03.10.1944
Sameinað þing: 50. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í D-deild Alþingistíðinda. (4885)
126. mál, opinberir starfsmenn
Frsm. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. — Sem sjá má, hefur n. verið að mestu sammála, þó að einn nm. hafi skrifað undir með fyrirvara, og hefur nú n. lagt til, að till. verði samþ. Það er óþarfi fyrir mig að fjölyrða um till. Í grg. fyrir henni er tekið fram flest, sem færa má til raka fyrir því, að hún verði samþ. Kom til umr. í n., að rétt væri að hnýta þessa till. við það frv., sem nú hefur verið lagt fram í Ed. til nýrra launal. En af því að ég held, að launal. verði tæplega samþ. á þessu þingi og það taki miklum breyt., finnst mér rétt að samþ. þessa till. Því verður ekki neitað, að eins og opinberir starfsmenn hafa ýmiss konar réttindi umfram aðrar stéttir, eins eiga þeir líka að hafa skyldur samkvæmt l. Ég lít svo á, að þessi till. sé ekki síður tímabær eða nauðsynleg vegna þess, að það er ekki langt síðan það var gefið í skyn, að opinberir starfsmenn ætluðu sér að hafa það eins og ýmsar aðrar stéttir, jafnvel að gera verkföll. Þau hafa raunar ekki verið boðuð enn sem komið er, en á fundum, sem ýmis stéttafélög hafa haldið, hafa málin verið rædd á þann veg eins og til mála gæti komið, að til verkfalla kynni að draga. Nú er það svo um marga þessa opinberu starfsmenn, að þeir hafa ýmis réttindi fram yfir aðra þegna þjóðfélagsins. Mörgum þessum mönnum hafa verið veittar stöður til lífstíðar og þar með tryggð atvinna meðan þeir geta unnið, en síðan veitt eftirlaun eftir að þeir hættu að geta starfað. Það er réttlátt, að menn, sem hafa slík forréttindi, verði líka að hafa skyldur, a.m.k. ekki síður en aðrir þegnar þjóðfélagsins. Ég skal ekki fara fleiri orðum um till. Ég vil aðeins láta þess getið, að ef fyrirvari hv. 2. þm. N.-M. er nokkuð alvarlegs eðlis, getur hann að sjálfsögðu gert grein fyrir honum.