25.10.1944
Sameinað þing: 61. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í D-deild Alþingistíðinda. (5053)

177. mál, rannsóknarstöð á Keldum

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Út af þessari aths. hv. þm. Borgf. vil ég aðeins upplýsa, að ríkisstj. hefur þetta mál til athugunar og gerði einmitt í morgun ráðstafanir til að undirbúa það eins og auðið er.

Ég ætla, að þótt Alþ. verði frestað um hálfsmánaðartíma, þá þurfi það ekki að verða málinu til tafar, því að það er naumast hægt að búast við, að annar undirbúningur, sem er óhjákvæmilegur, verði svo tímanlega búinn. Ef svo færi, að þeim undirbúningi yrði lokið fyrr, hygg ég, að stj. geri ráðstafanir til þess, að Alþ. fengi tækifæri til að fjalla um till., enda þótt þingi verði frestað.