11.03.1944
Sameinað þing: 30. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í D-deild Alþingistíðinda. (4490)

72. mál, læknishéruð

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. — Mér skildist fyrst á hv. þm. Ak., þegar hann var að tala um þá brtt. n. að stytta fyrirsögn till., að með því fyndist honum verið að rýmka verkefni n. þeirrar, sem kjósa á samkv. till. Ég taldi þess vegna ástæðu til að benda á, að það er ekki ætlun allshn., vegna þess að í sjálfri tillgr. er kveðið á um þau verkefni, sem ætlazt er til, að sú n., er kjósa á, leysi af hendi. Allshn. fannst því ekki ástæða til að taka upp alla gr. í sjálfa fyrirsögn till.

Hv. þm. Ak. lýsti yfir því í lok ræðu sinnar, að hann gæti sætt sig við að hafa fyrirsögnina miklu styttri en hún var áður og vildi jafnvel stytta hana enn meir, svo að það virðist þá ekki skoðun hans að taka sjálfa tillgr. inn í fyrirsögnina. Þetta er því alveg hið sama og vakir fyrir allshn., og ég geri ráð fyrir því persónulega, að allir nm. muni geta fallizt á uppástungu hæstv. forseta um að taka inn í fyrirsögnina: skipun læknishéraða. Ef allir hv. þm. gætu síðan sameinað sig um þetta, held ég, að málið sé leyst, og því engin ástæða til þess að deila um það frekar. Ég fyrir mitt leyti get vel fallizt á þessa lausn.