26.02.1945
Efri deild: 136. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1642 í B-deild Alþingistíðinda. (4554)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Hermann Jónasson:
Herra forseti. — Ég ætla ekki að ræða þessa dagskrá frekar en ég gerði áðan, en ég held, að það sé samt sem áður rétt fyrir hv. þdm. að gera sér ljóst, hvaða ástand hún skapaði fyrir íslenzka bændur og þjóðfélagið í heild, ef hún væri samþ. Ég get í því sambandi minnt á þál., sem var samþ. 26. sept. 1944, en inn á það ætla ég ekki að fara nánar.
Það hefur sérstaklega verið skorað á mig að segja í fáum orðum, hvernig ég skilji sex manna sáttmálann og dýrtíðarl. að því er snertir þetta mál. Ég held, að allir. sem kynna sér sex manna nefndar álitið, verði að viðurkenna, að það er tvennt ólíkt að segja, að þetta samkomulag sé ónýtt fyrir bændur og að það jafngildi því, að þjóðfélagið hafi fyrirskipað þjóðfélaginu að greiða bændum ákveðið verð. Það er tvennt ólíkt að halda því fram, að sex manna nefndar álitið hafi ekki það lagagildi, að það fyrirskipi ríkissjóði að borga bændum ákveðið verð fyrir landbúnaðarvörur, og svo hitt að vilja ekki ganga inn á þá skýringu, að það hafi litla þýðingu fyrir bændur, því að það hefur vissulega mikla þýðingu. Þetta álit, sem þar er gefið út og er í samræmi við dýrtíðarl. frá 1943. þýðir það, að sú n., sem þar var skipuð, kom sér saman um, að það verðlag, sem ætti að vera á landbúnaðarafurðum, til þess að rétt hlutfall næðist við kaupgjald, og hvernig það ætti að breytast, til þess að það væri í samræmi við kaupgjald annarra vinnandi stétta landsins, skyldi vera eins og þar er tiltekið. Þarf ég ekki að fara út í það, því að flestir þekkja þetta, að það, sem bændur áttu um að velja, var að setja verðið í samræmi við þetta álit, án þess að hafa nokkra vissu fyrir, að þeir fengju þetta verð, því að það er hvergi neinn stafur fyrir því í sex manna nefndar álitinu eða dýrtíðarl., að ríkissjóður eigi að greiða þessa peninga, en þeir, sem halda því fram, að þau séu jafngild launal., þeir yrðu að koma með það.
En hver er þá réttur bænda í samræmi við þessi launal.? Hann er þessi: Verðlagsn. á kjöti og mjólk geta, þegar þær koma saman til að verðleggja þessar vörur, gert álitsskjal um, hvað mikið af vörunum, kjöti og mjólk, mundi verða selt á erlendum markaði og hvað mikið mundi fást fyrir þær þar, og það er vitað, að það er miklu lægra en þær eru seldar á innlendum markaði. Síðan geta þær verðlagt vörurnar á innlendum markaði það hátt, að bændur fái til jafnaðar fyrir allar vörurnar það verð, sem sex manna n. sagði, að bændur ættu að fá. Þennan rétt háfa bændur samkvæmt sex manna nefndar álitinu. En ef þeir hafa rétt til að segja: „Þetta er verðið, sem við þurfum að fá, og þetta verður ríkissjóður að borga,“ þá hefur kjötverðlagsn. gert hrapalleg afglöp. en það hefur hún ekki gert. Réttur bænda hefur verið og er sterkur, af því að n. gat sagt við ríkisstj. 1943 og 1944: „Nú fæst ekki nema þetta á erlendum markaði, og þar af leiðandi verðum við að setja verðið þetta hátt á innlendum markaði,“ en það var 18 kr. s.l. ár. En þá kom ríkisstj. og sagði: „Í guðs bænum gerið þetta ekki, því að það stöðvar allt hjá okkur.“ Þá sagði n.: „Setjið þið þá það verð, sem þið álítið, að sé þannig, að hægt sé að reka íslenzka framleiðslu.“ Þá sögðu þeir 1943: „Svona mikið ætlum við að borga niður.“ Um leið og þeir settu verðið á þessa vöru bændanna á innlendum markaði, þá fyrirbyggir hún, að bændur geti, náð því verði, sem þeir eiga að fá samkvæmt sex manna nefndar sáttmálanum, því að verðið er svo lágt t.d. á kjöti, að ef það á að vera í samræmi við það, sem það þarf að vera til að halda dýrtíðinni niðri, þá er ómögulegt að borga á það þær uppbætur, sem þarf, eitt einasta ár.
Þegar stj. tiltók, að verðið á árinu 1945 skyldi vera eins og 1944, tók hún á sig þá ábyrgð að bæta upp vörurnar á erlendum markaði, og það er þessi juridiski réttur, sem við höfum haldið fram, að bændur hefðu. Stj. tók þannig á sig löglega skyldu til að greiða uppbæturnar. Þessu hefur verið haldið fram á Alþingi, og þetta álít ég, að sé tvímælalaus réttur. En stj. gat eins sagt: „Nei, elskurnar mínar, við borgum ekki einn eyri, setjið þið verðið svo hátt, að þið getið af því borgað sjálfir uppbót á útfluttu vörurnar, og þá fáið þið heildarverð samkvæmt sáttmálanum.“ En hún gerði það ekki, því að þá hefði orðið stöðvun á framleiðslunni. En bændur gátu sett þessa kosti, það er alveg rétt hjá hv. þm. S.-Þ. Þeir gátu sagt við ríkisstj.: „Annaðhvort borgið þið verðið niður og við fáum verð samkvæmt sex manna álitinu eða við setjum 18 krónur á kíló af kjöti og tilsvarandi á mjólk.“ Þetta gátu þeir sagt síðasta haust. Þetta er þeirra réttur, en þeir eiga ekki neina kröfu á ríkissjóð, eins og haldið hefur verið fram.
Bændur voru ekki skyldugir að fara þá leið, sem þeir fóru s.l. haust. Ég skal ekki segja, hvaða vonir þeir hafa gert sér í því sambandi. Hitt er alveg rétt, sem ég lýsti yfir áðan, að þessi eftirgjöf þeirra er á engan hátt frá þeirra hendi gerð vegna þess, að fyrir hafi legið yfirlýsing eða loforð um, að mynduð yrði ríkisstj. framsóknar- og sjálfstæðismanna, en það kann að vera, að menn hafi gert sér vonir um það, ég skal ekkert um það segja, geri þeir gerðu sér áreiðanlega vonir um, að fleiri lækkuðu hjá sér og að þetta tilboð þeirra yrði til að lagfæra fjármálaástandið í landinu, en ekki, að allt mundi hækka. En eins og nú er komið, álít ég ekki eðlilegt að snúa við.
Sex manna nefndar álitið er því stórkostlegur réttur fyrir íslenzka bændur. Eftir að þeir hafa boðið þetta haustið 1944, kemur september 1945, og þá hafa bændur rétt til að hækka um 9,4%, því að þeir gáfu aðeins eftir fyrir eitt ár. Við getum sagt, að þessi samningur hafi verið gerður eingöngu til reynslu til að sjá, hvort þingið, stéttirnar og þjóðfélagið er fært um að taka þessu tilboði og lækka víðar. En bændur hafa ekki einu sinni leyfi til að hækka um 9,4% næsta haust. Þeir hafa líka leyfi til að hækka í samræmi við allar kauphækkanir, sem gerðar verða á árinu. Og næsta haust í september segja bændur án tillits til, hvort stríðið verður búið eða ekki: „Þetta er hlutfallið, sem var ákveðið af hagstofustjóra Íslands, hlutfall, sem okkur var líka ákveðið af fulltrúum Alþýðusambands Íslands.“ Og þá kemur sama tilfellið aftur, og ég skal ekki segja, hvort þeir gera það sama aftur, en þennan rétt hafa þeir eins næsta haust. Og þess vegna er þetta réttur þeirra, eins og ég hef nú verið að túlka. Það er ekki juridisk krafa á þjóðfélagið, sú krafa er ekki til, heldur hafa þeir rétt, sem sjálfsagt er að nota, til að setja verð á afurðir sínar í samræmi við sex manna nefndar álitið, sem tryggði þeim hlutfallslega sömu tekjur og öðrum stéttum. Þess vegna er það, að bændur í raun og veru kjósa um það tvennt næsta haust, hvort þeir vilja framfylgja til hins ýtrasta að setja 18 krónur á kjötkíló til að geta bætt það, sem selt er á erlendum markaði, því að stj. getur sagt: „Við borgum ekki einn eyri,“ og þá geta bændur sett 18 krónur á kjötkíló til að bæta sér sjálfir það verð, sem fæst fyrir útfluttu vörurnar. Þennan rétt hafa þeir vitanlega, hvort sem stríðið verður búið næsta haust eða ekki. Ég er þeirrar skoðunar, að þessi stj. hafi farið með þetta mál mjög mikið öðruvísi en æskilegt hefði verið, svo að ekki sé sterkara að orði komizt, og að hún hafi ekki sýnt sig í vináttu við bændur, eins og þeirra mál hafa verið afgr. á þingi. En samt sem áður vil ég heldur, að bændur hafi gert það, sem þeir gerðu, en að þeir hefðu ekki gert það. Hitt er allt annað mái. þegar þeir eru teknir eins og gert hefur verið, þó að þeir skapi sér nýtt vöruverð, og bændur geta miklu betur gagnvart íslenzku þjóðfélagi staðið sig við það, eftir að þeir eru búnir að bjóða fram gagnkvæma lækkun og því boði hefur ekki verið tekið og síðan að lækka einir og því er svarað með hækkun frá hinna hálfu, því að þá geta þeir ekki lengur haldið áfram, úr því að sú fórn, sem þeir færðu, hefur ekki haft minnstu áhrif. Ég tel því, að bændur séu búnir að gera sitt ýtrasta og þeirra aðstaða sé því nú raunverulega sterkari en hún hefði verið, ef þeir hefðu farið þá leið að setja verðið s.l. haust á 18 krónur með þeim afleiðingum, sem það hefði haft fyrir íslenzkt þjóðfélag. En svo langt getur þetta gengið, að þegar þeirra fórn hefur enga þýðingu, þá eru þeir neyddir til þess, sem þeir hefðu ekki annars viljað gera.