11.09.1944
Sameinað þing: 40. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í D-deild Alþingistíðinda. (4856)

103. mál, endurbygging Ölfusárbrúarinnar o.fl.

Helgi Jónasson:

Herra forseti. — Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta mál. — Ég vil láta í ljós ánægju mína yfir því, hvernig hæstv. atvmrh. hefur tekið í þetta mál. Ég er sannfærður um, eins og hann hefur líka fullan skilning á, að það, sem verður að keppa að í þessu máli, er að fá bílfæra brú strax yfir ána. Ég er ekki sömu skoðunar og hv. þm. V.-Sk., að hægt sé í skjótri svipan að gera veginn um Brúarhlöð bílfæran. Ég fór þessa leið á laugardaginn og var sex stundir að komast þessa 20 km. Ég er sannfærður um, að þó að vegagerðin láti alla sína bíla í að fullgera þennan veg, þá gera þeir ekki betur en að laga hann það, að þeir geti komizt hann sjálfir. Ég legg þess vegna ekkert upp úr því, þó að reynt verði að laga þennan veg. Það verður ekki búið að gera hann svo góðan, að bílar komist hann hindrunarlítið, fyrr en þá í haust, þegar snjóar eru komnir. Það verður því að leggja allt kapp á að endurbæta brúna, sem nú hangir niður. Ég skal ekki segja, hvernig það gengur, en eftir því sem ég hef hlerað hjá verkfróðum mönnum, má telja líklegt, að takast megi að ná brúnni upp og styrkja hana svo, að nota megi hana sem bráðabirgðabrú. En meðan því er ekki komið í kring, verður að sjá um, að ekki þurfi að bíða eins lengi og nú þarf til að geta komizt yfir hana. Það er gersamlega ófullnægjandi að hafa þar aðeins smábáta, sem taka ekki nema þrjá farþega. Þegar ég fór þar yfir nú um helgina, voru tveir menn fyrir í bátnum, sem ég ætlaði með, og það hefur kannske verið af því, að ég er svo þungur, að ekki þótti óhætt að bæta mér við í bátinn, og varð ég því að bíða eftir næstu ferð. Flutningarnir yfir ána eru svo gífurlega miklir, að bráðnauðsynlegt er að fá fleiri og stærri báta. Aðalatriðið er auðvitað að fá brú aftur, en þessu með veginn legg ég ekki mikið upp úr.