18.01.1945
Efri deild: 105. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (4910)

257. mál, veltuskattur

Hermann Jónasson:

Ég vil, um leið og þetta mál fer til 2. umr., segja örfá orð um það, en það verða ekki nema nokkrar aths.

Það er ekki hægt að neita því, að þessi skattur, sem hér er fyrirhugað að leggja á, ber öll einkenni þess, að það sé orðið næsta erfitt að ná þeim tekjum, sem ríkissjóður þarf á að halda, enda féllu orð í þá átt hjá hæstv. fjmrh. og eins hv. stuðningsmanni stj., sem hér talaði, að skatturinn væri neyðarúrræði, og virðist mér, að þeir hafi ekki gert of mikið úr því, að skatturinn ber öll einkenni þess, að svo er, að það er orðið miklum erfiðleikum bundið í þessu góðæri að afla þess fjár, sem ríkissjóður þarf nauðsynlega á að halda, og það jafnvel svo, að þeir, sem athuga þetta frv., gætu komizt að þeirri niðurstöðu, að Ísland væri eitt af þeim löndum, sem mest hefði verið þjakað í þessari styrjöld, svo óvenjuleg er þessi skattaálagning, enda efast ég mikið um, að hún eigi sér fordæmi nokkurs staðar í veröldinni. Ég fullyrði það ekki, en ég efast mikið um það. Og það er einmitt það, sem kom fram hjá hæstv. ráðh. Hann sagði, að gallinn væri sá á þessum skatti, að hann kæmi tiltölulega létt niður á, þeim, sem hefðu litla veltu og mikla álagningu, en þungt niður á þeim, sem hefðu mikla veltu og litla álagningu. Þetta er vitanlega rétt hjá honum, en rangt hjá hv. 3. landsk., að þessi skattur gangi jafnt yfir réttláta og rangláta. Venjulega er það talið ákjósanlegt fyrirkomulag, að skattar gangi a.m.k. jafnt yfir réttláta og rangláta og helzt sem mest yfir þá, sem í vissum skilningi mætti kalla rangláta, en það er fullvíst, að þessi skattal. ganga fyrst og fremst út yfir þá réttlátu, og það var einmitt það, sem hæstv. fjmrh. tók réttilega fram. Það er talið ákjósanlegt í viðskiptum með öllum þjóðum, að viðskipti séu mikil, en lítil álagning, en hér er einmitt farið þannig að með þessari skattalöggjöf, sem hér er fyrirhuguð, að þeim er refsað, sem leggja lítið á vöruna, sem þeir selja, en þeir verðlaunaðir, sem hafa litla veltu, en leggja mikið á þá vöru, sem þeir selja. Það má benda á dæmi þess, að verzlanir hér, sem verzla með erlenda vöru, leggja mjög misjafnlega mikið á þá vöru, sem fer í gegnum hendur þeirra. Við skulum hugsa okkur fyrirtæki, sem rekið væri eins og verzlanir eru reknar sums staðar erlendis og hefði um 20 millj. kr. veltu, og það væri þannig, að hver og einn, sem kaupir vörur af þessari verzlun, afgreiddi sig sjálfur, eins og stundum tíðkast hjá þeim, sem vilja hafa veltuna mikla, en selja ódýrt. Við skulum segja, að þessi verzlun græði 150 þús. kr. Þá yrði hún að greiða í veltuskatt, ef þetta væri smásala, 50 þús. kr. fram yfir það, sem hún hefði í tekjur. Það verður því þannig, þegar þessi veltuskattur er kominn á, að þá er um að gera fyrir allar verzlanir að minnka veltuna og selja sem rándýrast.

Það má benda á fyrirtæki eins og S.Í.S. Miðað við veltu ársins 1943 ætti það að greiða í veltuskatt rúmlega 700 þús. kr. M.ö.o., þessi skattur um það biI þrefaldar þá skatta, sem Sambandið hefur greitt. Félag eins og Kaupfélag Ísfirðinga, sem hefur ákaflega litla álagningu, — eitt af þeim félögum, sem leggja minnst á, — kaupfélagið er venjulega með verð fyrir neðan aðra þar á staðnum —, það mundi borga eftir veltunni 1943 upp undir 40 þúsund kr. Kron í Reykjavík mundi greiða um 140 þús. kr. Þetta eru nokkurn veginn opinberir reikningar, en sama gildir vitanlega um alla hliðstæða kaupmenn og kaupfélög. Og þegar hv. 3. landsk. er að sannfæra menn um, að þessi skattur lendi ekki á neytendunum, heldur fyrst og fremst á þeim verzlunum og iðnfyrirtækjum, sem um er að ræða, þá er það vitanlega mál, sem ekki verður um deilt, að veltuskatturinn á samvinnufélögunum lendir beint á neytendunum, því að ágóðahluti S.Í.S. til samvinnufélaganna verður auðvitað þeim mun minni, sem skatturinn er hærri, og þar ofan á leggst þessi skattur á veltu kaupfélaganna. Það verður því ekki um það deilt, að þar sem kaupfélögin greiða meðlimum sínum ýmist í lægra verði eða uppbótum þann arð, sem verzlunin gefur, þá verður þessi veltuskattur á kaupfélögin beinn neytendaskattur á þá, sem við samvinnufélögin og kaupfélögin verzla.

Viðvíkjandi kaupmannaverzluninni ræddi hv. 3. landsk., hvernig yrði komizt hjá, að þeir veltu þessum skatti yfir á neytendurna. Telur hann miklu máli skipta, að þessi skattur sé lagður. á veltu ársins 1944, en ekki 1945. Ég skal ekki fara inn á það að svo komnu, hvaða munur muni vera á því, en mér sýnist, að ef kaupmenn geta velt yfir á neytendur skatti, sem er lagður á veltu þeirra 1945, með því að haga verzlun sinni þannig, þá geti þeir það alveg eins, þó að skatturinn sé lagður á veltu ársins 1944. Annars skal ég ekki fara inn á þetta atriði nú, það verður að sjálfsögðu tekið til athugunar síðar, en ég er ákaflega smeykur um það, þótt það sé tekið fram í þessu frv., að skatturinn eigi ekki að reiknast til kostnaðar við vörusölu, að grunur hv. 3. landsk. hafi við rök að styðjast, að skatturinn reynist sem hver annar tollur, sem kaupmönnum tekst með einhverju móti að velta yfir á neytendur. (GJ: Kaupfélögunum sjálfsagt líka.) Þau geta ekki annað, því að gróði þeirra verður að sjálfsögðu minni, þegar veltutollurinn er tekinn bæði af Sambandinu og kaupfélögunum sjálfum. Það er atriði, sem ég hélt, að ég þyrfti ekki að taka upp hvað eftir annað. Ég held því, að þessi veltuskattur sé nokkurn veginn það vitlausasta skattafyrirkomulag, sem hægt er að hugsa sér, einmitt fyrir þessa sök, að hann hittir fyrst og fremst, eins og hæstv. fjmrh. tók fram, þær verzlanir, sem reknar eru með minnstri álagningu, en hlífir þeim, sem leggja mest á vöruna, en hafa minnsta umsetningu.

Enn fremur er það auðsætt mál, að þessi skattur, eins og hann er, getur með hægu móti lent á fyrirtækjum, sem engar tekjur hafa. Það má enn fremur benda á, að þó að gert sé ráð fyrir, að þessi skattur verði ekki lagður á nema eitt ár, — en ég skal koma að því síðar, hve miklar líkur eru til, að það verði framkvæmt, hvað sem líður góðum vilja hæstv. stj. —, þá verður hann óumflýjanlega lagður á áframhaldandi, a.m.k. að vissu leyti. Það er ekki leyfilegt að draga skattinn frá tekjunum, þegar talið er fram til skatts. Þar af leiðandi getur svo farið og fer áreiðanlega þannig hjá mörgum félögum, að þau greiða ekki pennan skatt aðeins í eitt ár, heldur greiða þau skatt af þessum skatti næsta ár og meira að segja stríðsgróðaskatt. Ef hann er lagður á veltuna 1945, þá mætti svo fara, þó að það sé ósennilegt, að félag, sem hefði mikla umsetningu, greiddi, við skulum segja, 200 þús. kr. í veltuskatt. Við skulum gera ráð fyrir, að í lok ársins hefði það raunverulega engar tekjur, þegar það hefði greitt þessar 200 þús. kr. Þetta félag mundi teljast hafa þessar 200 þús. kr. í nettóhagnað, því að ekki má draga skattinn frá. Þá verður það næsta ár að telja þennan skatt fram sem tekjur og greiða af honum skatt.

Þá gæti farið svo, að það yrði að greiða skatt af veltuskattinum, sem búið er að greiða, þannig að þótt skattarnir séu ekki lagðir beinlínis á nema eitt ár, þá verður þetta þannig í framkvæmdinni, og sjá allir, hve mikið réttlæti það er. Hér getur farið svo, eins og ég gat um með fáum lauslegum dæmum. Það hefur líka verið viðurkennt við umr. í Nd. af hæstv. fjmrh., að þessi skattur geti verkað eins og eignarskattur. Og það er ekki hægt að neita því, að eins og um skattaákvæðin er búið virðist sem hann eigi að gera það, og hann gerir það í sumum tilfellum. En ef hann á að verka sem eignarskattur, þá verður það sama upp á teningnum. Það er fullkomlega fyrir hendi, hvernig skatturinn verkar sem eignarskattur, og hann getur hæglega komið harðast niður þar, sem hann ætti sízt að koma niður, en menn gætu sloppið, sem eignarskatturinn ætti fyrst og fremst að hitta.

Hvaða vit er í þessu með eignarskattinn? Til dæmis félag á Ísafirði, sem orðlagt er fyrir að leggja lítið á vörur sínar, en hefur mikla umsetningu, hvaða vit er í því að leggja á það 40 þús. kr. í veltuskatt og svo skatt ofan á það á næsta ári, því að þetta er reiknað sem tekjur? En kannske verzlun, sem er rétt við hliðina og verzlar með vörur, sem mikið er lagt á, og hefur grætt stórfé, en hefur miklu minni umsetningu, borgar lítið brot af því, sem kaupfélagið borgar. Þessi skattur er þess vegna þannig, að mér virðist, að hvernig, sem hann er skoðaður, er hann miklu meira en neyðarúrræði, — hann er raunverulega frágangssök. Það er frágangssök að beita skattal. eins og hér er fyrirhugað, því að svo ranglega koma þau niður. Viðkomandi því fyrirheiti ríkisstj., að þessir skattar verði ekki lagðir á nema eitt ár, og ég dreg ekki í efa, að hæstv. fjmrh. hafi allan vilja á að halda það loforð, og við skulum segja, að hann muni gera það, en þegar athugað er, hve miklar líkur eru til þess, að það sé framkvæmanlegt, þá sé ég ekki, að líkur séu til þess, að stj. geti það. Það er ákaflega sjaldgæft, að skattar séu lagðir á eitt ár og síðan afnumdir. Setjum svo, að þetta verði gert, — en hvaða líkur eru þá til þess, að hægt sé að afnema þennan skatt? Mér sýnist allar líkur benda til þess, að þörf ríkissjóðs fyrir aukna skatta verði sízt minni á næsta ári en í ár. Það verður þvert á móti að gera sér ljóst, að allar líkur eru til þess, að þörf ríkissjóðs fyrir auknar tekjur haldi áfram að fara vaxandi, alveg eins og hún hefur vaxið ár frá ári undanfarið með vaxandi dýrtíð.

Með þeirri fjármálastefnu, sem fylgt hefur verið undanfarið, hefur þetta farið svona, og þar sem þessari fjármálastefnu hefur verið fylgt, hefur þetta ætíð verið svo, og þar sem dýrtíð er að auki, eru engar líkur til þess, að breyting verði á þessu, heldur þvert á móti vissa fyrir því, að þörf ríkissjóðs fyrir auknar tekjur fari vaxandi.

Það kann að vera, að hæstv. fjmrh. segi sem svo: Við ætlum ekki að greiða uppbætur á útfluttar landbúnaðarvörur nema árið í ár og ekki greiða þær niður, en eins og maður veit, er það verulegur liður fyrir ríkissjóð, einkum niðurgreiðslur á innlendar vörur. Ég vil spyrja hæstv. fjmrh., hvaða líkur séu til þess, að Alþ. sjái sér fært að víkja frá þessari reglu. Þetta mundi vera eina vonin til þess, að útgjöld ríkissjóðs minnkuðu að verulegu leyti frá því, sem verður í ár. Þó að hætt verði að greiða niður landbúnaðarvörur og uppbætur á útfluttar vörur, þá koma í þeirra stað alþýðutryggingarnar, sem kynnu að kosta eitthvað svipað fyrir ríkissjóð, ef þær verða framkvæmdaf á þann hátt, sem lofað hefur verið. Jafnvel þótt hætt verði að greiða niður landbúnaðarvörur, þá eru allar líkur til þess, að þessar alþýðutryggingar komi í staðinn og önnur útgjöld hækki. Peningar til þeirra framkvæmda, sem nú er verið að inna af höndum, hafa verið teknir úr sjóðum, sem safnað hefur verið undanfarið og nú er verið að eyða.

Til er 6 manna nál. um hlutfall milli kaupgjalds og verðlags. Við vonum, að styrjöldinni verði lokið á þessu sumri, og þá ganga dýrtíðarl. úr gildi, og þá má segja, að eftir þessu samkomulagi eigi bændur ekki rétt á því, að vörur, sem fluttar eru út, séu bættar. En ég vil benda á það, að samkvæmt sex manna nál. eiga bændur áfram nákvæmlega sama siðferðislegan rétt til þess, að hlutfall milli kaupgjalds og verðlags, sem þar er ákveðið, haldist, þó að dýrtíðarl. falli úr gildi. Og samkvæmt því hlutfalli, sem fulltrúi verkamanna ákvað, áttu bændur að fá rúmlega 12 kr. fyrir hvert kjötkíló á síðasta ári. Nú eru líkur til þess, að dýrtíðin aukist, ef því fer fram, sem horfir, og þá er ekki nokkur vafi á því, að á næsta hausti eiga bændur samkvæmt þessu áliti rúmlega 12 kr. fyrir hvert kíló af kjöti eða meir, ef vísitalan hækkar. Þetta er ekki samkvæmt dómi bænda, heldur samkvæmt dómi verkamannanna sjálfra.

Ef ætlunin er að hætta við þessar greiðslur til bænda að hausti, þá er samkvæmt réttlátri kröfu og áliti fulltrúa verkamanna ekki hægt að halda verðinu niðri nema með greiðslum úr ríkissjóði. Að öðrum kosti hlýtur verðlag að vera ákveðið af þeim. sem gera það, í samræmi við sex manna nál., með þeim afleiðingum, sem það hefði fyrir dýrtíðina í landinu.

Miklar líkur eru til þess, að útgjöld ríkissjóðs verði miklu meiri fyrir árið 1946 en 1945 með sama áframhaldi. Það eru engar líkur til þess, að þeir tekjustofnar, sem eru fyrir hendi, gefi meira af sér 1946 heldur en þetta ár, og hvaða tekjustofnar eru það þá, sem á að grípa til fyrir árið 1946, hvaða tekjustofnar aðrir en þeir, sem ríkisstj. hefur komizt niður á nú, veltuskatturinn? Hvaða líkur eru til þess, að það finnist réttlátari tekjustofn fyrir næsta ár?

Ég geri tæpast ráð fyrir því, að það verði framkvæmanlegt fyrir ríkisstj. að standa við það loforð að leggja skattinn ekki á nema í þetta eina skipti. Ef einhver skattur er til, sem er réttlátari en þessi, þá á að leggja hann á nú, en ekki vera að bíða til 1946 og fella þá þennan skatt niður og taka annan í staðinn. Það eru engar líkur til þess, að ríkisstj. megi missa þær tekjur, sem hér er um að ræða, 1946. Það eru allar líkur til þess, að það þurfi að bæta við þær. Sannleikurinn er sá, og ég veit, að hæstv., fjmrh. er það ljóst, að um hliðstæðan lið skatta eins og þennan veltuskatt er að ræða, og það er útsvarið. Það var í Reykjavík, sem í stærstum stíl var lagður á einhvers konar veltuskattur. Það var á togarana. Það er ekki hægt að neita því, að þegar aflaleysið var mest, árin fyrir stríðið, þegar það var svo mikið, að ekki fiskaðist nema helmingur af því, sem venjulegt var, og það, sem fiskaðist, seldist ekki nema fyrir helming af því, sem venjulegt var, — þegar kreppan var ægilegust fyrir styrjöldina, þá var gripið til þess, að einhvers konar stimpilgjald var lagt á öll bréf. Það er ekki hægt að neita því, að þessi frímerki, sem klínt var á öll bréf, er sá versti tekjustofn, sem farið hefur verið út í, og sama er að segja um veitingahúsaskattinn. Búizt er við því um þennan skatt, að það verði miklir erfiðleikar á því að innheimta hann og það skapi nýtt innheimtukerfi.

En þennan skatt var líka að finna hjá sveitarfélögum, sem voru komin á kúpuna vegna þess, að ekki voru til tekjur til þess að leggja á. Þessi skattur er lagður á, þegar raunverulegur tekjustofn er ekki til til þess að leggja á. Þegar tekjur eru ekki til, þá er byrjað að leggja á veltu, alveg án tillits til þess, hvern það hittir. Þegar farið verður að innheimta þennan skatt, mun ríkisstj. komast að raun um, að þetta bakar henni og þeim mönnum, sem eiga að greiða hann, ekki svo litla fyrirhöfn. Fyrir þetta eina ár, sem skatturinn á að gilda, er sett upp heilt kerfi til þess að koma í veg fyrir, að ríkisstj. missi úr höndum sér mikið af þessum skatti, sem ætlunin er að ná í. Í sambandi við þennan veltuskatt, þá sýnist mér, að það sé nokkuð langt gengið, þegar gert er ráð fyrir því, að samvinnufélög geti ekki greitt í varasjóð. Það er óneitanlega æði langt gengið í skattainnheimtu hjá ríkinu.

Það hefur verið deilt um þá fjármálastefnu, sem hér hefur verið tekin upp og ríkir nú, — þá stefnu, sem kemur fram í launal., og árangur þessarar fjármálastefnu er að koma í ljós í þessu frv. Það er mikið deilt um það milli flokkanna í landinu, hver eigi sökina á því, hvernig komið er. Það þarf engum blöðum um það að fletta, eins og kom fram í ræðu hæstv. fjmrh. og hv. 3. landsk., að fjármálaástandið er orðið ákaflega ískyggilegt, svo að ekki sé meira sagt. Ég ætla ekki að fara langt inn á það í þessari ræðu, hver eigi sökina, — það kann að gefast tilefni til þess síðar. Ég held, að þjóðinni hljóti að vera það ljóst og alþm. sé það ljóst, að ómögulegt er að halda áfram þessari fjármálastefnu. Það er nákvæmlega sama og halda vitandi vits út í kviksyndi. Það held ég, að öllum ætti að fara að verða ljóst, án þess að deila um það, hver eigi sökina á því, að svona er komið. Það mun sannast, hvort sem hæstv. fjmrh. vill kannast við það eða ekki, að útgjalda- og tekjuþörf ríkissjóðs mun, ef að líkum lætur, fara vaxandi, en ekki minnkandi. Og þá er fyrirsjáanlegt, að hér kemur það sama og alls staðar hefur orðið þar, sem þessari fjármálastefnu hefur verið fylgt, að ríkissjóður getur ekki með neinu móti aflað tekna fyrir þessa útgjaldaþörf. Hér er maður að komast á það stig og raunar kominn á það með þessari tekjuöflunarleið. Eins og kom fram í ræðu hv. 3. landsk. er hún ekki næstum því frágangssök, — hún er frágangssök. Það kann að vera, að með því að halda hverju segli strengdu til þess ýtrasta og sigla svo þeim vindi, sem nú er siglt í fjármálunum, þá sé hægt að halda skútunni á floti með þessu móti. láta líta út sem þessi sigling sé í bezta lagi, en það er ekki hægt að gera það nema takmarkaðan tíma. Þess ber að gæta, að með því að halda þannig áfram erum við raunverulega að gera ástandið, þegar að því kemur, að þessi sigling stöðvist, verra með hverju ári, sem líður, — verra en það var og er, og erfiðleikana á því að rétta við, þegar það starf hefst að nýju. Það er tvímælalaust, að skattana er miklu erfiðara að stöðva nú heldur en var 1940, 1941 eða 1942.

En lítum til þess, þegar á að fara að rétta þetta við á ný, og til þeirra afleiðinga, sem þetta hlýtur að hafa í för með sér. Það hlýtur að verða 10–20 sinnum erfiðara að rétta þetta við og stöðva sig heldur en það var 1940–1941, og með þessu áframhaldi, að nota svo að segja hvern einasta varasjóð og hvern möguleika til þess að ná í tekjur til þess að geta haldið þessu áfram, þá er ekki auðvelt að sjá það nú, hvernig þeir menn eiga að fara að, sem eiga að stöðva þetta á sínum tíma, því að þeir hafa ekki miklu úr að spila. Ef það verður þannig, sem ég vil vona, að núv. stj. takist að fá þá flokka, sem standa að stj., og þá fyrst og fremst verkamannaflokkana, til þess að framkvæma þessa stöðvun, — því að með öðru móti má segja, að hlutdeild verkamannafl. í stj., þar sem þeir hljóta að sjá, að áframhald þessarar fjármálastefnu endar með stöðvun — hafi verið byggð á brigðum, og má segja, að þegar stjórnin reynir að gera þetta átak, þá muni hún komast að þeirri niðurstöðu, að betra hefði verið að gera það fyrr, og það verður alltaf því verra, sem það dregst lengur. Og þó að það kunni að kosta óþægindi í bili, þá held ég. að það skattafrv., sem hér liggur fyrir, ætti að geta vakið okkur alla til umhugsunar um það, að það er kominn tími til þess, að þetta starf hefjist nú þegar, en að við eigum ekki að afla ríkinu tekna á þennan hátt. Það er ekkert annað en að hlífa sjálfum sér við því að horfast í augu við þær staðreyndir, sem eru raunverulega til staðar, að halda lengur áfram á þessari braut. Ég skal svo ekki segja meira um þetta að svo komnu, — ég býst við, að afstöðu minni verði svarað með því, að þar gæti sömu bölsýninnar í spádómum mínum sem ég og flokksmenn mínir séu alltaf með. Ég vildi nú óska þess af heilum hug, að ég hefði rangt fyrir mér, en því miður get ég ekki sagt annað en það, að ég er alveg sannfærður um það, að áframhald á þessu getur ekki endað á annan veg en þann, sem ég hef verið að leggja niður fyrir sjálfum mér og fyrir hv. d. Ég er líka sannfærður um það, að þessi breyt. verður til þess að gera málið enn þá verra, því að erfiðleikarnir hafa verið að aukast, og þess vegna er það, að þó að hæstv. fjmrh. geri sér vonir um það að geta afnumið þennan skatt, sé ég ekki, hvernig það á, að geta átt sér stað, ef haldið verður áfram sömu fjármálastefnu og gert hefur verið.