22.02.1945
Neðri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (4828)
82. mál, endurveiting borgararéttinda
Sigurjón Á. Ólafsson:
Þetta mál mun heyra til þeirrar n., sem ég á sæti í, allshn., og þessi brtt., sem hér liggur fyrir, er ekki gerð að vilja n., svo að það eru aðeins örfáir menn í n., sem að henni standa. Ég vil því mælast til, að þetta mál sé athugað á ný í n. og í sambandi við hæstv. ríkisstj.