22.02.1945
Efri deild: 134. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1625 í B-deild Alþingistíðinda. (4526)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Ég get látið nægja stutta athugasemd. Hv. fyrri þm. Eyf. hefur dregið úr ummælum sínum í sambandi við þetta mál og skýrt það á allt annan hátt en kom fram í fyrstu umr. hans. Hvað því viðvíkur, að ég var spurður að því. hvers vegna ég styddi þessa stjórn, þá get ég svarað því, að það réð ekki litlu um mitt fylgi við þá ríkisstjórn, sem nú er, að einmitt þessi mál hefur sá maður til framkvæmda sem ég treysti langbezt til að framkvæma þau. Honum þykir það kannske ljóður, að ég skyldi hafa gert það, en ég álít, að enginn annar þm. sé færari um að framkvæma þetta mál með fullri sanngirni heldur en núverandi landbrh. Og þetta réð talsvert miklu um það, að ég styð þessa stjórn, þó að hún sé skipuð að tveim sjöttu af þeim mönnum, sem hv. þm. bendir á, að hafi svona skoðun á málinu yfirleitt, og álít ég, að þetta sé nægilegt svar. Við skulum deila um það seinna, hvort sá þáttur verður verr leystur heldur en var í þeim glundroða, sem ríkti áður á Alþ.
Ég vil spyrja hv. þm. að því, hvernig á því standi, að þeir skyldu skjóta sér undan þeirri skyldu að gæta hagsmuna þessara manna í ríkisstjórninni, — manna, sem þeir þykjast bera alla umhyggju fyrir, bæði utan þings og innan? Ég held, að þeir hafi brotið meira þar með því að skjóta sér undan því heldur en ég hef brotið með því að fylgja þeim landbrh., sem ég tel hæfastan til þess að fara með þessi mál.
En hitt var ákaflega gott að heyra, að fulltrúarnir á búnaðarþinginu eru pólitískt kosnir. Þeir eru ekki settir undir það ákvæði stjórnarskrárinnar að greiða atkv. eins og þeirra sannfæring segir um, slík vinnubrögð eru ekki viðhöfð þar, eins og sérstaklega kom fram í ræðu hv. fyrri þm. Eyf. við umr. um þetta mál.
Jónas Jónsson: Herra forseti. —- Það var við ræðu hv. 7. landsk., sem ég vildi gera nokkra athugasemd. Hann hélt því fram, að hann og hans flokkur væri til með að borga verðlaun fyrir vörur, sem væru framleiddar af einyrkjum, en ekki vörur, sem væru framleiddar öðruvísi. Þetta kom hvergi fyrir í sex manna álitinu, sem hans flokksbræður áttu þátt í að skapa. Og það hefur líka aldrei verið prófað fyrr en þá nú, að hann og hans flokkur vili gera þessa stiggreiningu. Ef til dæmis á einu heimili, eins og víða er, að faðir og 2 synir eru heima og synirnir vinna að búinu eins og húsbóndinn, þá er ákaflega erfitt að útskýra það, hvernig á að reikna út það, sem húsfaðirinn hefur gert af framleiðslunni. Það má segja að það sé þriðjungur af vinnunni. Þá er þessi spurning, hvers vegna eiga synirnir að fá hærra kaup? Því að það yrði samkvæmt sex manna samkomulaginu. Þess vegna hlýtur hv. þm. að sjá, að þetta er samningsrof, sem hann er að reyna að afsaka, nema þeir hafi haft fulltrúa, sem voru svo illa að sér, að þeir hafi ekki vitað, hvað þeir skrifuðu undir.
Þá skildist mér af ræðu hv. þm., að hann áliti, að það væri sérstakt happ fyrir framleiðendur, að partur af andvirðinu væri greiddur af ríkissjóði. Það væri ákaflega skrýtið, ef það væri fagnaðarefni, ef t.d. bændur austur í Flóa fengju part af því verði, sem þeir fá fyrir mjólkina, greiddan úr ríkissjóði, í staðinn fyrir að kaupandinn greiddi það. Þessu er alls ekki svo farið. Bændum er mikið mein gert með þessu fyrirkomulagi og þykir sér ekki verra verk gert heldur en að knýja verðið niður á vörunni eins og hér er gert ráð fyrir. Af hverju er þetta gert? Til þess að létta lífið fyrir hv. 7. landsk. og mér, sem búum í bæjum, vegna þess að ríkið borgar þarna part af okkar daglegu matvöru, við erum betur settir fjárhagslega. Ég veit, að hv. þm. skilur þetta, að þetta er eingöngu gert í þágu neytenda.
Og mér finnst eðlilegt, að við tækifæri reyni hv. þm. að útskýra þetta, því að það væri í fyrsta sinn. sem það væri gert forsvaranlega, ef það tekst.
Þá vil ég snúa mér að hv. þm. Barð., sem kom hér með eina kenningu, sem mér þótti ánægjulegt að heyra. Eins og vitað er, er ánægjulegt að hafa 6 menn í ríkisstjórn, en mér fannst hann gefa hv. fyrri þm. Eyf. undir fótinn, að 2 menn úr hans flokki gætu gjarnan fengið að vera með, svo að ráðh. gætu verið 8. Ég vil gjarnan heyra það hjá þessum manni, sem er svo nátengdur hæstv. forsrh., ef hann vill útskýra það nánar, hvort það hafi raunverulega staðið til. (BBen: Stóð það ekki til boða í 2 ár?) Ég lít svo á, að hv. þm. Barð. hafi réttilega bent á það augnablik, þegar ríkisstjórnin varð til. Þó að ég hafi því miður litla möguleika til þess að verða sá 7. eða 8., þá finnst mér það miklu skipta vegna minna samherja, hversu réttlátlega hv. þm. Barð. hefur skammtað ráðherradóminn. Við getum fært okkur svo saman, að það verði pláss fyrir 2 stóla í viðbót, ef því er að skipta, en ef hv. þm. álítur það ekki framkvæmanlegt að bæta svo við, að ráðh. verði 8, þá finnst mér hann hafi haft hetta í fíflskaparmálum og þá hafi hann verið að vekja hjá okkur vonir, sem aldrei er hægt að láta rætast.
Annars finnst mér, þar sem enginn þessara 6 ráðh. er viðstaddur, en hv. þm. Barð. er mjög hlynntur ríkisstjórninni, fara vel á því, að hann, sem stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar, láti í ljós við þessar umr. þakklæti til búnaðarþingsins í haust fyrir það, sem hv. fyrri þm. Eyf. tók fram, að hefði gert það mögulegt, að þessi vel mannaða ríkisstjórn komst í stólana. Það virðist vera sögulegur dómur, eins og hv. 7. landsk. tók fram, að þessi stjórn hefði aldrei fæðzt nema fyrir það, sem þessir 25 bændur gerðu, og þeim hafi svo verið lofað, að hér ætti að mynda stjórn, þar sem rauðu elementin væru alveg fjarlægð. Mér finnst, að það ætti vel við, að það kæmi frá stjórnarbekknum almenn þakkargjörð fyrir það, að búnaðarþingið hefur tekið á sig ábyrgðina af því að afhenda 8 millj. kr., sem bændastéttin átti rétt á að fá að lögum. Því þó að segja megi, að búnaðarþingið, sem nú situr, hafi kannske nóg annað að hugsa en að móttaka þakklæti, þá er það svo, að þegar menn hafa gert vel, þá hefur þess verið minnzt opinberlega, og ég treysti hv. þm. Barð. bezt til þess.