22.02.1945
Neðri deild: 136. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (4964)

257. mál, veltuskattur

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Þær umr., sem hér hafa farið fram, gefa mér ekki tilefni til að segja margt. Frsm. minni hl. var mjög hógvær í gagnrýni sinni við frv. Þeim athugasemdum, sem fram hafa komið, hefur að mestu verið svarað af hv. þm. a.-Húnv.

Ástæðan til þess, að ég hef kvatt mér hljóðs, er sú, að ég vildi minnast með örfáum orðum á brtt. á þskj. 1200. Þar er lagt til, að orðin „þegar vörur þessar eru seldar af framleiðendum þeirra eða í heildsölu“ falli burt. Við fyrstu umr. þessa máls gerði ég grein fyrir því, hvaða ástæður lægju til þess, að lagt er til í frv., að skattur greiðist af innlendri framleiðslu, þegar hún er seld í smásölu. Ástæðan var ekki sú að auka tekjur af vörusölu, heldur hitt, að þeir skattamenn, sem um málið fjölluðu töldu það mjög erfitt í framkvæmdinni að skilja þessar vörur frá öðrum vörum, sem verzlanir hefðu á boðstólum og skattur ætti að falla á. Það verður að játa, að á því eru talsverð vandkvæði. Þetta er ekki eins einfalt mál og hv. 2. þm. Rang. hefur látið í veðri vaka. Við nánari athugun málsins hef ég þó komizt að þeirri niðurstöðu, að þessi agnúi væri þó ekki svo mikill, að það sé ekki tilvinnandi að fella gjaldið niður. Ég mæli því með því, að brtt. á þskj. 1200 nái fram að ganga. Þetta hefur enga teljandi fjárhagsþýðingu fyrir ríkissjóð, jafnvel þótt fullur veltuskattur kæmi á alla innlenda framleiðslu. En það vantar mikið á, að skatturinn komi á hana alla, eins og frv. er nú. Það er misskilningur hjá hv. 2. þm. Rang. að halda þetta. Það er áreiðanlega mikill minni hluti af vörusölunni, sem kæmi til þess að hafa áhrif á það verð, sem framleiðendur fá. Mér er það ljóst, að álagningin á kjötið er mjög lág og það skapaði mikla óánægju og erfiðleika að halda henni óbreyttri. Ég held því, að betra sé að taka þá erfiðleika, sem því eru samfara að skilgreina vöruna, heldur en standa í því stímabraki, sem leiða mundi af því, ef skatturinn félli á vöruna. Og margs konar erfiðleikar mundu skapast við það, ef skatturinn hefði áhrif á það verð, sem fyrir er.

Þá vildi ég aðeins minnast á brtt. á þskj. 1193, sem er flutt af hv. 3. þm. Reykv., eftir tilmælum mínum. Eins og frv. er nú, er gert ráð fyrir, að gjalddagarnir verði 4 á skattinum, en við nánari athugun þótti óheppilegt að láta skattinn falla í gjalddaga eftir fyrsta ársfjórðung. Stafaði það af því, að skattstofan í Reykjavík er svo önnum hlaðin um þann tíma, að það þótti heppilegra að hafa gjalddagana 3 og miða fyrsta gjalddaga við 30. júní. Ég vil vænta þess, að hv. þdm. geti fallizt á þessa brtt.

Um brtt. á þskj. 1191 þarf ég ekki heldur að fjölyrða. Það hafa nú að vísu orðið allharðar deilur um, hvort miða ætti við árið 1944 eða 1945, og ég verð að játa, að ég á dálítið erfitt með að skilja, hve mikið kapp er lagt á þetta. Ástæðurnar fyrir því, að ég kaus heldur árið 1945, eru fyrst og fremst þær að ég álít, að eftirsköttun sé í raun og veru alltaf óréttmæt og það eigi a.m.k. ekki undir neinum kringumstæðum að láta hana fram fara nema alveg óhjákvæmilegt sé. Því má auðvitað svara til, að ég hafi samt sem áður borið fram frv. um eftirsköttun á þessu ári, en þau frv. voru borin fram af nauðsyn og voru bæði þess eðlis, að það gat ekki verið um annað að ræða, ef skattarnir væru lagðir á, en skatta eftir á. Hér stendur aftur á móti allt öðruvísi á. Að vísu verður fyrir fram ekki sagt, hvort gefa mundi meiri tekjur í ríkissjóð 1944 eða 1945, og stafar það af því, að velta ársins 1945 er ekki kunn enn þá, en ef ekkert ófyrirsjáanlegt gerist, þá ætla ég, að erfitt sé að leiða rök að því, að skattarnir þurfi að vera miklum mun minni, þó að miðað væri við 1945, en ekki 1944. Þetta eru sem sagt aðalástæðurnar fyrir því, að ég kaus heldur að miða við 1945. Auk þess má geta þess, að ef svo stæði á fyrir einhverjum þeirra gjaldenda, sem þessa skatta á að greiða, að hann teldi sér ekki fært að greiða skattinn, hvort heldur er af tekjum eða eignum, þá á hann þess kost, ef miðað er við 1945, að snúa sér að annarri atvinnugrein. Í ýmsum tilfellum getur hann a.m.k. gert það.

Loks er svo það, og kannske raunverulega ekki þýðingarminnst, að ef skatturinn er miðaður við veltu ársins 1944, þá er óhjákvæmilegt að hafa nokkuð víðtækari undanþáguheimild í l. heldur en ef viðmiðunin er gerð við 1945. Ég man ekki, hvort ég hef áður bent á það hér, en gerði það a.m.k. í hv. Ed., að það eru til þeir vöruflokkar, sem verðlagi hefur verið hagað þannig á, að ekki gæti komið til greina að leggja svo hátt veitugjald á sem gert er ráð fyrir í frv. þessu. Ég skal benda aðeins á vörutegundir eins og kol, sem hafa verið seld í heildsölu á árinu 1944 með lægri álagningu en ætlazt er til, að skatturinn verði. Þetta væri auðvitað óhugsanlegt, og er þá ekki um annað að ræða en undanþiggja þessa vörutegund. Aftur á móti mundi vera kleift að halda þessu fyrirkomulagi á árinu 1945, að álagningin yrði ekki meiri en hún er, en tilhöguninni yrði þá að breyta þannig, að slík vörutegund yrði seld í umboðssölu í stað þess að seljast í heildsölu. Það er mjög auðvelt að breyta til, og þá yrðu auðvitað skattarnir miðaðir við sömu álagningu. Ég verð því að halda fast við það, að viðmiðunin sé gerð fyrir árið 1945, og vil leggja eindregið á móti, að brtt. á þskj. 1191 nái fram að ganga.