14.09.1944
Sameinað þing: 42. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í D-deild Alþingistíðinda. (4753)

116. mál, verðlækkun á vörum innanlands

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég vil aðeins endurtaka það, sem ég sagði hér á fundi áður í dag, að við tveir fjhnm. Nd. höfum lagt fram till. um, að þeirri verðhækkun, sem hér er um að ræða á landbúnaðarafurðum, verði frestað meðan þingflokkarnir ræðast við um dýrtíðarmálin í heild sinni. Það er áreiðanlega gott fyrir þá samninga, að þessi verðhækkun komi ekki nú þegar í gildi, um það getur engum blandazt hugur. Við höfum gert það að okkar till., að þessari framkvæmd verði frestað, og þó ekki lengur en til 1. des., ef þingið hefur ekki áður gert neina samninga um þetta efni. Það er okkar meining líka, að ef þingið gerir ekki um það neina aðra samþykkt, sé fresturinn upphafinn og komi hækkunin til framkvæmda 15. nóv., eins og er samkv. núgildandi l. Það má segja margt um það, að forðast þurfi að dýrtíðaraldan flói yfir. En það þarf enginn að halda, að þetta mál sé leyst með því að borga dýrtíðina meir og meir niður og hækka skatta að sama skapi. Þó að þetta sé talið gert fyrir atvinnuvegina, til þess að þeir þurfi ekki að borga hærra kaup, þá verkar það á sinn hátt alveg eins og kauphækkun, að auka stöðugt skattana. Það má færa þetta og þetta yfir á ríkissjóð, segja menn, en það er svipað og að segja, að klárinn beri ekki það, sem ég ber. Því að allt hvílir þetta á atvinnulífinu, hvaða nafni sem nefnist, laun eða skattar. En ég ætla ekki að fara lengra út í þá sálma nú. Okkar till. er ekki um neina lausn á þessu máli á þessu stigi, heldur aðeins um frest, svo að flokkarnir hafi svigrúm til að ráða ráðum sínum.