05.02.1945
Neðri deild: 121. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1958 í B-deild Alþingistíðinda. (5028)

254. mál, fasteignamat

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. — Það kom fram hjá hæstv. fjmrh., að hann taldi aðfinnslur mínar hafa við rök að styðjast um, að hvort tveggja matið skuli framkvæmt af sömu mönnum. Ég tel ástæður meiri hl. ekki hafa við rök að styðjast, því að ég efast um, að aukamatið verði dýrara, þar sem enginn af aðalmatsmönnunum er á föstum launum, heldur á ráðh. að ákveða laun þeirra eftir því, hve löngum tíma þeir eyða til matsstarfanna.