10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í D-deild Alþingistíðinda. (4446)

63. mál, fáninn

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. — Það eru aðeins fá orð, sem ég þarf að bæta við. — Hv. þm. Barð. talaði um það, að við hefðum breytt tvisvar gerðum okkar með því að flytja fyrst brtt. um eitt atriði og síðan allsherjarbrtt. um orðalagið. Nú, þetta má kannske orða svo. Ég tók það fram í ræðu minni, að ég hefði í huga, að frv. um fánal. væri lagt fyrir Alþ., þegar það kemur næst saman. Og ég tók fram í framsöguræðu minni, að trygging væri sjálfsögð fyrir því, að þetta væri gert. En þegar við athuguðum nál., komumst við að þeirri niðurstöðu, að ekki væri hægt að afgreiða það óbreytt. Eins og ég gat um áðan, er orðalagið þannig, að ekki er hægt að afgreiða málið á þann hátt.

Hv. þm. minntist á eitt atriði, sem ég tel ekki ástæðu til að slá föstu. Hann minntist á, að ekki væri æskilegt, að ríkisstj. tæki að sér að setja landsverzlun með fánastengur og till. okkar gæfi ástæðu til að ætla slíkt. Till. okkar benti ekki hið minnsta í þá átt, og dytti tæplega nokkrum manni í hug að fara inn á þetta hugmyndaflug hv. þm. — Hann talaði um, að óeðlilegt væri, að ríkisstj. tæki upp samvinnu við verzlunarstéttina um þetta efni. Mér finnst sjálfsagt, að ríkisstj. geti snúið sér t. d. til SÍS og annarra verzlunarfélaga og farið fram á, að þau beittu sér fyrir því, að þau hefðu sem mest fyrirliggjandi efni í fána og fánastengur. — Hv. þm. telur óeðlilegt, að Alþ. snúi sér til hreppsnefnda, sýslufélaga og bæjarfélaga, og finnst mikið umstang að senda 500 bréf. Ef honum finnst það kostnaðaratriði að eyða frímerkjum í þessu sambandi á 500 bréf, þá mun hv. þm. sjá ofsjónir. Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, en vil fara fram á, að till. allshn. verði tekin til greina og nái fram að ganga.