10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í D-deild Alþingistíðinda. (4444)

63. mál, fáninn

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Herra forseti. Af því að þessu máli er beint til ríkisstj. og ætlazt til, að hún undirbúi l., sem verða tilbúin í vor, að mér skilst, að þegar talað er um, „að fáninn verði í réttum litum og hlutföllum“, sé gert ráð fyrir, að fáninn, sem nú er, verði látinn gilda. Fyrir nokkrum árum mun hafa komið fram till. um að breyta fánanum, en mér hefur fundizt sl. tvö ár, að því væri alls ekki haldið á loft.

Ég vil taka það fram, að mér finnst ákvæðið á þskj. 224 um, að ríkisstj. sjái um að leggja þetta mál fyrir þá aðila, sem þar greinir, mjög eðlilegt, því að á þann hátt er hægt að komast nær hverjum einum en Alþ. gæti gert með einni ályktun, sem birt yrði í Stjórnartíðindum og e. t. v. í Lögbirtingablaðinu.