28.02.1945
Neðri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1935 í B-deild Alþingistíðinda. (4974)
257. mál, veltuskattur
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. — Til þess að greiða fyrir störfum þingsins hef ég ekkert rætt þetta mál. En áður en það fer úr hv. d. og verður endanlega afgreitt, vildi ég segja nokkur orð.
Þó að þetta frv. sé sannarlega ljótt, er það þó merkilegt að einu leyti. Það er merkilegur vottur þess, hvernig komið er fjármálum landsins og hvert horfir í þeim efnum augljóslega, ef ekki verður þegar snúið við á þeirri braut, sem hæstv. ríkisstj. nú heldur, og yfir á allt aðrar leiðir. Jafnframt því, að ég vil minnast nokkuð á efni sjálfs frv., skal ég skjóta rökum undir þessa staðhæfingu.
Það er þá fyrst varðandi frv. sjálft og það, sem því er ætlað að vinna. Það er á það bent, að nauðsynlegt sé að afla þeirra tekna, sem frv. gerir ráð fyrir, til þess að vinna gegn dýrtíðinni. Þegar þetta er athugað, verður fáránlegt í augum flestra, að sú leið, sem hér er stungið upp á, að farin skuli, skuli eiga að verða til þess að vinna gegn dýrtíðinni. Hér er nefnilega ráðgert að leggja allsherjar verðtoll á allar vörur, sem verzlað er með í landinu, til þess að nota svo aftur þá peninga, sem þannig er skrapað saman, til þess að borga niður verðlag á öðrum vörum í landinu. Þetta eru sömu vinnubrögð og þeim er ætlað að vinna sér til afþreyingar, sem eru bilaðir á heilsu með vissum hætti, eins og kunnugt er.
Þó að því sé haldið fram, að þetta sé hægt að gera með árangri, þar sem ekki sé leyfilegt að hækka vöruverð í landinu sem svarar álögðum tollum, þá er augljóst mál, að þetta eru haldlaus rök. Því að ef þessu væri þannig háttað nú, væri hægt að lækka dýrtíðina með því að lækka vöruverðið með fyrirskipunum, sem svaraði þeim nýja skatti, sem hér á að innheimta, og þá mætti sleppa við þau vinnubrögð, sem hér eru fyrirhuguð, að draga saman nýjan verðtoll til að borga hann aftur í ríkissjóð. Og þá mætti jafnframt spara heilan her af starfsmönnum, sem þarf til að innheimta þetta gjald, en það eru ekki litil útgjöld fyrir ríkissjóð út af fyrir sig.
Því hefur verið haldið fram, að þetta verki ekki sem neyzluskattur á almenning. Hér sé verið að skattleggja stríðsgróðann. Ég hef að nokkru svarað þeirri röksemd, en vil benda á það, sem áður hefur komið fram, að mjög mikill hluti landsmanna hefur sína verzlun í eigin höndum. Allir þeir, sem verzla í samvinnufélögunum, fá til sín sem tekjuafgang eftir hvert ár það, sem afgangs er verzlunarkostnaðinum og þeir ekki ákveða að leggja í sjóði. Það er augljóst, að þessi skattur verkar þegar sem neyzluskattur á alla, sem hafa verzlun sjálfir í sínum höndum. Þeirra tekjuafgangur eftir árið minnkar auðvitað sem skattinum nemur eða því fé, sem þeir ákveða að leigja til hliðar til þess að standa undir framtíðarverkefnum sínum. Það er ekki hægt að komast fram hjá því, að gagnvart fjöldanum í landinu verkar þetta sem hreinn tollur og er því brot á yfirlýsingu þeirra flokka, sem standa að hæstv. ríkisstj.
Þá er að víkja að hinum, sem verzla við kaupmannaverzlanir. Mætti e.t.v. svo virðast sem þetta kæmi ekki hart niður á þeim stofnunum. En ef betur er að gáð, liggur í augum uppi, að ef halda ætti þessu áfram um lengri tíma, mundi þessi skattur auðvitað koma inn í vöruverðið. Er með öllu óhugsandi, að öðruvísi geti farið.
Skatti þessum er þannig hagað, að hann er jafnt gjald á alla vöruumsetningu. Það er alveg sama, hvort álagning vörunnar er mikil eða lítil, sama, hvort kostnaðurinn er mikill eða lítill, gjaldið er alveg jafnt fyrir því. Þetta verður skattur á þeim, sem hafa með höndum verzlun í landinu, ekki eftir efnum og ástæðum, heldur kemur hann harðast niður á þeim, sem verzla með nauðsynjavörur með lítilli álagningu, en létt niður á þeim, sem verzla með óþarfar eða lítt þarfar vörur með litlum tilkostnaði. Hér hefur verið fundin upp svo dásamleg skattlagningaraðferð, að niðurstaðan getur orðið sú, að þeir, sem hér eiga hlut að máli, greiði skattinn í öfugu hlutfalli við afkomu sína.
Það hefur verið viðurkennt af hæstv. fjmrh. í þeim tveimur umr., sem átt hafa sér stað hér um þetta mál, að það geti vel farið svo, að tekjur þeirra kaupmanna, sem verzla með álagningarlitla vöru og hafa mikla umsetningu, hrökkvi ekki fyrir kostnaði og þeir verði að borga hann af eigum sínum. En í því sambandi hefur hæstv. fjmrh. sagt sem svo: Þetta er náttúrlega ekki réttlátt. En hafa ekki verið uppi bollaleggingar um það að leggja á eignarskatt yfirleitt, og er þá nokkuð meira, þó að eignarskattur sé lagður á með þessum hætti?
Mundi nú samt ekki mörgum finnast, ef ætti að leggja skatt á eignir manna sérstaklega, að þá væri lágmarkssanngirni, að sá skattur yrði lagður á í hlutfalli við eignirnar, eftir því hvað þær eru miklar eða hvað þær hafa vaxið? Og það mundi margur segja, að það væri ekki aðeins stigmunur, heldur eðlismunur, á því og hinu, sem hæstv. fjmrh. fyrirhugar, að gera mönnum að greiða eignarskatt með veltugjaldi á vöruumsetningu, þannig að þeir, sem mest hafa grætt, þurfa ekkert að taka nærri sér þetta gjald, en hinir þurfa að láta hluta af eignum sínum upp í það.
Það er augljóst, að ekki er hægt að hugsa sér meira neyðarúrræði en þessa aðferð, sem upp hefur verið tekin, og það hefði verið fróðlegt að sjá framan í suma af þeim mönnum, sem nú eru að reyna að verja þessa skattlagningaraðferð, ef einhverjum öðrum en þeim sjálfum hefði dottið í hug að bera fram frv. um að leggja á skatt sem þennan.
Það er máske bezta lýsingin á þessum skatti, að það er aðeins einn maður, sem ég hef heyrt lýsa ánægju sinni yfir þessari skattlagningaraðferð, og það er hv. þm. a.-Húnv. Það er máske bezta lýsingin á því, hvernig komið er, að þessi hv. þm. skuli vera sá eini, sem er ánægður.
Upphaflega, þegar þetta frv. kom fram, var því lýst með misjöfnum hætti í málgögnum stjórnarliðsins. Morgunblaðið byrjaði strax að syngja þann söng, sem sunginn hefur verið síðan. Þetta er ekki réttlátur skattur, en allir skattar eru meira og minna vondir, og það er ill neyð að leggja á þennan skatt. En í öðrum herbúðum, Sósfl., hefur ekkert verið sagt um þennan skatt og því ekki vonlaust um, að þeir geti skammazt sín. En í herbúðum Alþfl. var fyrst fagnað yfir þessari tekjuöflunarleið, sem fundin hafði verið, og var vikið að því, að hér hefði verið fundin upp góð leið til að skattleggja stríðsgróðann. En eftir því sem lengra líður frá því, að þetta frv. kom fram, eftir því verður erfiðara fyrir fylgismenn skattsins að taka sér fyrir hendur að verja þessa tekjuöflunarleið. Og nú hefur Alþýðublaðið orðið að beygja sig svo mikið fyrir almenningsálitinu, að það er farið að kveða við nokkuð annan tón um skattinn en þegar málið kom fram. Ekki alls fyrir löngu skrifaði blaðið á þessa leið:
„Um þetta er það að segja, að enginn hefur neitað því, að veltuskatturinn hlýtur yfirleitt að verða óréttlátur, enda er aðeins fyrirhugað að leggja hann á í eitt sinn, — af illri nauðsyn.“
Í framhaldi af þessu segir svo m.a.: „En sé skatturinn lagður á veltu ársins 1945, eru ekki aðeins sterkar líkur til þess, að hann gefi miklu minna af sér, heldur einnig hætta á því. að honum verði á einn eða annan hátt velt yfir á neytendur í landinu, og væri eðli skattsins, ef það skyldi takast, orðið algerlega breytt, hann yrði þá ekki greiddur af þeim, sem safnað hafa stríðsgróða undanfarið, heldur af öllum almenningi þvert ofan í yfirlýsta skattastefnu stjórnarinnar.“
Það þarf því ekki að velta því lengi fyrir sér til að sjá þá meinbugi, sem eru á að fara þessa skattöflunarleið. Þeir, sem standa að þessu frv., eru, að undanskildum hv. þm. a.-Húnv., farnir að blygðast sín fyrir að hafa beitt sér fyrir þessari skattöflunarleið. En þá er mér spurn: Hvað er það, sem rekur menn nauðuga, að því er virðist, til að afla ríkissjóði tekna með þeim hætti, sem hér er ráðgert? Ríkisstj. vill verja þetta óvenjulega skattgjald með því, að tekjuþörf ríkissjóðs sé svo stórkostleg, að það ríki slíkt neyðarástand, að það verði að taka upp þessa óréttlátu skattaaðferð. En hefur þessum mönnum, sem leyfa sér að verja skattinn með þessu móti, aldrei dottið í hug, að það hljóti að vera eitthvað meira en lítið bogið við þá fjármálastefnu, sem neyðir menn til að fara tekjuöflunarleiðir af þessu tagi, ekki á krepputímum, heldur á þeim mesta góðæristíma, sem nokkru sinni hefur komið yfir landið? Hefur þeim, sem reka upp þessi neyðaróp, aldrei dottið í hug, að þessar upphrópanir eru þeirra eiginn vitnisburður um, að þeir séu á rangri leið, að þeir haldi uppi fjármálastefnu, sem er óframkvæmanleg til frambúðar og hlýtur að enda með skelfingu? Þeirra eiginn vitnisburður um þennan skatt er gleggsti vitnisburðurinn um það, að svo er. Það er ekki hægt að afsaka sig með því, þegar ástandið er eins og það er nú á Íslandi, að það sé nauðsyn, sem reki menn til að framkvæma slíkt, vegna þess að ef rétt er á fjármálum landsins haldið, á ekki að þurfa að grípa til slíkrar leiðar, þegar það mesta peningaflóð er í landinu, sem nokkru sinni hefur átt sér stað. Það segja margir, að það væri sök sér, að gripið væri til slíkra neyðarúrræða, ef Íslendingar væru sem þjóð í heild sinni hættulega staddir fjárhagslega eða hefðu mikinn styrjaldarkostnað og aðrar slíkar álögur á undanförnum árum. Þá væri kannske hægt að sýna fram á, að nauðsyn væri að grípa til slíkra neyðarúrræða. En það er ekki hægt að sannfæra nokkurn mann um, að minnsta vitglóra sé í þeirri fjármálastefnu, sem neyðir menn til úrræða af þessu tagi, þegar ástandið hér á landi er eins og það er nú.
Þá er annað, sem fram hefur komið í sambandi við þetta furðulega skattafrv., en það eru upphrópanir þeirra, sem að frv. standa, að þeir ætli aldrei að gera þetta aftur, mönnum sé óhætt að trúa því, að þetta verði ekki endurtekið. Lítum þá á, hvað fram undan er í þessu efni, og á möguleika þeirra, sem standa fyrir þessari fjármálastefnu, til að sjá fjárhag ríkisins borgið framvegis á þeim grundvelli, sem þeir standa á. Það er upplýst, að stórkostlegur halli verður á fjárl., þó að þessi skattur verði nú samþ. til viðbótar. Einnig er vitað, að dýrtíð í landinu fer vaxandi, það mætti nærri því segja með hverjum degi, sem líður, það er a.m.k. óhætt að segja með hverjum mánuði, sem líður. Það eru sífellt að gerast atburðir í sambandi við kaupgjald, sem sumpart koma fram, áður en langt um liður, og sumpart munu koma fram á næsta sumri, þegar ákveða á verðlag á framleiðslu landsmanna, og verða til að hækka dýrtíðina, að líkindum mjög verulega, vegna þeirrar stefnu, sem hæstv. stj. hefur tekið upp varðandi kaupgjald og allt annað, sem varðar framleiðslukostnað.
Þá er það einnig vitað mál, að í þeim fjárl., sem afgr. hafa verið og eru raunverulega með stórfelldum halla, þá eru engar fjárveitingar til neinnar verulegrar nýsköpunar í landinu eða óvenjulegra framfara. Það er vitað mál, að öllum þeim málum, sem hér hafa verið lögð fyrir þingið og stefna í framfaraátt, hefur því nær undantekningarlaust verið komið fyrir kattarnef af þeim þingmeirihluta, sem stendur að núv. hæstv. stj., með margs konar móti, sem of langt yrði upp að telja. Nú hefur hæstv. stj. viljað láta menn álíta, að hún ætlaði að beita sér fyrir stórfelldum framförum í landinu, og hefur gortað af því og látið það boð út ganga, að ef einstaklingarnir tækju sig ekki til að koma á þessum stórfelldu framkvæmdum, þá ætlaði hún að gera það. Það er því augljóst, að ef á að taka minnsta mark á því, sem kemur frá hæstv. stj. varðandi áform um framfarir og nýsköpun í landinu, þá verður ríkissjóður sjálfur að inna af hendi stórkostleg framlög, en fyrir þeim er ekkert ráð gert í fjárl. ríkisins fyrir árið 1945, þó að þar sé fyrir stórfelldur tekjuhalli, og þessir peningar. sem verið er að skrapa saman með þessu móti, eru því alls ekki ætlaðir til slíkrar nýsköpunar og framfara, heldur er þeim ætlað að hverfa í dýrtíðarhít hæstv. ríkisstj., eins og ég gat um í upphafi máls míns.
En þar með er ekki allt búið. Hér við bætist það, að hæstv. stj. hefur gefið landsmönnum það loforð, að hún skuli beita sér fyrir fullkominni alþýðutryggingalöggjöf, jafnfullkominni og þær tíðkast beztar í nálægum löndum. Það er augljóst, að ef á að efna það loforð, þá hlýzt af því verulegur kostnaðarauki fyrir ríkissjóð, því að illa þekkja menn þá, sem standa að hæstv. ríkisstj., ef ekki verður ætlazt til. að ríkissjóður leggi fram stórkostlegar fjárhæðir til þeirra hluta, milljónatugi vafalaust, ef á að taka nokkurt mark á þeim loforðum, sem hæstv. stj. hefur gefið í þessu efni. Þegar menn athuga þessar staðreyndir, sem hér hefur verið drepið á, þá geta menn nokkuð ímyndað sér, hvernig komið er fyrir hæstv. stj. og þeim, sem fylgja þeirri fjármálastefnu, sem hún hefur tekið að sér að framkvæma. Og hvernig halda menn, að hæstv. stj. muni takast að afsala sér nýjum tekjustofnum næsta haust, þegar hallinn frá þessu ári verður kominn fram, þegar dýrtíðin hefur vaxið stórlega frá því, sem nú er, þegar að því kemur, að hæstv. stj. ætlar að efna, þótt ekki væri nema eitthvert brot af því, sem hún hefur lofað í sambandi við nýsköpunina, og þegar hæstv. stj. ætlar að setja ný l. um alþýðutryggingar? Það er því augljóst mál, að hæstv. stj. stendur með þessi mál í fullkominni sjálfheldu og því fer svo alls fjarri, að þessi rangláti og óheppilegi veltuskattur verði að nokkru liði til að leiðrétta þau vandræði, sem og nú eru orðin um fjárhagsafkomu ríkissjóðs, en hverfur vafalaust í þá hít. sem ríkissjóður er orðinn með þessari stefnu í dýrtíðarmálunum, og því verður ástandið næsta haust hálfu erfiðara og verra en nokkru sinni fyrr. Það er því alveg augljóst öllum, sem hugsa um þessi málefni af nokkurri alvöru, að fjármálastefna hæstv. ríkisstj. er að leiða til sífellt stórkostlegri halla fyrir ríkið, sem verður að vega upp með síauknum sköttum og tollum, svo að grípa verður til áður óþekktra úrræða, sem þetta frv. gefur okkur nokkurt sýnishorn af. Jafnframt því hlýtur þessi fjármálastefna að leiða til þess, að framleiðslukostnaður í landinu fer sífellt hækkandi og ósamræmið verður meira og meira milli framleiðslukostnaðar og verðlags á framleiðsluvörum landsmanna. Niðurstaðan verður því sú, að menn kippa að sér hendinni um það að leggja í nýjar framkvæmdir, leggja í þá nýsköpun, sem nauðsynleg er og mikið hefur verið talað um.
Þá er það einnig alveg augljóst, að þessi fjármálastefna hlýtur að leiða til þess, að ríkissjóður verður gersamlega vanmegnugur að leggja nokkuð verulega af mörkum til verklegra framkvæmda, og nú þegar er farið að bóla á því, svo að ekki verður um villzt. Nú í þessu mikla peningaári hafa verið þeir erfiðleikar um afgr. fjárl., að það er fyrirhugað að éta upp sjóði eins og hafnarbótasjóð og framkvæmdasjóð ríkisins að mestu leyti í venjulegar framkvæmdir ríkisins, sem að réttu lagi hefði átt að greiða af tekjum hvers árs. Það er því augljóst, að þessi stefna hlýtur að leiða til sívaxandi halla á fjárl. ríkisins og síaukinna skatta og tolla af margs konar tegundum, sem hlýtur að leiða til stöðvunar á verklegum framkvæmdum. Jafnframt hefur þetta það í för með sér, að menn leggja ekki í þá stórkostlegu nýsköpun, sem menn þyrftu að leggja út í, af því að menn sjá sífellt meiri og meiri erfiðleika á rekstri atvinnutækjanna, svo að þau svari sæmilegum arði. Það er því alveg augljóst mál, að fjármálastefna hæstv. ríkisstj. vinnur beinlínis og markvisst að því, að í stað þeirrar nýsköpunar, sem þarf að eiga sér stað, er leitt fyrst til kyrrstöðu á þeim tímum, sem miklar framfarir þyrftu að eiga sér stað, og síðan leiðir hún af sér atvinnuleysi í landinu, enda er það líka svo, að hæstv. stj. er sjálf byrjuð að viðurkenna þetta. Í síðustu eldhúsumræðum var hæstv. stj. bent á þessi atriði, sem ég hef nú bent á, með hógværum orðum, en þá fylltist hún ofurmóði og mótmælti, að þessi stefna væri nokkuð varasöm eða nokkrir erfiðleikar á að framkvæma hana. En nú eru menn byrjaðir að reka sig á staðreyndirnar og byrjaðar að koma fram viðurkenningar af hendi hæstv. stj., að þeir, sem bentu á þessar staðreyndir, hafi haft rétt fyrir sér, þannig að sú fjármálastefna, sem nú væri fylgt, væri óframkvæmanleg og hlyti að leiða til stöðvunar, áður en langt um liði, og þyrfti að breyta til.
En þá vil ég benda á það í þessu sambandi, að það er ekki nóg að viðurkenna þetta í orði, þó að það sé nokkurt spor í áttina frá því, sem var, meðan þeir voru taldir óalandi og óferjandi, sem bentu á þetta. Menn verða að hafa samtök um að breyta um stefnu í þessu efni. Það hefur engin stj. leyfi til að vera við völd vitandi það, að sú meginstefna. sem hún fylgir í fjármálum, sé röng, en gerir samt enga tilraun til að breyta um. Hæstv. stj. virðist ætla að hafa þá aðferð að láta reka á reiðanum, þrátt fyrir það að a.m.k. sumir í hæstv. stj. hafa séð þetta allt þetta ár fram á haust. Slík vinnubrögð eru ekki leyfileg. Það eina, sem viðeigandi var í samræmi við þá ábyrgð, sem menn taka á sig við myndun ríkisstj., var, að hæstv. stj. hefði lagt fram till. sínar um stefnubreytingu í fjármálum og dýrtíðarmálum í vor, og hefði þá orðið úr því skorið, hvort samkomulag hefði getað orðið um að breyta um stefnu þá þegar. Þetta voru þau einu viðeigandi vinnubrögð, en gersamlega óviðunandi að láta þessi mál standa eins og þau eru nú, því að það verður margfalt erfiðara að leysa þau næsta haust, og þetta frv. um veltuskatt sýnir bezt, hve ástandið og horfurnar eru alvarlegar, og ég held, að það sé gott, að menn geri sér það sérstaklega ljóst, áður en gengið er endanlega til atkv. um þetta frv., að það er ekki hægt til lengdar að halda áfram á þessari braut, og það er sú eina eðlilega ályktun út frá því, að hér þurfi að breyta um stefnu sem allra fyrst og að undir engum kringumstæðum sé hægt að verja, að það sé látið bíða svo að segja allt þetta ár með þeim afleiðingum, sem það hlýtur að hafa fyrir fjárhag ríkisins og möguleikana til að ráða fram úr þeim málum.
Því hefur verið haldið fram, að andstaða Framsfl. gegn veltuskattinum væri óeðlileg að því leyti til, að flokkurinn hefði samþ., sumir segja öll. en aðrir segja mest af þeim útgjöldum, sem fyrirhugað er að greiða úr ríkissjóði, og þess vegna beri flokknum, ef hann sé ekki ánægður með veltuskattinn, að leggja fram eða greina frá, hvaða tekjuöflunarleiðir hann vilji fara í staðinn. Þessi gagnrýni á engan rétt á sér af þeirri einföldu ástæðu, að Framsfl. hefur að undanförnu haldið því fram og sýnt fram á, að það sé ekki hægt að ráða við fjárhagsmál ríkisins að óbreyttri dýrtíðinni í landinu og undirstaða þess, að hægt sé að ráða við þau mái, sé að grípa á aðalkýlinu, sem sé dýrtiðinni sjálfri, og byrjað með því að færa hana niður hlutfallslega, þannig að bæði þeir, sem framleiða vörur til sölu í landinu, og eins þeir, sem selja vinnu í landinu, leggi nokkuð af mörkum hlutfallslega til að byrja nú þegar á lækkun dýrtíðarinnar, til þess að fjárl. verði viðráðanleg miðað við þá fjárhagsmöguleika, sem nú eru í landinu, en slíkt mundi koma af sjálfu sér, ef samtök fengjust um að fara þessa leið. Þetta bentum við á, þegar rætt var um stjórnarmyndunina við hina flokkana í haust. Þá vildum við ekki taka þátt í stj., vegna þess að ekki varð sem lágmark samkomulag um að stöðva dýrtíðina og ekki fékkst rætt til hlítar um, hvernig ætti að sjá fjárhagsmálum landsins borgið, bæði fjármálum ríkisins og öðrum þáttum þess.
Loks er hægt að benda á það í þessu sambandi, að því fer fjarri, að Framsfl. hafi léð samþykki sitt til allra gjalda, sem nú eru í fjárl. Flokkurinn er t.d. ósamþykkur afgr. þeirra launal., sem nú eru sett. Framsfl. hefði einnig, ef hann hefði ráðið, afgr. fjárlög á marga lund öðruvísi en sá stjórnarmeirihluti, sem nú hefur tekið ábyrgð á þeim. Það er því út í bláinn að reyna að draga úr gagnrýni Framsfl. í sambandi við þetta mál og fjármálastefnuna yfirleitt með því að benda á, að hann hafi ekki „móralskan“ rétt til að beita sér á móti máli eins og þessu, af því að hann hefði verið með þeim gjöldum, sem tekjunum er ætlað að standa undir.
Ég get sparað mér að fara út í þann þátt málsins, sem lýtur að afstöðu þeirra flokka, sem standa að ríkisstj., þar sem það var gert af hv. þm. V.-Húnv., en það er ákaflega skemmtilegur vottur um það, hversu mikið er að marka fleipur þeirra manna, sem á undanförnum árum hafa staðið sem málsvarar fyrir sósíalista, að bera saman það, sem þeir hafa sagt um dýrtíðina og hvernig ætti að standa á móti vexti hennar, og svo hins vegar þær till., sem þeir flytja nú í dýrtíðarmálunum. Þeir hafa haldið fram, og ég býst við, að þar hafi einhverjir trúað þeim, að menn gætu hækkað kaup ótakmarkað og haldið uppi verðlagi á afurðum, það væri engin hætta á ferðum í sambandi við dýrtíðarmálin þrátt fyrir það, því að það væri hægt að vega það upp með því að lækka tolla. Heill flokkur hefur haft þessa afstöðu í dýrtíðarmálunum. Ég býst við, að ýmsir menn hafi tekið þennan flokk alvarlega. En hvað segja þessir sömu menn, þegar þeir eru komnir í stj.? Þá er svo fjarri því, að þeir fari þessa leið að afnema tolla, sem aldrei voru stór liður í dýrtíðinni, það er svo fjarri því, að þeir fari þessa leið, að þeir bæta nýjum tollum við þá, sem fyrir eru, að því er virðist til að lækka dýrtíðina. Nú er um það rætt að lækka dýrtíðina og bæta við nýjum tollum. Áður var um það rætt að hækka afurðir og kaup, án þess að nokkur hækkun á dýrtíðinni ætti af því að leiða, af því að það væri hægt að afnema tolla. Það er varla hægt að hugsa sér, að hægt sé að gera sig ómerkari en forkólfar sósíalista hafa gert sig með þessu. Ég tala ekki um önnur baráttumál, sem þeir og alþýðuflokksmenn hafa verið með á undanförnum árum, t.d. að afnema varasjóðshlunnindi og ákvæðið um, að ekki mætti leggja skatt á tekjur yfir 200 þús. kr. Það voru miklar árásir á framsóknarmenn fyrir, að ekki mætti leggja á tekjur yfir 200 þús. kr., af því að 90% af þeim fóru til bæjar- og sveitarfélaga. En það hefur ekki bólað á neinu slíku, eftir að núv. hæstv. stj. kom til valda. Þá hafa þessir flokkar lengi haldið fram — og það með réttu, að þörf væri á að gera ráðstafanir til að herða stórkostlega eftirlit með framtölum í landinu. Um Sjálfstfl. hef ég áður rætt í þessu sambandi og því ekki ástæða til að ræða mikið afstöðu hans í þetta skipti. Hann hafði, eins og kunnugt er, gagnrýnt allra flokka mest þær skattaálögur, sem fyrir voru, og gert það að aðalstarfi flokksins árum saman. Sérstaklega var það núverandi fjmrh., sem gekk fram fyrir skjöldu í þeim efnum, í gagnrýni varðandi þá skatta, sem fyrir voru. Eftir að þessi flokkur hefur haft fjmrh. úr sínum hópi í 5 ár, liggur það fyrir honum að bæta allverulega á þá skatta, sem fyrir voru. Og þetta er ekki gert á neinum erfiðleika- og krepputímum, heldur á tímum, sem a.m.k. ættu að vera tímar hinnar mestu velgengni.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta frekar. Ég vildi aðeins nota tækifærið til þess að víkja með nokkrum orðum að málinu sjálfu og geta þess, að mér finnst þetta mál glöggt tákn þess, hvernig komið er í þessum málum.