22.02.1945
Efri deild: 134. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1621 í B-deild Alþingistíðinda. (4521)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Kristinn Andrésson:
Ég hef skrifað undir þetta nál. með fyrirvara, og minn fyrirvari er sá, að ég er andvígur þessu frv. Það er alls ekki að neinu leyti eftir ósk okkar, að gert hefur verið þetta samkomulag við búnaðarþing um þann afslátt, sem bændur buðu fram, miklu heldur hefðum við viljað halda allt það samkomulag milli bænda og verkamanna, sem ákveðið var með starfi sex manna n. Enn fremur er því marglýst yfir, að við erum mótfallnir þeim uppbótagreiðslum á .landbúnaðarafurðir. sem fram hafa farið undanfarið, í því formi, sem þær eru. Við álítum þær í alla staði mjög vitlausar, þar sem menn fá því meiri uppbætur, því minni ástæða sem er til að veita þær, þannig að uppbæturnar koma nærri því eingöngu til stórbændanna. Samt sem áður, þar sem þetta er eitt af grundvellinum til stjórnarsamvinnunnar, og það, að við gengum inn á að leggjast ekki á móti frv., sýnir, hvílíka áherzlu við lögðum á að koma á nýrri stj., sem tæki upp nýja stefnu í atvinnumálum þjóðarinnar. Við munum því ekki greiða atkv. á móti frv., en að líkindum sitja hjá við atkvgr.