26.02.1945
Efri deild: 136. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1646 í B-deild Alþingistíðinda. (4556)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Frsm. (Magnús Jónsson):
Ég ætla mér ekki að segja margt. Ég sé eftir þeim tíma, sem fer í að ræða um þetta mál, þar sem telja má víst, að ákveðið sé að samþ. það.
Það gæti orðið langt mál, ef farið væri að ræða um dýrtíðarlögin almennt og sex manna nefndar álitið, eins og hv. þm. Str. var að gera, og hvaða réttindi fylgdu því. En mér finnst nokkur vafi leika á um það, sem hann sagði um þetta. Ég fyrir mitt leyti er ekki búinn að sjá, að ákveðið hafi verið 18 kr. verð á kjötkg síðastliðið haust. Því að eftir lögum og reglum er ekki tryggt, að öll varan seljist, og ekki tryggt að bæta upp útflutta kjötið. Er því bezt fyrir bændur, að kjötið seljist innan lands. Annars eru nokkur vafaatriði í dýrtíðarlögunum frá 1943. Þar stendur t.d., að við ákvörðun verðlags skuli tekið tillit til verðs á erlendum markaði. Mér hefur virzt ágreiningur vera um það, hvernig skilja bæri þetta. Álit sex manna n. er í raun og veru ekkert annað en áætlun, þar sem því er slegið föstu, hvaða tekjur bændur á meðalbúum þurfi að hafa til þess að hafa tekjur í samræmi við aðrar vinnandi stéttir. Með tilliti til þess á n. að ákveða verð á landbúnaðarvörum, svo að ætla megi, að bændur fái þessar tekjur. Fram yfir þetta nær tryggingin ekki. Þetta er auðvitað afar mikils virði, eins og hv. þm. Str. tók fram. Þarna eru ákveðin hlutföll milli stéttanna.
Hv. þm. S.-Þ. vildi líkja sex manna álitinu við launalögin og virtist telja, að þar væri um hliðstæð mál að ræða. Úr því hv. þm. minntist á þetta, ætla ég að fara um það nokkrum orðum:
Auðvitað eru launal. og sex manna álitið ákaflega ólík l., m.a. vegna þess, að ef ætlað er að tryggja bændum laun, þá verður ríkið að hafa fullkomið eftirlit með framleiðslu þeirra. Ekki geta sýslumenn ákveðið sjálfir, hve margir þeir eru, t.d. 100 eða 1000 og allir með sömu laun. Ef bændur ættu að hafa ákveðnar tekjur hliðstætt og embættismenn, yrði ríkið að hafa vald til að á kveða, hve margir bændurnir skuli vera og hvað þeir framleiða. Það er ómögulegt, að þeir reki sjálfstæðan atvinnurekstur, en sé tryggð föst laun hjá ríkinu. Í þessu kemur einmitt fram grundvallarmunurinn á þessu. Hitt er svo annað mál, ef ríkið ætti allar jarðir og ræki búin og hirti afraksturinn af þeim, þá væri hægt að tryggja bændum ákveðin laun fyrir að reka þau. En þá værum við líka komnir í yfirkommúnistiskt skipulag. Og þá mætti fyrst segja, að bændur væru komnir í sams konar aðstöðu og embættismenn. En svo má geta þess, að bændum er alveg frjálst að reka bú sín þannig, að þeir hafi meiri tekjur, í stað þess, að embættismönnum eru tryggð ákveðin laun og ekki meir. (JJ: Og svo eru það bitlíngarnir.) Í þeim efnum gildir sama máli um bændur og aðra. Þeir mega stunda hvað þeir vilja utan við sitt starf, t.d. sitja á þingi. Svo að þetta er alveg hliðstætt fyrir báða aðila. Annars er alveg óþarfi að vera að ræða þetta. Ég veit, að hv. þm. S.-Þ. sagði þetta ekki vegna þess, að hann meinti það. Hann vill tefja málið af einhverjum dularfullum ástæðum. Menn hafa tekið eftir því, að hann heldur mikið af ræðum nú og hefur ekki sérstaklega mikinn áhuga á, að störfin gangi mjög fljótt. Ef dagskráin væri athuguð gaumgæfilega, gæti ég trúað, að hulinn vísdómur kæmi í ljós, því að hann vill sýnilega ekki, að málið gangi rétt fram.
Annars hef ég ekki margt við það að bæta, sem ég sagði í síðustu ræðu minni. Um dagskrána er það að segja, að hvort sem hún er skynsamleg eða ekki er ómögulegt að samþ. hana, vegna þess hvað mikil ósannindi eru í henni. Slíkt getur maður ekki gert með hreinni samvizku. Sem formaður útvarpsráðs vil ég segja það, að það verður að fara að takmarka þann rétt, sem nú er, varðandi lestur þingskjala í útvarpið, ef menn fara að nota sér það frelsi til að skrifa heilar blaðagreinar sem rökstuddar dagskrár, en það er nú óheyrt þar til nú. Hingað til hefur allt slíkt verið lesið til þess að reyna að halda útvarpinu hlutlausu í þessum efnum.
Ég vildi svo beina því til allra hv. dm., nema hv. þm. S.-Þ., að þeir færu að afgreiða þetta mál og samþ. frv. eins og það lítur út. Breytingar á frv. liða til þess, að það verður að fara til Nd. aftur, og það má ekki tefjast mikið, ef það á að verða að l., áður en þingi verður slitið.