20.06.1944
Sameinað þing: 35. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í D-deild Alþingistíðinda. (4507)
80. mál, þjóðminjasafn
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Ég hef sérstöðu í þessu máli að ýmsu leyti og vil gjarnan láta hana koma fram. Ég er eindregið með því að ákveða, að hafizt sé handa um að byggja hér þjóðminjasafnshús yfir gripi, sem við eigum í öllum þeim söfnum, sem hv. frsm. gat um. En það liggur ekki fyrir mér nein vitneskja um það, hvort ríkisstj. hafi þrjár millj. til að leggja til hliðar í þessu skyni. Ég vil ekki byrja mína göngu í lýðveldinu á því að ákveða, að þrem millj. kr. skuli varið til þessara framkvæmda, ef á að taka það frá öðrum framkvæmdum, sem áður er búið að ákveða, eða ef á að gera þetta utan við fjárl. Við sitjum á fjárlagaþingi og eigum að taka á fjárl. þau útgjöld, sem við teljum réttmæt, og getum því aðeins samþ. till. sem þessa, að afla til þess tekna eða lofa að taka fjárveitingu í því skyni upp á fjárl. Hins vegar er ég með því, að hafizt verði handa um að byggja þetta hús, og skal ekki verða eftirbátur annarra með að ætla til þess fé á fjárl. En ég hefði gjarnan viljað, að við hefðum byrjað okkar lýðveldi á því að hætta að veita fé á fé ofan utan við fjárl., eins og því miður hefur viljað brenna við undanfarin ár. Ég mun því ekki taka þátt í þeirri afgreiðslu.