10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í D-deild Alþingistíðinda. (4481)

72. mál, læknishéruð

Einar Olgeirsson:

Allar þessar till. eru takmarkaðar af því, sem segir í tillgr., sem nýbúið er að samþ., að athugunin skuli gerð „með tilliti til þeirra erfiðleika, sem á því eru að tryggja dreifbýlinu nauðsynlega læknishjálp.“ Þess vegna tel ég bæði hættulaust og að öðru leyti alveg nauðsynlegt að gera starf n. dálítið víðtækara en fyrirhugað er og segi því já.