14.09.1944
Sameinað þing: 42. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í D-deild Alþingistíðinda. (4752)
116. mál, verðlækkun á vörum innanlands
Ólafur Thors:
Þessi till. fjallar um einn lið í allvíðtækum málefnasamningi, sem ræddur hefur verið undanfarna daga af fulltrúum allra þingflokka. Ég tel það ekki málinu til framdráttar, að þeir samningar verði ræddir á þessu stigi í hæstv. Alþ., og mun þess vegna ekki gera það. Ég álít rétt, eftir atvikum, að till. þessari verði vísað til n. og hún verði þá rædd í sama anda og umr. hafa farið fram undanfarna daga. Þætti okkur sjálfstæðismönnum mikils um vert, að þingið gæti orðið sammála um afstöðu til þessarar till., sem hér liggur fyrir. Ég geri ráð fyrir, að von sé nú á fleiri till. til úrlausnar á þessu efni, og mundi þá verða reynt í hlutaðeigandi n. að bræða þær saman. Skal ég svo ekki hafa þessi orð fleiri, en leyfi mér að leggja til, að málinu verði vísað til fjvn.