo: „Tekur hún strax til starfa og skal hafa lokið störfum og gert till. til Alþ. fyrir lok maímánaðar 1944.“

Ég vil svo að lokum eindregið skora á þm. að hverfa frá þeirri stefnu, sem hér hefur verið lýst, hverfa frá þessari nefndarstefnu og hverfa að því að fela sérfróðum mönnum þau störf, sem krefjast sérþekkingar. Ég trúi ekki að þm., sem meina vel í þessu máli, snúist á móti slíkri till.

Ég vil svo leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt.