10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í D-deild Alþingistíðinda. (4465)
72. mál, læknishéruð
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. — Ég flyt hér litla brtt. um svolítið annað orðalag. Mér þykir rétt, að þessi n. hafi þarna stærra verksvið og að í stað orðanna „skipun læknishéraða“ komi: „skipun heilbrigðismála og sérstaklega læknishéraða“. Ég er hræddur um, ef n. verður látin taka þetta til athugunar, að menn kunni að komast að þeirri niðurstöðu, að það verði meira en læknishéruðin, sem hún verður að taka til athugunar. Ég býst ekki við, að þetta verði sérlega mikið deiluatriði, en ég vil leggja þetta til, þó að ég sé þessari till. samþykkur.
Ég vildi skjóta því til hv. þm., hvort ekki vanti hjá þeim að íhuga kostnaðinn við þessa n.