10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í D-deild Alþingistíðinda. (4456)

68. mál, framkvæmdir á Rafnseyri

Bjarni Benediktsson:

Ég get mjög vel fallizt á það, að Íslandssaga verði ekki skrifuð upp eða breytt af mér eða hv. þm. V.-Ísf., og var það sú aths., sem menn eiga að venjast úr þeirri átt, en ekki sérlega efnismikil. En eins og það er víst, að hlutur Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttunni hvorki minnkar né vex við það, að lýðveldi verður stofnað á Íslandi, mun hlutur hans ekki minnka við það, að efnislaus till. sé hér samþ. og borin upp sem uppbót fyrir það, að Alþ. samþ. ekki sjálft að halda þjóðhátíðina 17. júní, sem þá var gert með þeim yfirlýsingum, sem fyrir liggja. Og ég er viss um, að ef hæstv. ríkisstj. fær þetta mál til meðferðar, mun hún reka það af fullkominni samvizkusemi. En ég vil ekki, að málinu sé vísað til ríkisstj., því að það er of lítils virði til þess, að gerð sé um það samþykkt. Ég álít, að það sé ekki tímabært, að Alþ. geri um það hátíðlega samþykkt og að sú n., sem á að gangast fyrir hátíðahöldunum tiltekinn dag, sé til þess kvödd að segja til um það, hvort koma eigi upp gistihúsi, sem líka gæti orðið skóli fyrir Vestfirði. Þetta eru svo ólík atriði, að ég skil ekki í öðru en að hv. flm. geti á þetta fallizt.