11.03.1944
Sameinað þing: 30. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í D-deild Alþingistíðinda. (4487)
72. mál, læknishéruð
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. — Eftir ósk, sem fram kom á síðasta fundi við fyrri umr. þessa máls, hefur allshn. tekið till. til athugunar, þótt henni að vísu væri ekki formlega til hennar vísað. N. hefur þess vegna ekki gefið út nál., en leyft sér að leggja fram brtt. á þskj. 243. Við fyrri umr. var samþ. skrifl. brtt., er lögð var fram á síðustu stundu, og fannst allshn., að hún félli ekki alls kostar saman við nál., svo að vel færi. Þótti því nauðsynlegt, að tillgr. væri orðuð um á þann hátt, sem um getur á þskj. 243. Hins vegar taldi n. ekki rétt að fara efnislega út fyrir þann ramma, sem lagður hefur verið við fyrri umr. málsins, og telur, að með þessari umorðun sé það ekki gert, heldur væri aðeins í betra samræmi við þær samþykktir, er áður væri búið að gera, og þann höfuðtilgang till. að greiða fyrir því, að bætt verði úr þeim vandkvæðum, sem nú eru á læknisþjónustu í hinum dreifðu byggðum landsins. Í samræmi við þetta leyfir allshn. sér einnig að leggja til, að fyrirsögn till. verði stytt og verði eins og segir í 2. lið brtt.: „Tillaga til þingsályktunar um læknisþjónustu í sveitahéruðum.“ Allshn. telur betur fara á þessu en eins og fyrirsögnin er nú í till., þar sem tekin eru upp ákveðin verkefni, sem n. á að miða við. Við álítum, að þótt þau tvö verkefni, sem nefnd eru, séu í rauninni aðalverkefnin, sem þessi n. eigi að leysa af höndum, sé þó ekki rétt að binda hendur n. þannig með þessari fyrirsögn, að hún geti ekki talið sig hafa frjálsar hendur um að gera víðtækar athuganir og till., sem þó væru bundnar við höfuðmarkmið till.
Skriflega brtt., sem hv. þm. Borgf. lagði fram hér við fyrri umr. og var samþ., hefur allshn. einnig fellt inn í niðurlag fyrri málsl. tillgr., þótt tilætlun Alþ. virtist líka vera, að n. hefði leyfi til þess að gera þessar víðtæku athuganir og breyt., sem að vissu leyti gætu verið um að breyta læknamálunum, en gætu þó ekki orðið víðtækari en svo, að þær væru bundnar við höfuðtakmark till., sem sé að bæta úr skortinum, sem nú er á læknaþjónustu í hinum afskekktu héruðum landsins.
Allshn. væntir því þess, að enginn ágreiningur verði um þessa brtt., sem n. nú flytur, þótt þessi umorðun sé nú gerð á till., þar sem við höfum haldið okkur við hinn efnislega ramma hennar. Við teljum, að þannig sé þeim höfuðtilgangi náð, sem samkvæmt fyrri umr. vakti fyrir Alþ. um úrbætur á þessum málum, og vona ég því fyrir hönd n., að brtt. verði samþ. í því formi, sem lagt er til.