11.09.1944
Sameinað þing: 40. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í D-deild Alþingistíðinda. (4855)

103. mál, endurbygging Ölfusárbrúarinnar o.fl.

Sveinbjörn Högnason:

Ég þakka hæstv. atvmrh. fyrir ummæli hans, að það væri sjálfsagt að gera allt, sem hægt er, til að greiða fyrir flutningum vegna þess, sem fyrir kom með Ölfusárbrú. Ég sé ekki ástæðu til að lýsa þessari nauðsyn nánar. En ég vil láta það í ljós, að ég tel enga úrbót á flutningaerfiðleikunum til bráðabirgða annað en hægt sé að gera brú í skyndi, þannig að hún sé bifreiðum fær, enda heyrðist mér hann einnig halda því fram. Það sér hver einasti maður, að þótt hægt sé að koma á kláfferju eða halda flutningum uppi á einhvern hátt með ferju, þá er algerlega óhugsandi, þegar vetur kemur, að halda uppi samgöngum og flutningum yfir Hellisheiði með því, að bílar komist ekki yfir Ölfusá, og hafa þar af leiðandi ekkert viðgerðarverkstæði að flýja til, eins og það er títt, að eitthvað brotni hjá þeim í slíkum ferðalögum. En eins og nú standa sakir, virðist mér fullur skilningur hjá hæstv. ríkisstj. að gera allt, sem unnt er, til þess að koma brúnni í það horf aftur, að hægt sé með einhverju móti að notast við hana fyrir bifreiðir.

Um samgöngumöguleikana um Brúarhlaðir, meðan sakir standa eins og er, er það að segja, að þar er enginn vegur á kafla og sú leið ófær með öllu, þó að bílar hafi reyndar klöngrazt hann einn og einn undanfarna daga. Yfirleitt standa þeir tímunum saman fastir í feninu á moldarveginum. Þessi leið er ekki svo löng, að ekki mætti fljótlega gera hana bílfæra nokkurn veginn, meðan ekki leggur snjó. Það þarf ekki svo mikla vinnu. Ég var þarna á ferð á laugardaginn var. Og framkvæmdirnar þá voru ekki meiri en svo, að þar var einn einasti hestvagn og maður með hann og einn bíll á öðrum kafla á veginum. Síðan voru þarna bifreiðir að festa sig í tiltölulega stuttum vegarspottum, sem ófærir eru af því, að enginn ofaníburður er, heldur bara mold. Ef einhver kraftur væri settur á verkið í nokkra daga, t. d. l0 bifreiðir, til að bera ofan í verstu kaflana, þá er ég sannfærður um, að vegurinn yrði fær á fáum dögum. Þetta er mikið nauðsynjamál, því að það gefur að skilja, að afar örðugt er að þurfa að hafa bíla bæði austan megin og vestan megin árinnar án þess að geta hnikað þeim til, hvernig sem á stendur. Þess vegna vil ég eindregið mælast til þess, að jafnhliða þessu, sem ég álít höfuðatriðið, að reyna að koma á bráðabirgðabrú yfir Ölfusá, sem hægt er að koma bílum yfir, þá yrði bætt úr vegleysunni nálægt Brúarhlöðum, sem ég er sannfærður um, að hægt er að gera á fáum dögum. Þetta er spottinn frá Gróf og upp að Skipholti. Það er alls ekki langur vegarkafli, sem er eingöngu á moldarbotni. En það hefur alls ekki verið unnið neitt, sem talizt getur.

Það, sem að sjálfsögðu verður að leggja höfuðáherzluna á, er að fá brú á Ölfusá svo fljótt sem nokkur kostur er á, og veit ég, að á því er fullur skilningur hjá vegamálastjóra. En meðan verið er að koma brúnni upp, verður að gera aðrar þær ráðstafanir, sem unnt er, til að bæta úr allra brýnustu þörfinni, ekki aðeins með því að lagfæra verstu kaflana á veginum, heldur líka með bættum ferjum yfir Ölfusá. Það væri til mikilla bóta, ef þar kæmu stærri bátar með vél, svo að ekki þurfi að vera að kotla yfir ána á smákænum hundruðum manna auk 20 þús. lítra af mjólk á hverjum degi. Get ég ekki betur séð en að talsvert mætti bæta úr þessu með betri bátakosti, svo að ekki þurfi að standa í þessum smábátaflutningi alla daga. Þetta vil ég aðeins láta koma fram hæstv. atvmrh. til athugunar, og vænti ég, að hann íhugi, hvort ekki er hægt að bæta úr með slíkum bráðabirgðaráðstöfunum betur en enn hefur verið gert.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa um málið fleiri orð. Fjöldi flm. sýnir, að þinginu er ljóst, að úr þessu verður að ráða svo fljótt sem unnt er, svo að þessi aðalflutningaleið landsins verði ekki lokuð, ekki aðeins fyrir þá, sem fyrir austan eru og verða að flytja afurðir sínar og nauðsynjar þessa leið, heldur vegna þeirra, sem eru fyrir vestan og verða að fá mikið af nauðsynjum sínum austan yfir á.