20.06.1944
Sameinað þing: 36. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í D-deild Alþingistíðinda. (4739)

83. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Eins og ég gat um, þegar ég lagði þáltill. fram, fylgdi ég þeim meiri hl., sem kom fram hér í gær, og lagði till. fram í því formi. að þ. skyldi kvatt saman í síðasta lagi 15. sept. Ef atkvgr. félli nú á annan veg, þannig að tímatakmarkið yrði 2. sept., mundi ég líta svo á, þó að í bréfinu standi „í síðasta lagi 15. sept.“, að stj. væri skyldug til að kalla þ. saman 2. sept. ellegar að fá nýtt bréf.