22.02.1945
Neðri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (4592)
256. mál, gjald af söluverði fisks erlendis
Pétur Ottesen:
Herra forseti. — Ég gat þess, þegar ég reifaði þessar brtt. hér í gær, að fyrri brtt. væri flutt út af ákveðnu atviki, vegna þess að eitt félag, sem mér er vel kunnugt um, tapaði á rekstri s.l. ár. Það er ástæðulaust fyrir frsm. að rengja þetta, því að fyrir því liggja fullkomin rök og staðreyndir.
Viðvíkjandi því, sem hann sagði um síðari brtt., þá er það rétt, að hún lækkar dálítið þennan skatt, sem hér er um að ræða. En mér virðast liggja svo góð og gild rök fyrir því að draga þann kostnað frá, áður en skatturinn væri reiknaður út, að það bæri að gera. Og þess vegna hef ég flutt þessa brtt. En ég skal ekki endurtaka þau rök, sem ég um þetta hef sýnt hér áður, það er ástæðulaust. En ég vildi aðeins skjóta þeim tilmælum til hæstv. forseta, þegar til atkvgr. kemur, að ég óska eftir nafnakalli um fyrri brtt.