26.02.1945
Efri deild: 136. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1637 í B-deild Alþingistíðinda. (4547)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Frsm. (Magnús Jónsson):
Við 2. umr. var brtt. 559, frá hæstv. landbrh., tekin aftur, sakir þess að n. hafði af misgáningi ekki tekið hana til athugunar, og liggur hún fyrir nú.
N. hefur tekið till. fyrir og hefur ekkert við hana að athuga. Till. fer aðeins fram á það, að stj. hafi frjálsar hendur um útflutning þeirra vara, sem um ræðir, án þess að þær vörur eigi að missa af uppbótum eða tryggingum við það. Við athugun á till. kom þó í ljós, að till. væri ef til vill ekki alveg tæmandi, og n. þótti rétt að bera fram við hana brtt. á þskj. 1212. Hún tekur af öll tvímæli um það, að þær vörur, sem framleiddar eru á þessu tímabili, komi einnig undir þetta sama. Í till. ráðh. segir aðeins, að vörur, sem framleiddar eru 1944 eða fyrr, eigi að flytjast út á því ári, þ.e. árið, sem talað er um í frvgr., og gæti nokkur vafi leikið á um þær vörur, sem framleiddar væru eftir árið 1944. Ég vil því mæla með því, að þessi brtt: verði samþ. með þeirri breyt., sem n. hefur borið fram við hana, og málið verði þannig afgr.